Erlent

Tuttugu og sjö nem­endur látnir eftir að þak skóla hrundi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Björgunarmaður heldur á slösuðu barni sem fannst í rústunum.
Björgunarmaður heldur á slösuðu barni sem fannst í rústunum. Vísir/AP

Að minnsta kosti tuttugu og sjö nemendur og einn kennari eru látnir eftir að þak skóla í borginni Peshawar í Pakistan hrundi. Fleiri nemendur eru slasaðir og þá er óttast að einhverjir séu enn þá fastir í rústum byggingarinnar.

Börnin sem létust og slösuðust eru flest undir þrettán ára aldri en á vef BBC er greint frá því að á annan tug barna hafi slasast og einhver þeirra flutt á sjúkrahús alvarlega slösuð. Fréttastofa Reuters skrifar á vef sínum að óttast sé að tala látinna eigi eftir að hækka. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á sjúkrahúsi borgarinnar vegna slyssins.

Slysið varð í Al-Khair Education Center-skólanum í borginni Peshawar norðarlega í Pakistan. Viðbragðsaðili á staðnum segir í viðtali við Reuters að þak á efri hæð hafi hrunið ofan á þak fyrstu hæðar byggingarinnar sem síðan hrundi á nemendur í skólastofum.

Sjúkrabíll kemur að skólnum þar sem þakið hrundi.Vísir/AP

Á sjónvarpsmyndum megi sjá sjúkrabíla á leið á vettvang og björgunarfólk draga nemendur úr rústunum.

„Við höfum hingað til náð að minnsta kosti fjörutíu og fimm börnum úr rústunum,“ er haft eftir Iftikhar Khan, yfirmanni neyðaraðgerða á svæðinu, á vef Reuters. Óttast er að fleiri börn séu grafin í rústunum.

Í yfirlýsingu frá Asif Ali Zardari, forseta Pakistans, segist hann vera í áfalli vegna atburðarins í Peshawar.

„Atvikið hefur orðið til þess að öll þjóðin er í áfalli,“ segir í tilkynningu forsetans en skrifstofa forsetaembættisins segir að Zardari hafi komið á framfæri samúðarkveðjum til fjölskyldna sem eiga um sárt að binda.

„Forsetinn lagði einnig áherslu á nauðsyn þess að fram fari ítarleg rannsókn til að leiða í ljós orsakir slyssins sem og að öryggisstaðlar í skólabyggingum verði tryggðir til að koma í veg fyrir að slíkur harmleikur endurtaki sig í framtíðinni,“ segir í yfirlýsingu embættisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×