Innlent

Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins.
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Viktor Freyr

Sjálfstæðisflokkurinn tapar mesta fylgi allra flokka á milli mánaða í nýrri könnun Maskínu og er næst stærsti flokkurinn á eftir Samfylkingu. Fylgi annarra flokka breytist lítið sem ekkert. Stjórnmálafræðingur segir fylgistapið óvenjulegt þó varast þurfi að lesa of mikið í skoðanakannanir á miðju kjörtímabili. Áhrif brotthvarfs Jóns Gnarr úr Viðreisn, ef einhver, eigi enn eftir að koma fram í könnunum.

Í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi í október mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn með 28,6 prósenta fylgi. Flokkurinn bætir við sig rúmlega einu prósenti síðan í september. Næst stærsti flokkurinn er Sjálfstæðisflokkurinn en flokkurinn mælist í október með 21,9 prósent fylgi. Það er um þremur prósentustigum minna fylgi en flokkurinn mældist með í september þegar fylgi flokksins mældist 25 prósent. 

Fylgi annarra flokka stendur nokkurn veginn í stað, Miðflokkurinn er með rúm þrettán prósent líkt og í október, Viðreisn með rúm ellefu prósent, Framsókn bætir við sig hálfu prósentustigi og er með átta prósent fylgi á meðan Flokkur fólksins mælist enn utan þings með 4,6 prósenta fylgi. Vinstri græn, Sósíalistar og Píratar mælast sömuleiðis enn utan þings. Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur segir eðllegt að fylgi flestra flokka sé stöðugt milli mánaða, fylgistap Sjálfstæðisflokksins sé hinsvegar frekar óvenjulegt.

„Yfirleitt eru svona fylgisbreytingar frá einum mánuði til annars mánaðar ekki miklar þannig að það er bara mjög eðlilegt að fylgi flestra flokka sé nokkuð stöðugt, við sjáum breytingar svona innan við prósentustig. Þetta hins vegar er frekar óvenjulegt að við sjáum fylgistap upp á þrjú prósentustig á milli mánaða.“

Sé þróunin skoðuð aftur í tímann hafi verið töluverð stemning fyrir Sjálfstæðisflokknum í sumar á meðan kosningabaráttan fyrir Evrópusambandsaðildarviðræðurnar stóð yfir. Flokkurinn hafi mælst stærstur í júlí en sé nú að mælast með svipað fylgi í júní, sem sé þó engu að síður mun hærra en fylgið sem flokkurinn mældist með í janúar þegar fylgið var komið undir fjórtán prósent.

Hinsvegar þurfi að fara varlega í að oftúlka skoðanakannanir á miðju kjörtímabili og nefnir Hafsteinn sem dæmi kannanir á miðju síðasta kjörtímabili sem hafi sýnt Samfylkingu með fimmtán prósent meira fylgi en Sjálfstæðisflokkinn. Eðlilegt sé að sveiflur séu á fylgi á miðju kjörtímabili.

„En auðvitað er þetta ekki góð mæling fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Leitnin hafði verið upp á við og ég held að margir, þar á meðal ég, hafi búist við því að fylgistap ríkisstjórnarflokkanna yrði að veruleika eftir að hafa tapað þessari Evrópusambandskosningu í ágúst en það virðist ekki vera að raungerast, ekki akkúrat núna allavega.“

Bendir það til þess að þessi umsókn að Evrópusambandinu hafi ekki skipt kjósendur miklu máli?

„Það var klárt mál að umsóknin skipti verulegu máli og það sjáum við einfaldlega á kjörsókninni, hvað hún var gríðarlega mikil að fólk lét sig þetta varða. Svo er önnur spurning hvort það smiti út í fylgi á landsvísu, fylgi stjórnmálaflokkanna á landsvísu og það finnst mér enn vera opin spurning og ég verð að segja að það kemur mér á óvart að það sé ekki að mælast í fylgismælingum nú þegar. En það gæti auðvitað verið að það taki tíma, það er yfirleitt ekki þannig að þetta birtist strax í einni mælingu, það er betra að skoða langtímatrend yfir kjörtímabilið og það gæti vel verið að þessi kosningaáhrif hennar birtust frekar síðar en akkúrat núna.“

Óvíst með áhrif Jóns Gnarr

Könnunin var gerð dagana 18. til 23. september og 2. til 7. október. Alls tóku samanlagt 1.791 svarendur afstöðu til flokks. Samtals voru 92,5 prósent sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust myndu skila auðu (3,7 prósent), myndu ekki kjósa (0,9 prósent) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,9 prósent).

Jón Gnarr gekk úr þingflokki Viðreisnar viku síðar, 15. október.  Hafsteinn segir óvíst hver áhrif þess verði á fylgi Viðreisnar þar sem ekki sé ljóst hvort málinu sé enn lokið.

„Það gæti verið að það verði meiri umræða um innri mál í þingflokki Viðreisnar miðað við hvernig stjórnmálamennirnir sem tengjast þeim flokki eru að tjá sig. Yfirleitt þegar það verða svona einhverjar deilur á persónulegu nótunum þá er það ekki þannig að það komi einhver risaskellur í fyrstu könnun en hægt og rólega getur myndast umræða um að það sé einhver óstöðugleiki sem fylgir tilteknum flokkum. Ef það verður svo að úrsögn Jóns Gnarr hefur áhrif á fylgi flokksins þá mun það sennilega taka svolítinn tíma að raungerast. Aftur, ég held við eigum að fara mjög varlega í að oftúlka kannanir á miðju kjörtímabili, sérstaklega auðvitað í þessu tilviki þar sem atburðurinn gerðist að mestu leyti eftir að könnunin var gerð.“


Tengdar fréttir

Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu

Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins með ríflega tuttugu og sjö prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu. Fylgi Viðreisnar stendur nær óbreytt í tæpum tólf prósentum en Flokkur fólksins dalar aftur á móti lítillega og fer niður í rúm fjögur prósent. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna breytist lítið á milli mánaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×