Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. október 2026 08:21 Thomas Markle hætti við að mæta í konunglegt brúðkaup dóttur sinnar Meghan Markle árið 2018 og bar fyrir sig heilsubrest. AP Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex og eiginkona Harry Bretaprins, sleit sambandi við föður sinn í fyrra og greindi honum frá því bæði hún og yfirvöld bæru vitneskju um að hann hefði misnotað ungar stúlkur. Hann fengi aldrei að umgangast banabörn sín framar.
The Sun og BBC greina frá. BBC hefur eftir heimildarmönnum sínum sem nákomnir væru Meghan að hún hefði tjáð föður sínum að samskiptum þeirra á milli væri endanlega lokið og að hann myndi aldrei hitta barnabörn sín. Meghan og Harry Bretaprins eiga tvö börn, Archie prins og Lillibet prinsessu. Greint hefur verið frá því að Thomas Markle eldri hafi verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir hertogaynjunnar. Sonurinn hafi uppgötvað efnið á heimili föðurins á Filippseyjum og tilkynnt það bæði til lögreglunnar og Alríkislögreglu Bandaríkjanna. Talið sé að bréfið hafi borist Thomas Markle, 82 ára föður hertogaynjunnar, er hann lá á sjúkrahúsi í Filippseyjum í fyrra. Meghan hafi ekki verið í sambandi við föður sinn frá árinu 2018 en téð bréf hafi endanlega markað endalok þeirra sambands. Lögðu hald á tölvu föðurins Meghan Markle, leikkona, hertogaynja af Sussex og eiginkona Harrys Bretaprins, brást við fréttaflutningnum með yfirlýsingu þar sem hún sagðist hafa frétt af ásökununum árið 2018. Þá hefur lögreglan í Lundúnum staðfest að hafa fengið bréf árið 2019 sem innihélt „ýmsar ásakanir“ á hendur Thomas Markle og að hertogahjónin hafi fengið að sjá bréfin en ekki aðrar lögreglustofnanir. Filippseysk yfirvöld hafa staðfest að þau rannsaki ásakanirnar á hendur föður Meghan og sögðu BBC á föstudag að sérstakur starfshópur gegn mansali og kynferðisofbeldi gegn börnum hefði málið til rannsóknar. Jafnframt hefði lögreglan lagt hald á tölvu Thomas Markle eldri.
Bretland Harry og Meghan Kóngafólk Filippseyjar Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira