Fótbolti

Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu

Andri Broddason skrifar
Harvey Elliot hefur ekki gengið vel síðan hann kom til Valencia.
Harvey Elliot hefur ekki gengið vel síðan hann kom til Valencia. Jose Breton/Pics Action/Getty Images

Harvey Elliot hefur átt erfiða tíma hjá Valencia að láni frá Liverpool en staða hans versnaði enn frekar í gær. Hann fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu í gærkvöldi þegar liðið tapaði 2-1 gegn Villarreal.

Elliot byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á þegar aðeins 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Eftir að Villarreal fékk aukaspyrnu virtist Elliot vera ósáttur með dóminn og tjáði dómaranum það.

Eftir samskiptin fékk Elliot tvö gul spjöld og var þar með rekinn af velli. Þegar Elliot fór af velli var staðan 1-1 en Valencia var manni fleiri eftir að Papa Gueye var rekinn af velli einnig með rautt, spjald.

Í uppbótartíma leiksins náði þó Villarreal að skora sigurmark leiksins og náði liðið að vinna leikinn 2-1. Slæm staða Elliots varð því enn verri hjá félaginu eftir að hann kostaði liðið mikilvæg stig í leiknum.

Elliot hefur enn ekki skorað fyrir Valencia en hann er að reyna að endurlífga ferilinn sinn eftir að hafa átt slæmt tímabil með Aston Villa á síðasta tímabili. Þegar tíu umferðir eru búnar er Valencia í næst síðasta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með aðeins sex stig. Aðeins Malaga er fyrir neðan liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×