Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. október 2026 20:17 Ása Berglind Hjálmarsdóttir vísaði til ákvæða um hatursorðræðu á Alþingi. Vísir/Samsett „Mér finnst alls ekki ganga upp að fólk í ábyrgðarstöðum á Íslandi, kjörnir fulltrúar eða fólk sem að stýrir heilu sveitarfélögunum, tali með þessum hætti,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona og vísar þar til umdeildra ummæla Elliða Vignissonar bæjarstjóra Ölfuss um múslima á dögunum.
Færsla sem Elliði birti á samfélagsmiðlum á dögunum vakti mikla athygli. Í henni fjallaði hann um óeirðirnar sem blossað hafa upp í Frakklandi og víðar undanfarnar vikur og varaði í því samhengi við skaðsemi óhefts straums innflytjenda, sérstaklega múslima. Með færslunni birti hann mynd sem hafði verið í dreifingu sem átti að sýna fullorðna, skeggjaða karlmenn á mótmælum. Myndin reyndist vera nokkurra ára gömul og frá Svíþjóð. Í gær tók Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ummælin sérstaklega fyrir á Alþingi. Hún segir málflutningur sem þessi ekki sæma kjörnum fulltrúum. „Við viljum ekki að vandamál í samfélaginu séu yfirfærð á heilu hópana, sama hvað hóparnir heita,“ sagði hún en hún ræddi málið í Reykjavík síðdegis í dag. Þurfi að vanda sig Elliði sagði í sama þætti á dögunum að það væri fjarri hans skoðun að dæma eigi fólk út frá kynferði, lit eða trú. Honum hafi orðið á að nefna heilan trúarhóp í þessu samhengi en að sama skapi þurfi að vera hægt að ræða erfið mál eins og samfélagslegar breytingar vegna örrar fjölgunar innflytjenda. „Ég er að segja það fullum fetum að ég hef áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá ákveðnum svæðum og er þar ekkert að setja alla innflytjendur undir sama hatt. Það eru svona sérstaklega þessi lönd í Norður-Afríku og Miðausturlöndum og fleira. Því miður þá er hluti þessa hóps, langt frá því allir, að finna öfgakenndri hugmyndafræði farveg innan Íslam og það er engum greiði gerður með því að standa ekki frammi fyrir þessu,“ sagði hann. Elliði sagðist alls ekki halda því fram að allir sem komi frá þessum svæðum séu eins. Né heldur að uppruni segi til um hegðun einstaklinga. Ása Berglind segist vel skilja að fólk hafi áhyggjur af hröðum samfélagsbreytingum og óstjórn á landamærunum á tíma eins og hún lýsir því. „Þetta eru ekki þannig vandamál í dag að við getum ekki ráðið við þau,“ segir hún þó. „Við þurfum að gæta jafnvægis í þessum málum og standa okkur miklu betur í að hjálpa fólki að aðlagast okkar samfélagi með því að læra tungumálið, kenna þeim á það hvernig okkar samfélag virkar. Ég var til dæmis í að heimsækja mitt kjördæmi núna nýlega og var þar í í Fjölbrautaskóla Austur-Skaftafellssýslu á Höfn. Ég var að sjá alveg frábæra fjarnámsáfanga sem ganga einmitt út á bara að kenna innflytjendum hvernig svona samfélag okkar virkar, hvernig við tökum þátt í ólíkum félögum, hvernig lögreglan, hún er hér til að aðstoða okkur, hún er ekki ógn. Og þetta eru svona atriði sem að auðvitað þarf að kenna fólki sem er að koma með ólíkan bakgrunn,“ segir Ása. „Við getum talað saman“ Taka þurfi umræðuna um þessi mál upp úr skotgröfum og tala um þætti í samfélaginu sem betur mættu fara. Á Alþingi á dögunum vísaði Ása Berglind í þessu samhengi til ákvæða almennra hegningarlaga sem banna opinbera smánun eða ógnir gagnvart hópi vegna trúarbragða eða þjóðernis. Hún segir það ekki sitt að meta hvort Elliði hafi gerst sekur um slíkt athæfi. Hún sé ekki lögfróð. „Mér finnst sko mjög leiðinlegt hvernig margir leyfa sér að tala á internetinu og ég sé þetta birtast mjög mikið til dæmis í kommentum við vídeó af ræðunni minni sem er hérna núna í umferð. Og ég skil ekki alveg þörfina á því af hverju menn þurfa og konur að ganga fram með svona ofsafengnum hætti í umræðunni sko. Við getum alveg talað saman. Það hefur alveg sýnt sig,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona.
Ölfus Trúmál Innflytjendamál Frakkland Mótmælaalda í Evrópu 2026 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Sjá meira