Erlent

Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir

Samúel Karl Ólason skrifar
Hermenn standa vörð Suður-Kóreumegin við landamærin á sameiginlegu öryggissvæði ríkjanna við friðarþorpið svokallaða, í Panmunjom.
Hermenn standa vörð Suður-Kóreumegin við landamærin á sameiginlegu öryggissvæði ríkjanna við friðarþorpið svokallaða, í Panmunjom. Getty/Soeren Stache, DPA

Ráðamenn í Suður-Kóreu heita hörðum viðbrögðum standi einræðisstjórn Norður-Kóreu við þær hótanir að auka viðbúnað á landamærum ríkjanna. Aukin spenna er á Kóreuskaga eftir að hermenn frá Suður-Kóreu særðust alvarlega vegna jarðsprengja sem Suður-Kóreumenn segja að hafi verið komið fyrir af hermönnum frá Norður-Kóreu.

Eftir að Suður-Kóreumenn sökuðu Norður-Kóreu um að bera ábyrgð á jarðsprengjunum, sem er brot gegn vopnahléssamkomulagi ríkjanna, sendi Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un, út yfirlýsingu þar sem hún sparaði ekki stóru orðin.

Meðal annars kallaði hún ráðamenn í Suður-Kóreu glæpamenn og kvartaði yfir því að hermenn Suður-Kóreu hefðu ítrekað skotið aðvörunarskotum nærri hermönnum Norður-Kóreu. Þá sagði hún að verið væri að skoða að auka viðbúnað á landamærunum og bæta árásagetu þar. Auk þess yrði mögulega byrjað að básúna aftur áróður yfir landamærin með stórum hátölurum.

Í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu segir að viðvörunarskot til að vara hermenn frá Norður-Kóreu við því að fara inn á hlutlausa svæðið milli ríkjanna og þvinga þá sem hafa farið inn á það til að snúa við, séu lögmæt varnarviðbrögð.

„Ef Norður-Kórea notar lögmætar ráðstafanir okkar sem yfirskin fyrir frekari ögranir munum við refsa henni af fullri hörku,“ sagði ráðuneytið, samkvæmt frétt Reuters.

Enn frekar voru Norður-Kóreumenn hvattir til að hætta grunnlausum kröfum sínum, hætta að senda hermenn inn á hlutlausa svæðið milli ríkjanna og að opna aftur á uppbyggileg samskipti ríkjanna á milli.

Ráðuneytið fordæmdi einnig ummæli Kim You Jong og sagði þau til þess fallin að auka spennuna milli ríkjanna enn frekar.

Sagði hermönnum að bregðast við ögrunum af festu

Yonhap-fréttaveitan segir að Jin Young Sung, formaður herforingjaráðs Suður-Kóreu, hafi í morgun heimsótt hersveit á landamærunum. Þar sagði hann hermönnum að bregðast af festu við hvers kyns ögrunum Norður-Kóreumanna.

Þá sagði hann stjórnendum á svæðinu að auka viðbragðsstig við hlutlausa svæðið. Talsmaður ráðuneytisins vildi ekki útskýra nánar hvað fælist í því í samtali við blaðamenn í dag.

Hermaður stendur vörð í Norður-Kóreu og fylgist með hlutlausa svæðinu. Suður-Kóreumenn segja að hermenn frá Norður-Kóreu hafi farið um fimmtíu sinnum inn á svæðið eða yfir það.AP/Ahn Young-joon

Heimildarmaður Yonhap segir þó að meðal annars geti þessi skipun falið í sér að bæta slóða og vegi til að auðvelda hermönnum að bregðast við ef eitthvað gerist á svæðinu. Þá geti einnig staðið til að bæta eftirlit með hlutlausa svæðinu með því að setja upp eftirlitsstöðvar og myndavélar.

Samskipti Norður- og Suður-Kóreu þykja ekki góð um þessar mundir, þrátt fyrir yfirlýst markmið Lee Jae Myung, forseta Suður-Kóreu, um að bæta þau samskipti.

Norður-Kóreumenn hafa komið fyrir fleiri jarðsprengjum, gaddavír og skriðdrekatálmum sín megin við landamærin að undanförnu en þeir hafa þá yfirlýstu stefnu að rjúfa alfarið tengslin við Suður-Kóreu.

Yfirvöld í Suður-Kóreu segja að allt að sjö þúsund verkamenn hafi verið sendir að landamærunum á þessu ári, þar sem þeir hafa unnið við að víggirða þau frekar. Þá hafa Suður-Kóreumenn greint um fimmtíu tilfelli þar sem hermenn frá Norður-Kóreu hafa farið inn á og jafnvel yfir hlutlausa svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×