Lífið

Costanza á klakanum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Jason Alexander á mörg ógleymanleg augnablik í hlutverki Georgs Costanza.
Jason Alexander á mörg ógleymanleg augnablik í hlutverki Georgs Costanza.

Leikarinn Jason Alexander, sem er þekktastur fyrir að leika George Costanza í sjónvarpsþáttunum Seinfeld, er staddur á Íslandi og fékk sér að snæða á Smiðjunni í Vík í Mýrdal um helgina.

Fréttastofa hefur eftir heimildum að Alexander hafi verið á ferðalagi um Suðurlandið og meðal annars kíkt á veitingastaðinn Smiðjuna í Vík í Mýrdal þar sem hann gæddi sér á börger.

Vík í Mýrdal hefur síðasta áratuginn breyst í ákveðna ferðamannamiðstöð Suðurlands enda stutt þaðan í ýmsar perlur, svo sem Seljalandsfoss, Skógarfoss, Reynisfjöru og Sólheimasand og Jökulsárlón ekki langt frá.

Jason Alexander ættu flestir að kannast við sem hinn sérkennilega og seinheppna George Costanza úr gamanþáttunum Seinfeld (1989-98) en hann var sjö sinnum í röð tilnefndur til Emmy-verðlauna fyrir leik sinn í þáttunum. Auk þess hefur hann leikið í kvikmyndum á borð við Pretty Woman (1990), Jacob's Ladder (1990), Shallow Hal (2001) og The Electric State (2025). Hér að neðan má sjá nokkur ógleymanleg augnablik leikarans í hlutverki Costanza.

Ísland virðist ofarlega á radarnum hjá fræga fólkinu í Hollywood því á síðustu mánuðum hafa leikararnir Colman Domingo, Hunter Schafer, Nicole Kidman, Lea Michele og Millie Bobby Brown skellt sér í frí til Íslands sem og tónlistarkonurnar Ice Spice og Olivia Rodrigo.


Tengdar fréttir

Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn

Tónlistarkonan Ice Spice og leikkonan Millie Bobby Brown nutu sín á Íslandi ef marka má Instagram-færslur stjarnanna. Saman slökuðu þær á í sjóböðunum í Hvammsvík. 

Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum

Bandaríska sjónvarpsstjarnan Colman Domingo spókaði sig um í miðbæ Reykjavíkur í dag. Hann er nýkominn frá Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum þar sem fram fóru tökur á þriðju seríunni af Netflix þáttunum Four Seasons.

„Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman

Óperusöngkonan Alexandra Chernyshova var fengin til þess að syngja fyrir hóp ferðamanna ofan í Vatnshelli á Snæfellsnesi. Henni til mikillar undrunar var Hollywood-stjarnan Nicole Kidman meðal hópsins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.