Úrvalsdeildin í pílu hefst á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2026 16:01 Úrvalsdeildin í pílu verður vinsælli með hverju árinu. vísir/hulda margrét Eftir rúmlega ellefu mánaða bið er komið að því. Íslenska píluveislan er að hefjast á Bullseye.
Úrvalsdeildin hefur verið spiluð síðan 2014 og er þetta einn sterkasti hópurinn sem hefur tekið þátt í deildinni. Til að mynda þá eru þrír yngstu keppendur Ping Pong Úrvalsdeildarinnar 14, 15 og 16 ára. Framtíð íslensks pílukasts er sannarlega björt. Spennan hefur verið að magnast upp meðal íslenskra pílukastara og er víst að metmæting verði á úrvalsdeildina í ár. Ping Pong Úrvalsdeildin er spiluð á sjö laugardagskvöldum í beinni útsendingu á SÝN. Fyrsta kvöldið er á morgun, 24. október, og er haldið á Bullseye. Annað kvöldið verður síðan haldið á Hótel Selfossi. Í kjölfarið á Selfoss Open, 31. október. Síðan aftur á Bullseye 7. nóvember fyrir kvöld þrjú. Fjórða og síðasta kvöld riðlakeppninnar er síðan í Kvikunni í Grindavík 14. nóvember. Átta manna úrslitin verða 21. nóvember, undanúrslitin síðan 28. nóvember og úrslitakvöldið verður 5. desember. Öll síðustu þrjú kvöldin verða á Bullseye. Það vantar aldrei neitt upp á stuðið á pílukvöldunum.vísir/hulda margrét Í fyrsta leik kvöldsins á morgun er á milli ríkjandi Íslandsmeistara Harðar Guðjónssonar og Halla Egils, sem er fjórfaldur úrvalsdeildarmeistari, og eigandi hæsta meðaltals sem náðst hefur í leik í íslensku sjónvarpi. Í þessum leik má búast við mikilli spennu og er ógjörningur að spá fyrir hvor sigrar þennan leik. Í öðrum leik kvöldsins mætast þeir Vitor Charrua, þrefaldur úrvalsdeildarmeistari, og ungstirnið Kári Vagn Birkisson sem er núverandi íslandsmeistari U18. Kári Vagn komst í Ping Pong Úrvalsdeildina með því að vinna undankeppni á Akureyri í september. Hérna mætast reynslan og framtíðin. Ljóst er að Vitor þarf að hafa sig allan við ef hann ætlar sér að vinna fjórða Úrvalsdeildartitilinn. Þriðji leikurinn býður upp á mikla skemmtun. Þar mætast, annað ungstirni og yngsti keppandi deildarinnar, Axel James Wright 14 ára, og Arngrímur Anton (Toni) Ólafsson. En Toni og Pétur Rúðrik Guðmundsson voru fyrstir til að sigra leik á PDC sviði, í World Cup of Darts 2024. Þetta verður jafn og fjörugur leikur. Fjórði leikurinn verður síðan Árni Ágúst á móti Fidda, Friðriki Jakobssyni. Þarna mætast stálin stinn. Friðrik er elsti keppandi kvöldsins. Hann hefur unnið til gullverðlauna í tvímenningi á Norðurlandamótinu í pílukasti, með Guðjóni Haukssyni. Árni er þekktur fyrir að fögnin sín á sviði á meðan Friðrik er eins og ískalt stál og gefur bara í þegar hann lendir í pressu. Í þessum leik getur allt gerst. Járni og Stálið hafa báðir þann styrkleika að komast alla leið í deildinni. Í undanúrslitum mætast fyrst sigurvegari í fyrsta leik kvöldsins og sigurvegari þriðja leiksins. Síðan eru það sigurvegarar annars leiksins og sigurvegari fjórða leiksins sem keppa um að komast í úrslitaleikinn. Það verður spilað best af sjö leggjum, sá sem er fyrri til að vinna fjóra leggi vinnur leikinn.
Pílukast Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Sindri - Tindastóll | Þungt próf fyrir nýliðana Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Breiðablik - FH | Meistararnir gegn buguðum silfurkonum ÍBV - Stjarnan | Geta tryggt sér bronsið Þróttur - Gri/Nja | Liðin sem léku um bikarinn Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Úrvalsdeildin í pílu hefst á morgun Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Keppir með brákað rifbein: Ógeðslega svekkt en vonar að adrenalínið hjálpi Girti niður um andstæðinginn Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Að lokum þurfum við að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýrland og frelsa Palestínu“ Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Sjá meira