Sveitadraumurinn breyttist í martröð Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 17. október 2026 07:29 Samsett „Þarna upplifði ég mig í lífshættu. Ég var hrædd um mitt eigið líf og líf barnanna minna og dýranna minna og allt. Ég bara sá fyrir mér að eitthvað hræðilegt væri að fara að gerast,“ segir Kristjana Þórarinsdóttir.
Það var í apríl árið 2022 sem hún vaknaði upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjölskyldan látið drauminn um að flytja í sveit rætast og sest að á Skrauthólum við Esjurætur. En draumurinn breyttist fljótlega í martröð þar sem andleg málefni, frjálsar ástir, nakið fólk og nágrannaerjur enduðu með ósköpum. Kristjana og eiginmaður hennar, Guðni Halldórsson, hafa búið á Skrauthólum 2 á Kjalarnesi síðan árið 2016. Þar ætluðu þau að njóta sveitalífsins með börnum sínum og dýrum en lentu í langvarandi deilum við nágranna sína sem ráku starfsemi undir nafninu Sólsetrið. Í nýjasta þætti Eftirmála, í umsjón Þórhildar Þorkelsdóttur og Nadine Guðrúnar Yaghi, rifjar Kristjana upp hvernig samskiptin breyttust smám saman og segir frá fjölmennum samkomum, óhugnanlegum atvikum og ítrekuðum tilraunum fjölskyldunnar til að fá yfirvöld til að grípa inn í. Paradís við Esjurætur Hjónin höfðu fengið lánað land undir hesta sína í Arnarholti og heilluðust af Kjalarnesi í útreiðartúrum sumarið 2016. Þau ákváðu að flytja í sveitina og keyptu íbúðarhúsið á Skrauthólum 2, með útsýni yfir sjóinn, fjöllin og höfuðborgina. „Okkur fannst þetta svæði bara svo geggjað að við fórum að leita okkur að íbúðarhúsnæði þarna upp frá. Okkur fannst þetta bara svo mikil paradís að vera þarna, sem það er,“ segir Kristjana í þætti Eftirmála. Aðeins tuttugu til þrjátíu metrum frá húsinu standa gömul útihús sem áður tilheyrðu sama bæ en höfðu verið seld sérstaklega. Þar bjuggu hjón ásamt syni sínum og ráku Sólsetrið, þar sem boðið var upp á gistingu í innréttuðum strætisvögnum og viðburði tengda andlegum málefnum. Kristjana rifjar upp fyrstu áramótin á staðnum þegar faðir hennar sá fólk dansa í kringum eld fyrir aftan húsið. Fjölskyldunni hafi þótt það fremur skemmtilegt en ógnandi og hún hafi ekki gert neinar athugasemdir við að nágrannarnir lifðu öðruvísi lífi en hún sjálf. Kristjana segir fjölskyldunni í fyrstu hafa þótt óhefðbundinn lífsstíll nágrannanna skemmtilegur. Hún hafi stundum setið með þeim við varðeld og hlustað á kyrjun, en með kórónuveirufaraldrinum urðu breytingar. Nágrannahjónin skildu, maðurinn flutti og Linda Mjöll Stefánsdóttir varð eftir með syni sínum. Hundurinn beit dótturina Fyrstu alvarlegu ágreiningsefnin tengdust hundi nágrannanna sem Kristjana segir hafa gengið lausan og verið ágengur. Hún hafi óttast að vera úti við, þar sem hundurinn kom oft urrandi og geltandi að henni, og ítrekað beðið um að honum yrði haldið undir eftirliti. Þegar Kristjana nefndi að hún kynni að þurfa að girða eigin lóð til að fjölskyldan gæti verið þar óáreitt hafi Linda svarað: „Þú getur ekki farið að girða í kringum óttann þinn.“ Kristjana segir viðbrögðin lýsandi fyrir það hversu erfitt hafi verið að ræða við nágrannakonuna um praktísk vandamál. Að hennar sögn beit hundurinn að lokum dóttur hennar og var hundinum síðar lógað. „Þarna var búið að halda svona fimm fundi um þennan blessaða hund. Það er bara rosalega lítið svona röklegt samtal að eiga sér stað eða tillit til einhvers.“ Áform um andlegt samfélag Eftir skilnaðinn hafi Linda rætt hugmyndir um að byggja upp andlegt samfélag á staðnum. Kristjana segist strax hafa mótmælt því að fjöldi fólks tæki sér fasta búsetu svo skammt frá heimili fjölskyldunnar. „Ég var ekki að flytja í sveit til að eiga tuttugu nágranna. Þá hefði ég keypt mér eign í Grafarvogi. Það er bara þannig.“ Samkvæmt Kristjönu fjölgaði íbúum og gestum á svæðinu og starfsemin fór meðal annars að tengjast tantra, kynlífi og hugvíkkandi efnum. Þar hafi um tíma búið maður sem gaf sig út fyrir að vera kynlífsheilari og haldnir verið fjölmennir viðburðir, meðal annars hátíð sem nefndist Wild Love Festival og hún telur að um áttatíu manns hafi sótt. Við flúðum að heiman. Ég var aldrei spurð: „Er í lagi að ég haldi hérna einhverja svona ástarhátíð? Hún leggur áherslu á að hún hafi ekkert á móti því hvernig aðrir kjósi að lifa en vilji ekki þurfa að taka þátt í því óumbeðin. Fjölskyldan hafi meðal annars kvartað undan háværri tónlist, trommuslætti, góli og mikilli bílaumferð. Kristjana og Guðni leituðu til heilbrigðiseftirlits, byggingarfulltrúa, sýslumanns, lögreglu og borgaryfirvalda til að fá skýringar á því hvaða starfsemi væri heimil. Sérstaklega hafi þau reynt að fá upplýsingar um heimildir til að leigja út strætisvagnana og halda fjöldasamkomur í húsnæði sem var skilgreint sem útihús. Kristjana benti á að um væri að ræða starfsemi sem færi fram örskammt frá íbúðarhúsi þar sem börn byggju og að fjölskyldan hefði ekki átt neina aðkomu að ákvörðunum um umfang hennar. Samkvæmt Kristjönu vísuðu stofnanirnar þeim gjarnan hver á aðra. Hún segir fjölskylduna hafa upplifað að enginn tæki ábyrgð á sama tíma og fólk utan frá gerði grín að kvörtunum þeirra. „Ég upplifi mig rosalega mikið bara eins og einhverja nöldrandi Karen,“ segir hún og bætir við að henni finnist málið alls ekki fyndið. „What? I was born this way“ Kristjana rifjar upp atvik þegar sonur hennar fór upp veginn við útihúsin til að leita að týndu dýri. Maðurinn, sem hún lýsir sem kynlífsheilara, hafi þá gengið að honum nakinn og brugðist illa við þegar drengnum varð um. Hann labbar að honum nakinn og syni mínum brá, eðlilega. Og maðurinn verður svona aggressífur við hann og segir bara: „What? I was born this way.“ Kristjana segir að nágrannakonan hafi síðan spurt son hennar hvort hann hefði eitthvað á móti nöktu fólki. Drengurinn hafi svarað neitandi en bent á að hann ætti líka sex ára systur. Hún segist hafa beðið Lindu um að maðurinn klæddist fötum utandyra en fengið þau svör að atvikið hefði átt sér stað á landareign Lindu. Fjölskyldan hafi ekki tilkynnt atvikið til lögreglu enda enn reynt að leysa málin með samtali. Við annað tækifæri hafi hún og dóttir hennar verið í gönguferð í fjallinu fyrir ofan heimilið og mætt um tíu nöktum konum. Hún segir að slíkar uppákomur hafi orðið til þess að hún hætti að nýta umhverfið með sama hætti og áður. „Mig langar bara að vera í mínum göngutúr hérna með hundana mína og dóttur minni,“ segir hún. Þú getur bara ekkert þröngvað þínum lífsstíl yfir á mig. Börn velkomin á umdeildan viðburð Starfsemin hafði fengið jákvæða umfjöllun í sjónvarpi, meðal annars þegar Vala Matt heimsótti Sólsetrið fyrir Ísland í dag í október 2021. Þar var rætt um endurnýtingu gamalla vagna og tengsl náttúru og fólks, en Kristjana segir þá þegar hafa verið komnar upp erjur vegna þess sem fram fór á svæðinu. Í apríl 2022 var síðan auglýst samkoma á vegum Sólsetursins þar sem boðið var upp á erótík, nánd, dans og kakóathöfn. Í auglýsingunni var jafnframt vísað til „hins heilaga meðals“ og notað sveppatákn sem þáttastjórnendur telja hafa verið tilvísun í hugvíkkandi efni. Sérstaka athygli vakti að börn voru boðin velkomin. Kristjana sá auglýsinguna þegar henni var deilt á Facebook og áréttaði opinberlega að fjölskylda hennar tengdist viðburðinum ekki. Mér finnst ekki að bjóða börnum inn í þannig aðstæður. Kristjana rifjar jafnframt upp ummæli sem hún segir konu tengda viðburðinum hafa látið falla um barnagirnd. Þau ummæli urðu einnig að umfjöllunarefni í fjölmiðlum árið 2022. Hrosshaus við afleggjarann Föstudaginn 29. apríl 2022, viku eftir að samkoman var auglýst, fannst níðstöng við afleggjarann að Skrauthólum. Á stönginni var afskorinn hrosshaus, vafinn klæði, og í opnum kjafti hans var miði með skilaboðum. Guðni var staddur erlendis þegar maður úr nágrenninu bankaði upp á hjá Kristjönu og sýndi henni mynd af stönginni. Hún segist hafa fengið mikið áfall og strax talið að einhver tengdur nágrannadeilunum væri að hóta fjölskyldunni. Þarna upplifði ég mig í lífshættu. Guðni var þá formaður Landssambands hestamannafélaga og Kristjana óttaðist að hrosshausinn hefði sérstaka skírskotun til fjölskyldunnar. Hún fór þegar að kanna hvort allir hestar þeirra væru heilir á húfi. „Ég hélt að þau hefðu gert þetta og ég byrjaði á að kíkja á hvort að hestarnir sem voru niðri á túni hjá okkur væru ekki allir með höfuðið á,“ segir hún. Henni hafi ekki dottið annað í hug en að um líflátshótun væri að ræða. Lögregla kom á vettvang og fjarlægði miðann úr hrosshausnum en Kristjana segist ekki muna hvaða orð stóðu á honum. Henni hafi verið svo brugðið að hún náði ekki að meðtaka þau og treysti sér ekki til að dvelja áfram heima. Hún lýsir því að hafa einnig óttast um hestana í Mosfellsbæ og að óvissan um hver hefði komið níðstönginni fyrir hafi gert óttann enn meiri. Hún fór þess í stað í hesthús fjölskyldunnar í Mosfellsbæ. Níðstöng er fornt tákn formælinga og niðurlægingar óvina, meðal annars þekkt úr Egils sögu. Vísir greindi frá því sama dag að Kristjana hefði flúið heimilið og að hún óttaðist að snúa aftur. Skilaboð sem breyttu öllu Síðar þennan dag fékk Guðni Facebook-skilaboð frá einstaklingi sem kvaðst þekkja til þeirra sem reistu níðstöngina. Samkvæmt Kristjönu sagði viðkomandi að henni hefði alls ekki verið beint gegn fjölskyldunni, heldur gegn Sólsetrinu vegna meints ofbeldis sem hefði átt sér stað þar. „Þarna gerum við okkur grein fyrir því að hlutirnir sem eru búnir að vera óþægilegir fyrir okkur hafa verið hryllilegir fyrir fullt og fullt af öðru fólki. Þarna erum við að átta okkur á því,“ segir Kristjana. Hún segir sendandann ekki hafa verið nafnlausan gagnvart þeim, þótt hann hafi ekki viljað tengjast verknaðinum. Þeim hafi verið komið á framfæri afsökunarbeiðni vegna óttans sem níðstöngin olli, en Kristjana segist samt ekki hafa þorað heim strax. Vísir greindi einnig frá þeirri skýringu árið 2022. Ekki hefur komið fram hver eða hverjir reistu níðstöngina en Matvælastofnun taldi að hrossið hefði verið aflífað með mannúðlegum hætti. Kristjana segist hins vegar aldrei hafa fengið skýra mynd af því hvernig lögregla rannsakaði sjálfan verknaðinn eða hvort einhver hefði verið yfirheyrður vegna hans. Frásagnir af meintu ofbeldi Eftir níðstangarmálið kynntist Kristjana frásögnum fólks sem lýsti andlegu og kynferðislegu ofbeldi í tengslum við starfsemina. Í Kompási og hlaðvarpinu Eigin konur var fjallað um slíkar ásakanir, en Linda Mjöll hefur áður hafnað ásökunum um ofbeldi. Hún segir að samkvæmt því sem hún hafi heyrt hafi sumir verið hvattir til að yfirstíga eigin mörk, jafnvel þegar þeir vildu ekki taka þátt í kynferðislegum athöfnum. „Þá ertu bara að lifa í óttanum þínum eða þú ert að láta egóið þitt þvælast fyrir þér,“ segir hún og lýsir því sem hættulegri leið til að beita fólk þrýstingi. Linda Mjöll býr enn á Skrauthólum og eru þær Kristjana því enn nágrannar, fjórum árum eftir að níðstöngin var reist. Samskipti þeirra hafa hins vegar legið niðri síðan atvikið átti sér stað og Kristjana segist ekki hafa rætt við nágrannakonuna síðan. „Ég hef ekkert talað við hana síðan þetta gerðist,“ segir Kristjana. Aðspurð hvort þær hafi ekkert rætt saman á þessum tíma svarar hún: „Aldrei. Og ég ætla ekki að reyna það.“ Hún segir að ástandið hafi róast frá árinu 2022 og mun færri búi nú í útihúsunum en áður. Enn séu þó haldnir viðburðir og fjölskyldan hafi nýlega þurft að leita til lögreglu vegna atviks sem tengdist akstri á svæðinu. Þau hjónin hafi íhugað að flytja og gert tilboð í hús í Mosfellsbæ en því hafi verið hafnað. Þau hafi einnig kært tjaldsvæðisleyfið sem starfsemi Sólsetursins sé rekin undir og óskað eftir að það verði fellt úr gildi. Kristjana segist ekki vilja ráða lífsstíl annarra, aðeins fá að njóta heimilisins sem fjölskyldan keypti í leit að ró og næði. Hún viðurkennir að hún óttist viðbrögð við því að stíga fram í þættinum en telji engu að síður mikilvægt að segja frá. „Mér finnst bara mikilvægt að halda þessu máli á lofti og mér finnst mikilvægt að það gleymist ekki. Mér finnst okkar rödd alveg jafn mikilvæg.“
Eftirmál Lögreglumál Reykjavík Deilur á Skrauthólum Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Fleiri fréttir Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Sjá meira