Enski boltinn

Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði

Sindri Sverrisson skrifar
Hinn 16 ára Max Dowman gekk svekktur af velli eftir að rauða spjaldið fór á loft.
Hinn 16 ára Max Dowman gekk svekktur af velli eftir að rauða spjaldið fór á loft. Getty/Stuart MacFarlane

Enska D-deildarliðið Fleetwood Town kom öllum á óvart með því að slá út sjálfa Englandsmeistara Arsenal í kvöld og tryggja sér þar með sæti í 8-liða úrslitum deildabikarsins í fótbolta.

Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni eftir að staðan hafði verið jöfn að loknum 90 mínútum, 1-1.

Jay Lynch, markvörður Fleetwood, varði fjórðu spyrnu Arsenal, frá Bruno Guimaraes, og í kjölfarið tryggðu heimamenn sér sigur en þeir nýttu allar fimm spyrnur sínar.

Arsenal-menn voru fljótir að hverfa inn til búningsklefa, sársvekktir eftir þetta óvænta tap, en leikmenn og stuðningsmenn Fleetwood ærðust af fögnuði og glöddust saman úti um allan völl.

Í venjulegum leiktíma voru Arsenal-menn mun líklegri til að tryggja sér sigur. Aaron Loupalo-Bi kom þó heimamönnum yfir eftir 20 mínútna leik við gríðarlegan fögnuð á 5.300 manna leikvangi Fleetwood sem heitir einmitt Highbury, rétt eins og gamli heimavöllur Arsenal.

Arsenal stillti upp hálfgerðu varaliði en þó með Kai Havertz, Viktor Gyökeres og Myles Lewis-Skelly inná. 

Martin Ödegaard og Ben White komu svo inná í upphafi seinni hálfleiks og Ödegaard hressti mjög upp á sóknarleik Arsenal. Gyökeres jafnaði svo metin á 50. mínútu af miklu harðfylgi og eftir það óðu Arsenal-menn, sér í lagi Havertz og Lewis-Skelly, í færum sem þeim tókst ekki að nýta.

Arsenal-menn voru svo manni færri síðustu fimm mínútur leiksins eftir að hinn 16 ára Max Dowman missti stjórn á sér í augnablik og uppskar rautt spjald. 

Dowman hafði verið með boltann úti við hliðarlínu í baráttu við leikmenn Fleetwood þegar Harrison Neal náði boltanum með glæfralegri tæklingu. Dowman svaraði fyrir sig með því að ýta öðru hnénu í Neal og það dugði til að rauða spjaldið færi á endanum á loft eftir mikil læti á milli leikmanna.

Manni færri komust gestirnir hins vegar í algjört dauðafæri þegar Ben White fékk boltann við fjærstöng, aleinn, en skot hans var varið af Jay Lynch og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni eins og fyrr segir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×