Skoðun

Við skorum á ríkis­stjórnina að standa við fyrir­heitin og tryggja fram­tíð Skip­holts 37

Hópur listafólks skrifar

Opið bréf um fjárfestingu í vinnustofum og menningarlegum innviðum til framtíðar.

Til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra og Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Í Myndlistarstefnu til ársins 2030 er lögð áhersla á að efla íslenska myndlist, styrkja starfsumhverfi myndlistarfólks og byggja upp þá innviði sem nauðsynlegir eru til að myndlist geti þróast sem öflug atvinnugrein og mikilvægur hluti íslensks menningarlífs. Til þess að sú framtíðarsýn verði að veruleika þarf að tryggja myndlistarfólki aðgang að boðlegu vinnustofuhúsnæði.

Við, listafólkið sem leigir vinnustofur í Skipholti 37, skorum á ríkisstjórn Íslands að endurskoða fyrirhugaða sölu hússins og standa við fyrirheit um uppbyggingu vinnustofuhúsnæðis til lengri tíma. Við krefjumst þess að ríkið fjárfesti í nauðsynlegum endurbótum og tryggi framtíð hússins sem viðunandi og heilnæms vinnustofuhúsnæðis með langtímaleigusamningi við Samband íslenskra myndlistarmanna, (SÍM).

Við beinum þessari áskorun sérstaklega til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem fer með málefni myndlistar og menningarstefnu; og fjármála- og efnahagsráðherra, sem fer með eignamál ríkisins. Mikilvægt er að ráðherrarnir vinni saman að lausn málsins og taki mið af gildi hússins fyrir íslenskt menningarlíf og ábyrgð stjórnvalda á uppbyggingu nauðsynlegra innviða fyrir listsköpun.

Málið nær þó langt út fyrir Skipholt 37 og hagsmuni þeirra listamanna sem þar hafa vinnustofur. Það snýst einnig um almennt starfsumhverfi myndlistarfólks á Íslandi og ábyrgð stjórnvalda á að tryggja viðværilega aðstöðu fyrir sjálfstæða listsköpun. Aðgangur að heilnæmu vinnustofuhúsnæði er grundvallarforsenda þess að myndlist geti þróast sem atvinnugrein og dafnað sem mikilvægur hluti íslensks menningarlífs. Stjórnvöld verða því að fylgja eigin menningarstefnu eftir með raunverulegum aðgerðum og fjárfestingu.

Fyrirheit um langtímahúsnæði sem ekki var staðið við

Þegar við fluttum inn í Skipholt 37 þann 18. nóvember 2025 var það í þeirri trú að þar væri verið að byggja upp varanlegt og betra starfsumhverfi fyrir myndlistarfólk. Fyrirheit höfðu verið gefin um leigu til allt að fimm ára og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hafði jafnframt veitt SÍM rekstrarstyrk og styrk til stofnkostnaðar til þriggja ára, samtals að fjárhæð 97,5 milljónir króna, sem ætlað var að styðja við fimm ára uppbyggingu starfseminnar. Þessar forsendur gáfu okkur ástæðu til að ætla að um væri að ræða markvissa uppbyggingu vinnustofuhúsnæðis til framtíðar.

Um árabil hefur skortur á viðunandi vinnustofuhúsnæði verið viðvarandi vandamál fyrir myndlistarfólk. Mörg okkar hafa þurft að starfa í húsnæði þar sem aðstæður voru ófullnægjandi og áhyggjur af raka, myglu og heilnæmi vinnuumhverfisins fylgdu starfseminni. Flutningurinn í Skipholt 37 fól því í sér von um breytingu til batnaðar: að fá loks heilnæma vinnuaðstöðu á viðráðanlegu leiguverði og geta byggt upp starfsemi okkar til lengri tíma.

Fyrstu sex mánuðirnir einkenndust hins vegar af mikilli röskun og óvissu. Framkvæmdir stóðu yfir, veggir voru rifnir og reistir og við þurftum að starfa við tilheyrandi hávaða, ryk og óþægindi. Húsnæðinu var jafnframt lokað tímabundið vegna athugasemda eldvarnareftirlitsins og sumar vinnustofur voru lokaðar lengur vegna nauðsynlegra breytinga, meðal annars á gluggum til að tryggja flóttaleiðir. Við gerum okkur fyllilega grein fyrir mikilvægi þess að öryggiskröfur séu uppfylltar. Það er hins vegar á ábyrgð eiganda húsnæðisins að sjá til þess að viðeigandi kröfur séu uppfylltar og nauðsynlegar úrbætur framkvæmdar.

Á þessu tímabili greiddum við áfram leigu þrátt fyrir takmarkað aðgengi að vinnustofunum og óvissu vegna framkvæmda og frágangs húsnæðisins. Við sýndum þolinmæði og sættum okkur við þessar aðstæður í þeirri trú að verið væri að byggja upp vinnustofur til framtíðar og að fyrirheit um langtímaleigu yrðu efnd. Þegar starfsemin virtist loks vera að komast í eðlilegt horf fengum við hins vegar tilkynningu um uppsögn. Húsið hafði verið sett á sölu og okkur gert að rýma vinnustofurnar með tveggja mánaða fyrirvara, eða fyrir 1. desember 2026. Þannig var horfið frá þeirri framtíðarsýn sem við höfðum gengið út frá innan við ári eftir að við fluttum inn, áður en við höfðum fengið raunhæft tækifæri til að njóta þeirrar starfsaðstöðu sem okkur hafði verið lofað.

Uppsögnin hefur víðtækar afleiðingar

Í Skipholti 37 hafa um 44 myndlistarmenn komið sér upp vinnustofum og starfsaðstöðu. Flutningur vinnustofu er bæði tímafrekur og kostnaðarsamur. Flytja þarf verkfæri, efni og listaverk og koma starfsaðstöðunni fyrir á nýjum stað. Slíkur flutningur raskar vinnuferlum og getur haft veruleg áhrif á sköpunarstarf. Staðan er enn alvarlegri fyrir þá 14 listamenn sem hafa ekki getað nýtt vinnustofur sínar yfirhöfuð, þar sem eldvarnareftirlitið hefur lokað fyrir aðgengi að þeim. Sumir þeirra hafa því ekki komist inn í vinnustofur sínar í hálft ár eða lengur. Mörg okkar eru nú að undirbúa stórar sýningar og önnur umfangsmikil verkefni, sem gerir óvissuna um framtíðarstarfsaðstöðu okkar enn erfiðari.

Raunhæfir valkostir eru fáir og biðlistar eftir vinnustofum langir. SÍM hefur reynt að bregðast við stöðunni með því að bjóða okkur að skoða húsnæði við Seljaveg og Digranesveg. Hvorugur kosturinn veitir þó þá tryggu og fyrirsjáanlegu langtímalausn sem við þurfum.

Við Seljaveg hafa mörg okkar áður starfað við aðstæður sem vöktu áhyggjur vegna raka, mögulegrar myglu og músagangs. Við Digranesveg eru framkvæmdir í næsta nágrenni, meðal annars sprengingar, og aðgengi er ófullnægjandi. Bæði úrræðin eru tímabundnar lausnir og leigusamningar ná aðeins til næstu tveggja ára. Þau veita því ekki þann fyrirsjáanleika sem þarf til að byggja upp starf okkar til lengri tíma. Við fögnum uppbyggingu nýrra vinnustofurýma á borð við Hlemmhaus og Hafnarhaus, sem eru mikilvæg viðbót við starfsemi SÍM. Þrátt fyrir þessa uppbyggingu er framboð vinnustofa enn takmarkað og biðlistar langir. Úrræðin henta auk þess ekki öllum og duga því ekki til að mæta þeirri þörf sem uppsögnin í Skipholti 37 skapar.

Skipholt 37 er fjárfesting í menningarlegum innviðum

Á Norðurlöndum gegna ríki og sveitarfélög mikilvægu hlutverki í uppbyggingu menningarlegra innviða og aðstöðu fyrir listsköpun. Ábyrgð á því að tryggja myndlistarfólki viðunandi vinnustofuhúsnæði getur ekki hvílt á fagfélögum listamanna einum. Þótt SÍM gegni mikilvægu hlutverki í rekstri og uppbyggingu vinnustofa kemur það ekki í stað ábyrgðar hins opinbera á að tryggja listafólki varanlega og viðunandi starfsaðstöðu.

Þörfin fyrir vinnustofur og rými til listsköpunar er mikil og hefur nýlega orðið enn sýnilegri þegar Reykjavíkurborg sagði upp 15 samningum um rými sem nýtt hafa verið fyrir menningarstarfsemi og skapandi greinar. Sú þróun undirstrikar mikilvægi þess að hið opinbera tryggi aðstöðu til listsköpunar til lengri tíma og vinni markvisst að uppbyggingu slíkra innviða.

Skipholt 37 er eign ríkisins og þar felst mikilvægt tækifæri til að bregðast við þessari brýnu þörf. Í stað þess að selja húsið skorum við því á ríkið að fjárfesta í nauðsynlegum endurbótum, meðal annars á brunavörnum og aðgengi, og tryggja áframhaldandi nýtingu þess sem vinnustofuhúsnæðis fyrir myndlistarfólk. Með þeirri fjárfestingu má skapa varanleg verðmæti fyrir íslenska myndlist og fylgja myndlistarstefnu ríkisins eftir í verki.

Aðgerðir til að tryggja framtíð Skipholts 37

Við skorum á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra að:

  1. Stöðva fyrirhugaða sölu Skipholts 37 og endurskoða ákvörðunina með það að markmiði að húsið verði áfram nýtt fyrir vinnustofur myndlistarfólks.
  2. Tryggja fjármagn til nauðsynlegra endurbóta svo húsnæðið uppfylli kröfur um öryggi, brunavarnir, aðgengi og heilnæmt starfsumhverfi.
  3. Gera 10 ára samning við SÍM um rekstur og nýtingu hússins til að tryggja stöðugleika, fyrirsjáanleika og langtímauppbyggingu vinnustofuaðstöðu.
  4. Kortleggja þörf fyrir vinnustofuhúsnæði og móta langtímastefnu. Gerð verði úttekt á framboði vinnustofa, eftirspurn og biðlistum. Á grundvelli hennar verði mótuð langtímastefna sem tryggir myndlistarfólki aðgang að heilnæmu og viðráðanlegu vinnustofuhúsnæði.

Við skorum á ráðherrana að taka sameiginlega ábyrgð á framtíð Skipholts 37 og hefja þegar í stað samtal við SÍM um langtímanýtingu hússins. Með nauðsynlegum endurbótum og tíu ára leigusamningi getur ríkið tryggt að Skipholt 37 verði áfram lifandi menningarhús og mikilvægur vettvangur myndlistarsköpunar. Með því að tryggja framtíð Skipholts 37 geta stjórnvöld sýnt í verki að þau standi með listafólki og tryggi íslenskri myndlist nauðsynlega innviði til framtíðar. Það er jafnframt mikilvægt skref í átt að því að fylgja menningarstefnu eftir með raunverulegum aðgerðum.

Virðingarfyllst,

Listafólk sem leigir vinnustofur í Skipholti 37

  • Anna Hallin
  • Árni Valur Axfjörð
  • Björk Viggósdóttir
  • Didda Leaman
  • Dýrfinna Benita Basalan
  • Eirún Sigurðardóttir
  • Eygló Harðardóttir
  • Guðrún Erla Geirsdóttir
  • Guðrún Oyahals
  • Harpa Björnsdóttir
  • Harpa Másdóttir
  • Helga G. Óskarsdóttir
  • Hjörtur Matthías Skúlason
  • Hye J. Park
  • Ingibjörg Torfadóttir
  • Izabela Hadrian
  • Ívar Glói
  • Jón Sæmundur
  • Jóna Hlíf Halldórsdóttir
  • Jóní Jónsdóttir
  • Julie Sjöfn Gasiglia
  • Kailash Youze Artwork
  • Kristín Geirsdóttir
  • Lind Völundardóttir
  • Maria-Magdalena Ianchis
  • Olga Bergman
  • Rakel McMahon
  • Ragnheiður Káradóttir
  • Ragnheiður Ragnarsdóttir
  • Sigrún Harðardóttir
  • Sigrún Hlín Sigurðardóttir
  • Steinunn Önnudóttir
  • Steingrímur Eyfjörð
  • Sólveig Dagmar Þórisdóttir
  • Þórunn Birna Guðmundsdóttir



Skoðun

Sjá meira


×