Innlent

Ögur­stund fyrir fram­tíð Eflingar innan ASÍ

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Sólveig Anna og Halla Gunnarsdóttir.
Sólveig Anna og Halla Gunnarsdóttir.

Þingfundi á öðrum degi 47. þings Alþýðusambands Íslands verður frestað á slaginu 16:30 en þá mun liggja fyrir hvort að tillaga sem hefur reynst einkar umdeild og hart hefur verið tekist á um hafi verið samþykkt eða felld.

Um er að ræða tillögu sem miðstjórn lagði fram á þinginu þrátt fyrir að vera ósammála um innihald hennar. Hún varðar það að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur niður í einn. Tillagan var felld í laganefnd með 25 atkvæðum á móti 23 en var í kjölfarið lögð fyrir þingið þar sem að um 200 fulltrúar fengu að greiða atkvæði um hana.

Tómas Arnar, fréttamaður okkar, verður á Hilton Reykjavík þegar að fundinum verður frestað og mun freista þess að fá viðbrögð frá helstu aðilum varðandi niðurstöðuna. 

Bein útsending mun hefjast hér fyrir neðan.

Í stuttu máli eru átakalínurnar á milli Eflingar og VR. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur sagt tillöguna koma úr ranni VR. Hún hefur sagt tillöguna vera tilraun Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til að sölsa undir sig völd innan ASÍ. Halla hefur alfarið hafnað því.

Sólveig Anna sagði í samtali við fréttastofu í gær að til skoðunar væri að Efling hreinlega segði sig úr sambandinu. Niðurstaða um fjölda varaforseta vegi þungt í því mati.

Þær bjóða sig báðar fram í embætti fyrsta varaforseta ASÍ en á morgun verða greidd atkvæði um varaforsetaembætti. Einnig verður nýr forseti ASÍ valinn á morgun og mun þá koma í ljós hver tekur við af Finnbirni Hermannssyni, fráfarandi forseta ASÍ. 

Í framboði til forseta eru þeir Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur sem hefur starfað á skrifstofu ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×