Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. október 2026 14:20 Fjórir snillingar úr ábreiðubandinu NiceGuys voru að sjálfsögðu mættir á svæðið. Jón Gautur Umfangsmikil vitundarvakning á vegum Allir með hófst í gær með frumsýningarviðburði í Laugardalshöll. Þar fluttu ávörp Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ. Frumsýnd var sjónvarpsauglýsing auk viðtalsmyndbrota við forsvarsfólk íþróttahreyfingarinnar, þjálfara, iðkendur og foreldra.
Fjöldi barna, foreldra og þjálfara fer á kostum í auglýsingunni sem má sjá að neðan. Markmið vitundarvakningarinnar er að fjölga tækifærum fyrir börn með fötlun til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi í sínu nærumhverfi. Með vitundarvakningunni vilja Allir með hvetja íþróttafélög og þjálfara til að kynna sér það starf sem er í gangi víða um land og vekja athygli almennings á mikilvægi þess að öll börn fái tækifæri til að vera með. Í dag stundar aðeins eitt af hverjum tíu börnum með fötlun íþróttir. Rauður dregill í Laugardalshöll Á frumsýningarviðburðinum var lögð áhersla á mikilvægi þess að öll börn fái að taka þátt í íþróttastarfi á eigin forsendum og í sínu nærumhverfi. Valdimar Smári Gunnarsson var að sjálfsögðu mættur en íþróttastarf barna með hvers kyns fötlun hefur verið hugleikið honum í lengri tíma.Jón Gautur „Að sjálfsögðu skipta máli mannvirki, fjármagn og átak eins og þetta. En fyrst og fremst þurfum við, hvert og eitt okkar, að líta í eigin barm. Hvernig er mitt viðhorf? Hverju get ég breytt? Er eitthvað sem ég get lagt af mörkum til að auka tækifæri fyrir aðra? Breytum þessu samfélagi. Höfum það bara sjálfsagt og eðlilegt að allir taki þátt í íþróttum,“ sagði Sólný Ingibjörg Pálsdóttir, móðir iðkanda, í ræðu sinni á viðburðinum. „Allir með er mjög gott dæmi um það hvernig hægt er að vinna hlutina saman. Að verkefninu koma þrjú ráðuneyti, öll íþróttahreyfingin, sveitarfélögin og íþróttafélögin, allt svo að börn geti, á sínum forsendum og í sínu nærumhverfi, tekið þátt og verið hluti af liðinu,“ sagði Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ. Íþróttaiðkun fylgir almennt mikil vellíðan og sást bros á hverju andliti.Jón Gautur „Við þurfum að skapa rými fyrir öll börn. Til þess að tækifærin séu raunveruleg þá þarf fleira að koma til en gott boð um að mæta á staðinn. Aðstaðan þarf að vera aðgengileg, þjálfarar þurfa stuðning og fjölskyldur þurfa upplýsingar um það sem stendur til boða. Þar skiptir samstarfið öllu máli,“ sagði Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í ávarpi sínu. Viðburðurinn var vel sóttur.Jón Gautur Rannsóknir á hreyfingu íslenskra barna með þroskahömlun hafa sýnt að þau hreyfa sig minna eftir skóla en jafnaldrar þeirra. Sömu rannsóknir sýna einnig að fjarlægð heimili frá æfingaaðstöðu getur verið stór þröskuldur fyrir þátttöku. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að tryggja öllum börnum aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi í sínu nærumhverfi. Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, ávarpaði samkomuna.Jón Gautur Allir með er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og Íþróttasambands fatlaðra (ÍF), sem sett var á fót árið 2023 með stuðningi þriggja ráðuneyta. Stuðið var mikið og margir sem stigu á stokk.Jón Gautur Lagt við hlustir.Jón Gautur Ráðherrar og fulltrúar ÍSÍ á fremsta bekk og meðlimir Niceguys þar fyrir aftan.Jón Gautur Tveir stuðboltar sem kunna vel að meta íþróttir. Jón Gautur íris Elfa Þorkelsdóttir og Ragnhildur Skúladóttir klæddar í blátt.Jón Gautur Frá anddyri Laugardalshallar í gær.Jón Gautur
Málefni fatlaðs fólks Tengdar fréttir Stelpur með fötlun unnu í opnum flokki Mikill uppgangur hefur verið í borðtennis hérlendis undanfarin ár. Um helgina fór fram sögulega fjölmennt Íslandsmót unglinga á Selfossi. Athygli vakti að tvær ungar borðtenniskonur með fötlun unnu titil í flokki ófatlaðra. 1. mars 2026 19:33 Fótboltaiðkendur með fatlanir kíktu á landsliðsæfingu Strákarnir í íslenska fótboltalandsliðinu fengu góða heimsókn á fyrstu æfingu sína fyrir leikina mikilvægu sem framundan eru í undankeppni HM 2026. 6. október 2025 20:35 Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Breiðablik - FH | Meistararnir gegn buguðum silfurkonum ÍBV - Stjarnan | Geta tryggt sér bronsið Þróttur - Gri/Nja | Liðin sem léku um bikarinn Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Úrvalsdeildin í pílu hefst á morgun Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Keppir með brákað rifbein: Ógeðslega svekkt en vonar að adrenalínið hjálpi Girti niður um andstæðinginn Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Að lokum þurfum við að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýrland og frelsa Palestínu“ Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Sjá meira
Stelpur með fötlun unnu í opnum flokki Mikill uppgangur hefur verið í borðtennis hérlendis undanfarin ár. Um helgina fór fram sögulega fjölmennt Íslandsmót unglinga á Selfossi. Athygli vakti að tvær ungar borðtenniskonur með fötlun unnu titil í flokki ófatlaðra. 1. mars 2026 19:33
Fótboltaiðkendur með fatlanir kíktu á landsliðsæfingu Strákarnir í íslenska fótboltalandsliðinu fengu góða heimsókn á fyrstu æfingu sína fyrir leikina mikilvægu sem framundan eru í undankeppni HM 2026. 6. október 2025 20:35