Enski boltinn

Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Carrick gerði vel á síðasta tímabili en það hefur gengið illa í síðustu sjö leikjum.
Michael Carrick gerði vel á síðasta tímabili en það hefur gengið illa í síðustu sjö leikjum. Getty/Dan Mullan

Michael Carrick verður áfram við stjórnvölinn gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir vaxandi áhyggjur forráðamanna félagsins af slæmu gengi liðsins en þetta hefur Sky Sports fengið staðfest.

Sky Sports segir frá því að bæði innan og utan Old Trafford sé sú tilfinning ríkjandi að leikurinn í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag gæti ráðið úrslitum um framtíð Carricks.

Eins og staðan er núna hefur engin ákvörðun verið tekin um áætlanir eftir sunnudaginn í kjölfar 4-1 taps gegn Como í Meistaradeildinni á miðvikudag.

Bruno Fernandes verður ekki sviptur fyrirliðabandinu vegna gagnrýni sinnar á þjálfarateymi United og ólíklegt er að honum verði refsað fyrir ummæli sín eftir hið stóra tap á Ítalíu.

Michael Carrick, stjóri Manchester United, viðurkenndi að frammistaða liðsins hefði verið „óásættanleg“ í 4-1 tapinu gegn Como í Meistaradeildinni.

Samúð ríkir með Carrick vegna þeirra meiðslavandræða sem hann glímir við og margir stuðningsmenn United voru sammála hreinskilnum ummælum Lisandro Martinez í síðustu viku þegar hann sagði að leikmannahópurinn væri ekki nógu sterkur til að keppa í fremstu röð. Martinez beindi gagnrýninni að yfirstjórn United, ekki aðalþjálfaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×