Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Birgir Olgeirsson skrifar 16. október 2026 18:00 Diljá Mist Einarsdóttir spurði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um afgreiðslu viðtalsbeiðna. Stefán Einar Stefánsson hefur ítrekað gagnrýnt ráðherrann fyrir að þiggja ekki boð í Spursmál. Vísir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir íslenska fjölmiðla hafa afar gott aðgengi að sér. Hvorki kemur þó fram hversu mörgum viðtalsbeiðnum hún hefur hafnað á kjörtímabilinu né hvaða miðlar hafa fengið synjun.
Þetta kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Diljá spurði hvort ráðherra hefði sett sér vinnureglur um viðtalsbeiðnir, hversu mörgum hún hefði hafnað og hversu margar hún hefði samþykkt. Óskað var eftir upplýsingum um hvaða miðlar ættu í hlut. Yfir hundrað beiðnir í ágúst Í svarinu segir að sérstakar vinnureglur séu taldar óþarfar. Fjölmiðlafólk komi beiðnum á framfæri eftir ýmsum formlegum og óformlegum leiðum. Ráðherra veiti almennt viðtöl þegar eftir því sé leitað og svigrúm leyfi. Beiðnirnar skipti hundruðum árlega. Dæmi séu um synjanir vegna tímaskorts, meðal annars í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst. Þann mánuð hafi beiðnirnar verið yfir hundrað. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir íslenska fjölmiðla hafa afar gott aðgengi að sér. Ekki sé haldin sérstök skrá yfir allar viðtalsbeiðnir sem henni berast.Vilhelm Synjanirnar hafi einkum varðað erlenda miðla en einnig íslenska í einhverjum tilvikum. „Íslenskir fjölmiðlar hafa hins vegar afar gott aðgengi að utanríkisráðherra, til að mynda eftir ríkisstjórnarfundi.“ Hvorki fjöldi samþykktra beiðna né sundurliðun eftir miðlum kemur fram. Vísað er til þess að sérstök skrá sé ekki haldin yfir allar beiðnir og stór hluti þeirra berist óformlega. Stefán Einar sagðist hafa fengið loforð Viðtalsbeiðnir Stefáns Einars Stefánssonar, stjórnanda Spursmála á mbl.is, voru ítrekað til umræðu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Í júlí sagði hann í Bakslaginu að Þorgerður hefði lofað að koma í Spursmál fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Þau hefðu rætt málið í afmælisveislu og hún gefið fyrirheitið í viðurvist vitna. Í Spursmálum sagði Stefán Einar hins vegar að aðstoðarmaður ráðherrans hefði tilkynnt í tölvupósti að hún kæmi ekki fyrir atkvæðagreiðsluna. Hann sagðist hafa óskað eftir viðtali í eitt og hálft ár og gagnrýndi að hún gæfi öðrum miðlum viðtöl á meðan boð hans væri ekki þegið. Vísar til forgangsröðunar og skoðana Stefáns Þorgerður ræddi samskiptin við Stefán Einar í Bítinu á Bylgjunni í sumar. Hún sagðist hafa svarað honum í hvert sinn sem hann hefði leitað til hennar og vísaði til forgangsröðunar. „Ég ber virðingu fyrir honum, við vitum öll hvar hann stendur og það er bara fínt.“ Hún sagðist iðulega mæta í viðtöl, vera fljót að svara símtölum fjölmiðlafólks og hafa gaman af samskiptunum. Jafnframt velti hún upp hvort hún væri að einhverju leyti að draga viðtalið af stríðni. Þorgerður benti á að hún hefði oft mætt til Stefáns Einars, meðal annars fyrir síðustu kosningar. Hún lýsti spurningum hans sem skemmtilegum og krefjandi en velti fyrir sér hversu upplýsandi viðtal væri þegar spyrjandinn hefði svo sterkar skoðanir og hvað væri þá verið að draga fram. „Af því að þetta snýst um upplýsingar, ekki um það að taka eitthvað úr samhengi.“ Hún lagði áherslu á að allir fjölmiðlar þyrftu að vera meðvitaðir um ábyrgð sína á að upplýsa og fræða. Ekki er fjallað sérstaklega um Spursmál í nýja þingsvarinu.
Fjölmiðlar Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri kjósa að fæða án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks hér á landi Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Sjá meira