Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. október 2026 18:02 Málverkin eru hundruð milljóna króna virði. AP Tvenn málverk eftir listmálarann Pierre-Auguste Renoir er fundin eftir að þeim var stolið af safni til heiðurs málaranum. Málverkin fundust falin fyrir aftan vegg.
Málverkin tvö heita Portrait de Madame Colonna Romano og Jeune Femme au puits og eru talin vera 4,2 milljóna evra virði eða tæpar sex hundruð milljónir króna. Nicolas Bessone, saksóknari í Marseille, tilkynnti á blaðamannafundi í dag að bæði málverkin fundust við húsleit á heimili í bænum Clermont-l'Herault. Málverkin voru falin á bak við vegg úr holsteini og fundust við aðra húsleit lögreglunnar. Bæði verkin báru merki um skemmdir. „Þau voru algjörlega ógreinanleg,“ sagði Bessone samkvæmt France24. Þjófarnir brutust inn á safnið, sem er fyrrum heimili málarans í bænum Cagnes-sur-Mer, í byrjun september. Þeir höfðu á brott með sér fjögur listaverk en skildu tvö þeirra eftir þegar þeir flúðu vettvang. Lögreglan kom á vettvang fimm mínútum eftir að viðvörunarkerfi safnsins fór í gang og voru þjófarnir á bak og burt. Sex hafa verið handteknir vegna málsins og meðal tveggja helstu grunuðu er 29 ára gamall karlmaður. Erfðaefni úr honum fannst í tösku sem var skilin eftir á flóttanum en maðurinn hafði verið til rannsóknar hjá lögreglu vegna fíkniefnasmygls. Fjórir sæta formlegri rannsókn og eru þeir á aldrinum 29 til 51 árs. Tveir þeirra eru enn í haldi lögreglu.
Frakkland Erlend sakamál Tengdar fréttir Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Tveir þjófar brutust inn í Renoir-safn í Frakklandi í morgun og stálu fjórum málverkum þaðan en skildu síðan eitt þeirra eftir. Málverkin eru talin mikils virði. 8. september 2026 07:31 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira
Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Tveir þjófar brutust inn í Renoir-safn í Frakklandi í morgun og stálu fjórum málverkum þaðan en skildu síðan eitt þeirra eftir. Málverkin eru talin mikils virði. 8. september 2026 07:31