Fótbolti

Kín­verjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir

Valur Páll Eiríksson skrifar
Mbappé hefur reglulega verið kallaður einræðisherrann og samsettar myndir af honum og Maó koma reglulega upp í vinahópnum. Það gæti kostað hann sitt.
Mbappé hefur reglulega verið kallaður einræðisherrann og samsettar myndir af honum og Maó koma reglulega upp í vinahópnum. Það gæti kostað hann sitt. Samsett

Nokkur kínversk vörumerki hafa slitið samstarfi við franska knattspyrnumanninn Kylian Mbappé vegna ummæla hans um Mao Zedong, fyrrverandi leiðtoga Kína.

Mbappé á að hafa sagt í franska spjallþættinum The Bridge að það meme „sem fær mig mest til að hlæja ... er það þar sem er myndband af gaur, ég held að það sé kínverskur einræðisherra“. Á meðan hann talar birtist meme þar sem andliti hans hefur verið skeytt inn á mynd sem líkist Mao.

„Ég nota það alltaf með vinum mínum,“ bætir framherji Real Madrid við, í óstaðfestum myndskeiðum sem hafa gengið manna á milli á netinu.

Mbappé nefnir Mao ekki á nafn og upprunalega myndbandið er ekki lengur á YouTube-rás þáttarins, en skjáskot hafa breiðst út á kínverskum samfélagsmiðlum.

Risasamningar farnir og La Liga tekin úr sýningu

Kínverski knattspyrnuvefurinn Dongqiudi vakti athygli á ummælunum á mánudagskvöldið. Hörð viðbrögð fylgdu fljótt í kjölfarið á netinu og sumir notendur gagnrýndu Mbappé – sem er mjög vinsæll í Kína og með umfangsmikla auglýsingasamninga.

Kínverska utanríkisráðuneytið hefur blandað sér í málið, en talsmaður þess, Lin Jian, sagði: „Við höfum tekið eftir viðkomandi fréttum. Orð og athafnir sem særa tilfinningar kínversku þjóðarinnar munu eðlilega mæta andstöðu allra hópa kínversks samfélags.“

Viðbrögðin hafa því ekki látið á sér standa en Mbappé hefur misst auglýsingasamninga við Mengniu, stærsta mjólkurframleiðanda Kína, drykkjarvörurisann Dongpeng og þá hefur kínverska ríkissjónvarpið CCTV eytt öllum myndskeiðum af Mbappé af vef sínum og mun hætta útsendingum frá spænsku úrvalsdeildinni, La Liga, hvar Mbappé leikur með Real Madrid.

Gagnrýni eða grín gagnvart Maó ekki léttvægt

Maó stofnaði kommúnískt Kína árið 1949 og ríkti í gegnum ólgusama áratugi á sjöunda og áttunda áratugnum. Tilraun hans til hraðrar iðnvæðingar, sem hann kallaði Stóra stökkið fram á við, leiddi til hungursneyðar sem kostaði tugi milljóna lífið.

Í kjölfarið kom menningarbyltingin: ofbeldisfull hreinsun á öllum sem taldir voru ógn við kommúnismann, þar á meðal kínverskum menntamönnum, landeigendum, listamönnum og oft keppinautum innan flokksins.

Andlát Maó árið 1976 markaði upphaf nýs tímabils í Kína, sem tók að opna dyr sínar fyrir alþjóðahagkerfinu.

Jafnvel þegar landið fjarlægðist stjórnarhætti Maós hélt Kommúnistaflokkur Kína áfram að hampa honum sem þjóðartákni sem arfleifð hans væri hafin yfir alla gagnrýni.

Einræðisherrann Mbappé

Mbappé hefur reglulega verið kallaður einræðisherrann heima fyrir vegna áhrifa sinna innan fótboltaheimsins. Hann höfðaði meðal annars mál gegn áhrifavaldi og eiganda kebabstaðar árið 2024 fyrir að nota nafn sitt við samloku á matseðli staðarins.

Viðurnefnið hefur einnig verið nýtt til fjölda meme-a á netinu, til að mynda þeim sem tengjast Maó Zedong.

Ousmane Dembélé, liðsfélagi Mbappé í franska landsliðinu, hefur tekið upp á því að kalla Mbappé Mobut sem vísar til Mobutu Sese Seko, sem var einræðisherra í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, þá Saír, í þrjá áratugi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×