Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar 15. október 2026 09:02 Skatta- og gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar setja sterkan svip á fjárlög ársins 2027. Þegar heildarmyndin er skoðuð frá sjónarhóli Suðurkjördæmis vekur þó sérstaka athygli hversu margar þessara aðgerða leggjast með þungum hætti á atvinnulíf og heimili í kjördæminu. Þar ber fyrst að nefna nýtt náttúru- og innviðagjald sem ríkisstjórnin hefur boðað samhliða fjárlagavinnunni. Samkvæmt frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðherra eiga erlendir ferðamenn að greiða fyrir aðgang að Geysi, Gullfossi vestan megin og Þingvöllum. Allir þrír staðirnir eru í Suðurkjördæmi, allir í uppsveitum Árnessýslu á einu atvinnusvæði og allir í sama sveitarfélaginu. Ríkisstjórnin nefnir meðal annars svokallaða „álagsstýringu“ sem rök fyrir gjaldtökunni. Á einfaldri íslensku má segja að markmiðið sé að stýra ferðamönnum frá þessum ferðamannastöðum, og þar með frá uppsveitum og Suðurlandi. Ferðaþjónustan á Suðurlandi og í uppsveitum hefur ekki sprottið upp af sjálfu sér. Í kringum þessa áfangastaði hafa uppsveitir byggt upp markaðsstarf með sérstökum ferðaþjónustufulltrúa í marga áratugi. Einstaklingar hafa byggt upp fyrirtæki, veitingastaði, gististaði, afþreyingu og fjölbreytt störf. Þúsundir manna eiga afkomu sína að einhverju leyti undir því að ferðamenn sæki svæðið heim. Full ástæða er til að staldra við þegar ríkisstjórnin ætlar að innleiða gjald með jafn skömmum fyrirvara sem ætlað er að stýra fólki úr uppsveitum og þar með þeim svæðum Suðurlands sem tengja svæðið við flugvöll og höfuðborg á önnur svæði. Mér er til efs að þarna sé gætt meðalhófs og að jafnræðisreglu sé fylgt gagnvart samfélagi og fyrirtækjum í uppsveitum Árnessýslu. Þá kemur annað högg á atvinnugrein sem er sérstaklega fyrirferðarmikil í Suðurkjördæmi. Ríkisstjórnin leggur til að aðgangseyrir að baðlónum og sambærilegri starfsemi færist úr 11% virðisaukaskatti í 24%. Skattar hafa áhrif á verð, fjárfestingar og ákvarðanir fyrirtækja og viðskiptavina. Í Suðurkjördæmi hefur orðið mikil uppbygging í jarðböðum, gistingu og tengdri ferðaþjónustu. Það skýtur því skökku við að á sama tíma og við sjáum mikla fjárfestingu í þessari grein skuli ríkisstjórnin ákveða að hækka skatta á hana, sérstaklega þegar sífellt fleiri teikn eru á lofti um að Ísland sé að verða of dýr áfangastaður fyrir ferðamenn, engin fjölgun átt sér stað undanfarin ár og samkeppnisstaða Íslands orðin þung. Þegar hvert gjaldið á fætur öðru leggst á ferðaþjónustuna er erfitt að saka ríkisstjórnina um sérstakan hlýhug í hennar garð. Þriðja atriðið snýr svo að nánast öllum heimilum: kílómetragjaldinu, sem á að hækka um tæplega 16% á einu ári. Slík hækkun kemur auðvitað við landsmenn alla, en áhrif hennar eru ekki þau sömu alls staðar. Kjördæmið nær frá Suðurnesjum alla leið austur í Hornafjörð og til Vestmannaeyja. Þarfir samfélaganna eru auðvitað ólíkar. Á Suðurnesjum vega ferðaþjónustan, flugvöllurinn og mikil atvinnusókn til höfuðborgarsvæðisins þungt. Í uppsveitum Árnessýslu og í raun um allt Suðurland er ferðaþjónustan einn af burðarásum atvinnulífsins. Eftir því sem austar dregur verða vegalengdirnar lengri og bíllinn enn mikilvægari hluti af daglegu lífi fólks. Í Vestmannaeyjum bætist svo við sérstaða eyjasamfélagsins og mikilvægi öruggra samgangna. Maður hefði haldið að einhver við ríkisstjórnarborðið hefði rekið augun í þetta. En þá er auðvitað sú staða uppi að enginn ráðherra ríkisstjórnar Íslands er þingmaður Suðurkjördæmis. Lítið hefur heyrst frá þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna í Suðurkjördæmi, en kjördæmið á skilið að eiga sér öfluga málsvara á Alþingi, ekki síst meðal þeirra sem standa að ríkisstjórn hverju sinni.Oft er þörf en nú er nauðsyn! Höfundur er oddviti Hrunamannahrepps. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrunamannahreppur Mest lesið Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun