„Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Andri Broddason skrifar 23. október 2026 14:15 Michael Carrick virtist vera að svara Bruno Fernandes á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Bournemouth á sunnudaginn. Getty/Dan Mullan Michael Carrick, þjálfari Manchester United, hélt blaðamannafund í dag fyrir leik liðsins gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Þar lagði hann áherslu á gildi félagsins og að enginn leikmaður væri stærri en félagið. „
Okkur gekk vel í fimm mánuði þar sem ég var virkilega ánægður með hluti sem ég var að sjá og hvernig við spiluðum sem lið. Við höfum ekki staðið okkur vel undanfarið og miðvikudagurinn var slæmt kvöld sem særði okkur mikið,“ var það sem Carrick sagði í byrjun fundarins og benti á slæm úrslit félagsins í vikunni. Klippa: Blaðamannafundur Michael Carrick fyrir leikinn gegn Bournemouth Liðið fór í heimsókn til Como á miðvikudaginn þar sem Manchester United tapaði 4-1. Stuðningsmenn gagnrýndu spilamennskuna mikið enda er Como að spila í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti í sögu félagsins. Carrick tók við sem þjálfari liðsins í byrjun árs og gekk liðinu vel eftir að hann tók við því. Hann hefur samt ekki náð að halda góðu gengi áfram. „Ábyrgðin mín er að gefa stuðningsmönnum lið sem þeir geta verið stoltir af. Við höfum fjarlægst það í síðustu leikjum og ég er meðvitaður um það. Við þurfum að koma félaginu aftur á þann stað sem það var á í byrjun árs.“ Svarar gagnrýni fyrirliðans Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, gagnrýndi þjálfarateymi Manchester United eftir tapið gegn Como og virtist Carrick beina ýmsum orðum að Fernandes á blaðamannafundinum. „Ég er meðvitaður um einstaklingana sem gerðu félagið að því sem það er í dag. Ég sagði eftir leikinn að Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur. Stærra en ég, stærra en nokkur leikmannanna.“ Frá því að vera leikmaður félagsins þekkir Carrick gildi þess vel. Hann leggur mikla áherslu á að vera hógvær, sýna auðmýkt og vinna hart að sér. Hann nefnir nokkrar goðsagnir félagsins sem fóru eftir þessum gildum. „Ég er nógu heppinn að þekkja suma af þessum leikmönnum sjálfur, eins og Ryan Giggs sem er einn af þeim bestu sem hafa spilað fyrir þetta félag. Það var aldrei um Ryan Giggs, það var um Manchester United. Wayne Rooney er markahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins. Hans stærsta hlutverk var að fórna sér fyrir liðið og gera það sem hentaði Manchester United best hverju sinni.“ Blaðamannafundinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan en leikur Manchester United og Bournemouth verður sýndur í beinni útsendingu á sunnudaginn á Sýn Sport.
Enski boltinn Fótbolti Manchester United Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjá meira