Fótbolti

Selma Sól skoraði í bikarsigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Selma Sól Magnúsdóttir fagnar marki með íslenska landsliðinu.
Selma Sól Magnúsdóttir fagnar marki með íslenska landsliðinu. Vísir/Anton

Selma Sól Magnúsdóttir minnti á sig í kvöld þegar hún skoraði eitt marka Rosenborg í sigri í 2. umferð norsku bikarkeppninnar.

Selma Sól var á sínum tíma fastakona í íslenska landsliðinu en hefur glímt við leiðinleg meiðsli síðustu ár.

Það er ánægjulegt að sjá Selmu koma til baka en hún skoraði fjórða markið í 5-0 sigri Rosenborg á Rana FK með marki á 73. mínútu leiksins.

Tvö önnur Íslendingalið fóru einnig áfram. Brann vann 3-0 útisigur á Fyllingsdalen og Vålerenga vann 3-0 útisigur á Strömsgodset.

Landsliðskonurnar Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir voru báðar hvíldar hjá Vålerenga í leiknum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×