Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Birgir Olgeirsson skrifar 18. október 2026 16:00 Gögn benda mjög eindregið til þess að rannsóknin sem GEV lokaði án rannsóknarskýrslu hafi varðað brunann á Stuðlum. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála lokaði rannsókn á alvarlegu atviki á meðferðarheimili barna án rannsóknarskýrslu eftir rúmlega fimmtán mánaða bið. Að mati stofnunarinnar höfðu annmarkar á lögum stöðvað rannsóknina. Þegar málinu var lokað taldi stofnunin jafnframt óvíst að rannsókn gæti skilað áreiðanlegum niðurstöðum, jafnvel þótt lögunum yrði breytt.
Þetta kemur fram í svörum Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, GEV, við fyrirspurn Vísis og gögnum sem stofnunin afhenti vegna málsins. Samkvæmt svörunum stöðvaðist ein rannsókn af þessum sökum. Málinu var lokað 5. maí síðastliðinn. Engin rannsóknarskýrsla var gefin út og ekki var kveðið á um úrbætur í þjónustunni á grundvelli rannsóknarinnar. GEV hefur meðal annars eftirlit með gæðum þjónustu á meðferðarheimilum barna. Rannsókn stofnunarinnar á alvarlegu atviki á að leiða fram skýringar sem nýtast til að koma í veg fyrir að sambærileg atvik endurtaki sig. Hún hefur því annað hlutverk en rannsókn lögreglu á mögulegri refsiverðri háttsemi. Gögnin benda til brunans á Stuðlum Gögn málsins benda mjög eindregið til þess að um sé að ræða rannsókn vegna brunans á Stuðlum 19. október 2024, þegar sautján ára drengur lést og starfsmaður slasaðist. Þótt meðferðarheimilið sé ekki nafngreint í nýjum svörum GEV til Vísis eru Stuðlar sérstaklega nefndir í frumvarpsdrögum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá febrúar 2026. Sautján ára drengur lést og starfsmaður slasaðist í brunanum á Stuðlum 19. október 2024. Þar er lýst rannsókn sem stöðvaðist vegna sama vanda og ráðuneytið var upplýst um í janúar 2025. Í tilkynningu GEV um lokun málsins, sem Vísir fékk afhenta, er dagsetning atviksins jafnframt óafmáð: 19. október 2024. RÚV hafði þegar greint frá því í september 2025 að rannsókn GEV á Stuðlabrunanum væri í bið. Nýju upplýsingarnar í svörunum til Vísis eru að rannsókninni var síðar lokað án skýrslu. Réttarstaða starfsmanna hindraði rannsóknina GEV hóf rannsókn eftir að hafa fengið tilkynningu um atvikið og óskaði upplýsinga og gagna frá Barna- og fjölskyldustofu í nóvember 2024. Á fundi stofnananna 18. nóvember kom fram að að minnsta kosti tveir starfsmenn hefðu réttarstöðu grunaðra hjá lögreglu. Barna- og fjölskyldustofa sagðist því ekki geta svarað öllum spurningum GEV og hefði ekki rætt við starfsmennina um atvikið. Rannsókn GEV lá í bið í rúma fimmtán mánuði. Þegar málinu var lokað taldi stofnunin tímann frá atvikinu hafa torveldað rannsóknina. Í svari Barna- og fjölskyldustofu í janúar 2025 kom jafnframt fram að leitað hefði verið ráðgjafar hjá ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar hefði verið ráðlagt að ræða rannsóknarefnið ekki við starfsmenn sem hefðu réttarstöðu grunaðra, enda gæti það haft áhrif á lögreglurannsóknina. GEV tilkynnti 22. janúar 2025 að rannsókn stofnunarinnar hefði verið sett á bið. Stofnunin taldi nauðsynlegt að gæta réttar starfsmannanna til að fella ekki á sig sök. Vandinn var sá að GEV gat ekki tryggt að upplýsingar sem starfsmenn veittu við rannsóknina yrðu ekki síðar notaðar gegn þeim í sakamáli. Tíminn frá atvikinu varð hluti rökstuðningsins Rúmlega fimmtán mánuðum síðar, 5. maí 2026, tilkynnti GEV Barna- og fjölskyldustofu að málinu væri lokað. Í tilkynningunni um lokunina kemur fram að lagaumhverfið hindraði enn að hægt væri að rannsaka atvikið með fullnægjandi hætti. Þar að auki hefði tíminn frá atvikinu haft veruleg áhrif á möguleikana á árangursríkri rannsókn. Upplýsingar kynnu að hafa glatast, minni aðila dofnað og aðstæður breyst. „GEV telur því óvíst að rannsókn á þessum tímapunkti myndi skila áreiðanlegum eða gagnlegum niðurstöðum, jafnvel þótt ofangreindar breytingar á lögum um GEV myndu taka gildi á næstunni,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar frá 5. maí. GEV taldi þannig tímann sem liðinn var frá atvikinu hafa torveldað rannsóknina, til viðbótar við lagavandann sem hafði stöðvað hana. Ráðuneytin upplýst rúmu ári fyrir lokun Barna- og fjölskyldustofa, ráðuneytin sem fóru með félagsmál og barnamál og aðstandendur þjónustunotandans voru upplýst um stöðvun rannsóknarinnar og ástæður hennar í janúar 2025. Samkvæmt GEV fengu sömu aðilar tilkynningu um lokun málsins í maí 2026. Frumvarp sem á að bregðast við lagavandanum er nú til meðferðar hjá velferðarnefnd Alþingis. Meðal annars er lagt til að rannsóknarskýrslur GEV verði ekki notaðar sem sönnunargögn í sakamálum og að vernd verði sett um framburð sem stofnunin aflar við rannsóknir sínar. Markmiðið er að rannsóknir GEV geti farið fram samhliða lögreglurannsóknum. Vísar til annarrar úttektar um öryggi barnanna Vísir spurði GEV hvaða ráðstafanir hefðu verið gerðar til að tryggja öryggi þjónustunotenda meðan rannsóknin lá niðri og hvort tafirnar hefðu komið í veg fyrir nauðsynlegar úrbætur. „Þar sem rannsókninni lauk hjá stofnuninni án útgáfu skýrslu var ekki kveðið á um úrbætur í þjónustunni á grundvelli 16. gr. laga um GEV,“ segir í svari stofnunarinnar til Vísis frá 13. október. Um öryggi þjónustunotenda vísar GEV til almennrar athugunar á gæðum þjónustu meðferðarheimila Barna- og fjölskyldustofu. Hún hófst í maí 2024, áður en umrætt atvik varð, og lauk með skýrslu í apríl síðastliðnum. Í þeirri skýrslu voru sett fram tilmæli um úrbætur og ábendingar til Barna- og fjölskyldustofu og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Óskað var eftir úrbótaáætlunum fyrir 1. júní og á úrbótum að vera lokið fyrir 1. nóvember næstkomandi. Aðrar rannsóknir hafa einnig farið fram á Stuðlabrunanum. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun rannsakaði brunavarnir og eldsvoðann og komst að þeirri niðurstöðu að virkar brunavarnir hefðu getað komið í veg fyrir mannslát. Í júlí greindi Vísir frá því að lögregla hefði lokið rannsókn sinni og afhent málið ákærusviði. Lokun rannsóknar GEV varðar því sérstaka rannsókn stofnunarinnar á gæðum og öryggi þjónustunnar.
Börn og uppeldi Meðferðarheimili Lögreglumál Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést í starfsmannaferð Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira