Lífið

Stukku fram af kletti ofan í Goða­foss

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Til allrar hamingju virðast þeir koma óskaddaðir út úr þessu.
Til allrar hamingju virðast þeir koma óskaddaðir út úr þessu. Vísir

Tveir bandarískir unglingar sjást stökkva fram af kletti ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss í myndbandi sem vakið hefur athygli á samfélagsmiðlum. Þeir eru báðir klæddir hversdagsfötum og annar þeirra virðist um tíma lenda í vandræðum í straumnum.

Í texta við myndbandið segir að atvikið hafi átt sér stað 20. september síðastliðinn og að piltarnir hafi stokkið úr um 40 feta hæð, eða rúmlega tólf metrum.

Í upphafi upptökunnar sést annar piltanna standa á klettabrún skammt frá fossinum áður en hann stekkur ofan í vatnið. Hinn fylgir á eftir skömmu síðar.

Þeir sjást síðan synda um hylinn neðan við fossinn og loks í land hinum megin. Annar þeirra virtist hins vegar naumlega ná á bakkann enda straumþungt í ánni.

Upptakan virðist vera klippt saman úr myndskeiðum frá fleiri en einum sjónarhóli. Í nokkrum þeirra heyrast kínverskir ferðamenn hrópa: „我草!“ (wǒ cāo) upp yfir sig sem mætti þýða sem „andskotinn hafi það“.

Til allrar lukku virðast strákarnir sleppa báðir ómeiddir upp úr Skjálfandafljóti, bara blautir og kaldir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.