Innlent

Vísar jöfnum höndum til mikil­vægi sam­tals og al­mennra hegningar­laga

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ása Berglind Hjálmarsdóttir vísaði til ákvæða um hatursorðræðu á Alþingi.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir vísaði til ákvæða um hatursorðræðu á Alþingi. Vísir/Samsett

„Mér finnst alls ekki ganga upp að fólk í ábyrgðarstöðum á Íslandi, kjörnir fulltrúar eða fólk sem að stýrir heilu sveitarfélögunum, tali með þessum hætti,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona og vísar þar til umdeildra ummæla Elliða Vignissonar bæjarstjóra Ölfuss um múslima á dögunum.

Færsla sem Elliði birti á samfélagsmiðlum á dögunum vakti mikla athygli. Í henni fjallaði hann um óeirðirnar sem blossað hafa upp í Frakklandi og víðar undanfarnar vikur og varaði í því samhengi við skaðsemi óhefts straums innflytjenda, sérstaklega múslima. Með færslunni birti hann mynd sem hafði verið í dreifingu sem átti að sýna fullorðna, skeggjaða karlmenn á mótmælum. Myndin reyndist vera nokkurra ára gömul og frá Svíþjóð.

Í gær tók Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ummælin sérstaklega fyrir á Alþingi. Hún segir málflutningur sem þessi ekki sæma kjörnum fulltrúum.

„Við viljum ekki að vandamál í samfélaginu séu yfirfærð á heilu hópana, sama hvað hóparnir heita,“ sagði hún en hún ræddi málið í Reykjavík síðdegis í dag.

Þurfi að vanda sig

Elliði sagði í sama þætti á dögunum að það væri fjarri hans skoðun að dæma eigi fólk út frá kynferði, lit eða trú. Honum hafi orðið á að nefna heilan trúarhóp í þessu samhengi en að sama skapi þurfi að vera hægt að ræða erfið mál eins og samfélagslegar breytingar vegna örrar fjölgunar innflytjenda.

„Ég er að segja það fullum fetum að ég hef áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá ákveðnum svæðum og er þar ekkert að setja alla innflytjendur undir sama hatt. Það eru svona sérstaklega þessi lönd í Norður-Afríku og Miðausturlöndum og fleira. Því miður þá er hluti þessa hóps, langt frá því allir, að finna öfgakenndri hugmyndafræði farveg innan Íslam og það er engum greiði gerður með því að standa ekki frammi fyrir þessu,“ sagði hann.

Elliði sagðist alls ekki halda því fram að allir sem komi frá þessum svæðum séu eins. Né heldur að uppruni segi til um hegðun einstaklinga.

Ása Berglind segist vel skilja að fólk hafi áhyggjur af hröðum samfélagsbreytingum og óstjórn á landamærunum á tíma eins og hún lýsir því.

„Þetta eru ekki þannig vandamál í dag að við getum ekki ráðið við þau,“ segir hún þó.

„Við þurfum að gæta jafnvægis í þessum málum og standa okkur miklu betur í að hjálpa fólki að aðlagast okkar samfélagi með því að læra tungumálið, kenna þeim á það hvernig okkar samfélag virkar. Ég var til dæmis í að heimsækja mitt kjördæmi núna nýlega og var þar í í Fjölbrautaskóla Austur-Skaftafellssýslu á Höfn. Ég var að sjá alveg frábæra fjarnámsáfanga sem ganga einmitt út á bara að kenna innflytjendum hvernig svona samfélag okkar virkar, hvernig við tökum þátt í ólíkum félögum, hvernig lögreglan, hún er hér til að aðstoða okkur, hún er ekki ógn. Og þetta eru svona atriði sem að auðvitað þarf að kenna fólki sem er að koma með ólíkan bakgrunn,“ segir Ása.

„Við getum talað saman“

Taka þurfi umræðuna um þessi mál upp úr skotgröfum og tala um þætti í samfélaginu sem betur mættu fara. Á Alþingi á dögunum vísaði Ása Berglind í þessu samhengi til ákvæða almennra hegningarlaga sem banna opinbera smánun eða ógnir gagnvart hópi vegna trúarbragða eða þjóðernis.

Hún segir það ekki sitt að meta hvort Elliði hafi gerst sekur um slíkt athæfi. Hún sé ekki lögfróð.

„Mér finnst sko mjög leiðinlegt hvernig margir leyfa sér að tala á internetinu og ég sé þetta birtast mjög mikið til dæmis í kommentum við vídeó af ræðunni minni sem er hérna núna í umferð. Og ég skil ekki alveg þörfina á því af hverju menn þurfa og konur að ganga fram með svona ofsafengnum hætti í umræðunni sko. Við getum alveg talað saman. Það hefur alveg sýnt sig,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×