Fótbolti

Sagði leik­mönnum sínum að slaka á í lok leiksins

Andri Broddason skrifar
Cesc Fabregas og lærisveinar hans í Como unnu stórsigur á Manchester United í Meistaradeild Evrópu.
Cesc Fabregas og lærisveinar hans í Como unnu stórsigur á Manchester United í Meistaradeild Evrópu. Image Photo Agency/Getty Images

Como vann stórsigur í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi þegar liðið vann Manchester United 4-1 á heimavelli. Cesc Fabregas þjálfari liðsins sagði leikmönnum sínum að minnka ákefðina og spara orku undir lok leiksins fyrir komandi leikjaálag.

Como er í fyrsta skipti að spila í Meistaradeild Evrópu og því er mikið leikjaálag á leikmönnum liðsins. Hópurinn er ekki mjög stór og því er mikilvægt að huga að orku leikmannanna. Fabregas fannst liðið vera með mikla stjórn á leiknum og því sagði hann leikmönnum liðsins að slaka á.

Á blaðamannafundi eftir leik sagðist hann sjá eftir ákvörðuninni þar sem Manchester United náði að nýta tækifærið og skora undir lok leiks. Það hafði lítil áhrif á úrslitin þar sem Como var með 4-0 forystu fyrir markið en Fabregas var samt sár yfir því að hafa fengið á sig mark.

„Ég er alltaf að segja við leikmennina að þeir eigi að berjast alveg fram að leikslokum og þetta mark særði mig. Það kom vegna þess að við minnkuðum ákefðina og hættum varnarvinnunni okkar en það var mér að kenna,“ sagði Fabregas og var gagnrýninn á sjálfan sig þrátt fyrir stórsigur.

Como átti frábært tímabil á síðasta ári þar sem liðið endaði í fjórða sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar og er því mikil áskorun fyrir Fabregas að halda áfram góðu gengi. Hann virðist vera að gera það til að byrja með þar sem eftir sjö umferðir er liðið í fimmta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Auk þess er liðið einu sæti frá því að fara beint áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar þegar aðeins þrjár umferðir eru búnar. Fabregast hefur staðið sig vel sem þjálfari liðsins en það er enn nóg eftir af tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×