„Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Valur Páll Eiríksson skrifar 30. október 2026 08:30 Hólmar Örn Eyjólfsson er hættur að leika fótbolta. Hann skilur við Val eftir erfitt tímabil. Vísir/Sigurjón Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals, lagði knattspyrnuskóna á hilluna um síðustu helgi 36 ára gamall. Ferlinum lauk með erfiðu tímabili með Val. Hólmar segir stundum erfitt að kyngja ákvörðunum hæstráðenda, til að mynda að hans bestu vinir í liðinu hafi verið sendir burt á einu bretti. „
Þetta var ekki einfalt ár. Við náttúrulega komum inn með aðeins öðruvísi hóp heldur en ég hef farið inn í mót með hjá Val bara síðan ég kom heim. Við höfum alltaf verið með allavega í minnsta lagi topp 3 best mannaða hópinn. Það hefur verið bara virkilega raunverulegur möguleiki á að vinna titilinn. Það var aðeins öðruvísi ár að þú sást að það var ekki jafn mikil reynsla og því fór líka bara sem fór sko,“ segir Hólmar Örn. Klippa: Hólmar Örn ræðir vandræði Vals Félagið tekið í gegn Valsmenn hafa dregið saman seglin fjárhagslega síðustu misseri og stórar ákvarðanir voru teknar fyrir ári síðan þegar Gareth Owen var ráðinn til að hafa yfirumsjón með fótboltamálum hjá félaginu. Hermann Hreiðarsson tók við sem aðalþjálfari og Chris Brazell var honum til aðstoðar. Ekki var mjög langt liðið á tímabilið þegar Hermann var fokinn, Halldór Árnason ráðinn til að taka við eftir það og ákveðið að Chris Brazell myndi klára það sem þjálfari til bráðabirgða. Árangurinn var slakur og Valur var í neðri hluta deildarinnar í fyrsta sinn eftir að skipting hennar var tekin upp. Tímabilinu lauk með 6-0 tapi fyrir Stjörnunni sem dugði Garðbæingum til að taka sjöunda sætið af Valsmönnum. Ári eftir umbyltinguna sem átti að eiga sér stað eru allir þrír sem áttu að leiða hana; Owen, Brazell og Hermann, horfnir á braut og ný stefna tekin. Hvernig er það fyrir þig sem fyrirliða að taka einhverjum ákvörðunum ofan frá sem þú ert ekki endilega sammála? „Ég hef svona reynt að taka þann pól alltaf í hæðina á mínum ferli, með einhverjar svona ákvarðanir, að ég er bara leikmaður. Ég mæti á æfingu og spila og reyni að skipta mér sem minnst og hafa sem minnsta skoðun á þessum hlutum,“ segir Hólmar. „En auðvitað er þarna á stuttum tíma mínir nánustu vinir farnir úr klúbbnum og það var leiðinlegt. Ég naut hverrar mínútu að vera í Val og mæta á morgnana og hitta strákana en þetta var aðeins öðruvísi,“ „Þá voru bara aðrir menn sem að fá þá aðeins meira pláss og stíga aðeins meira upp. En það er stundum erfitt að sitja hjá og horfa á eitthvað gerast sem maður er ekki alveg sammála,“ segir Hólmar. Glatað að hafa ekki skilað titli Það hefur nú verið talað um peningana sem hafa farið í þetta lið. Þú nefnir þessa vini þína sem fara, Sigurður Egill, Aron Jó og fleiri. Þetta eru menn sem eru ekkert að gera þetta frítt. Þetta hefur verið með dýrari leikmannahópum landsins síðustu ár. Átti ekki árangurinn að vera betri miðað við peninginn sem var lagður í þetta? „Jú. Allavega fyrstu fjögur tímabilin mín. Það er alveg glatað að við höfum ekki náð að skila einum titli í hús. En svo þetta tímabil núna, ef við hefðum spilað á pari miðað við það sem að mér finnst liðið okkar hafa haft fram að færa í fyrra þá hefðum við átt að vera ofar. En þetta var ekki einhvers konar sjokk að við enduðum í þessari stöðu sem við enduðum í ár, þegar maður lítur á undirbúningstímabilið okkar og svona,“ segir Hólmar. Þónokkrir eldri leikmenn hurfu á braut á Hlíðarenda.Vísir/Diego Af hverju? Hvað er búið að vera að? „Í fyrsta lagi erum við ekki með nógu breiðan hóp. Það hefur oft verið þannig að fyrir leik eru bara tólf eða þrettán leikmenn sem eru klárir og þannig að liðið nánast velur sig sjálft. Á meðan, eins og til dæmis fyrsta árið sem ég kem í Val að þá erum við með 20 til 24 leikmenn, nánast tvo í hverri stöðu og samkeppni um allar stöður. Það býr til æfingakúltúr sem er miklu heilbrigðari. Við vorum ekki með jafn breiðan, sterkan og reynslumikinn hóp í ár og við höfum verið með oft áður,“ segir Hólmar. Pæling sem er hæpið að gangi upp Það er ákveðin framtíðarsýn sem er lögð, sem ekki betur en þetta á fyrsta ári. Nú stöndum við hér ári seinna og það eru allir farnir út úr þessari framtíðarsýn. Hvernig slær þetta þig? „Þeir hafa náttúrulega bara tekið einhverja ákvörðun þarna út frá einhverri sjálfbærni að reyna að selja fleiri út og búa til fleiri söluvörur. Auðvitað skilur maður það. Hugmyndin sjálf er góð en ég held bara því miður hérna á Íslandi að það sé rosa erfitt að ætla að fara í svona „Moneyball“ pælingar, sérstaklega þegar það er ekki nóg að koma upp úr yngri flokkunum hjá þér,“ segir Hólmar en Valur spilaði fæstum uppöldum leikmönnum í Bestu deild karla í sumar. Uppaldir leikmenn spiluðu aðeins eitt prósent mínútna í deildinni hjá Val. „Ef þú horfir til dæmis á Blika sem eru nú búnir að vera þekktir fyrir þetta, þeir geta nánast stólað á það að á hverju ári að það skili sér upp allavega einn eða tveir sem eru bara vel nothæfir og geta spilað fyrir meistaraflokkinn og geta síðan verið seldir út. Þar af leiðandi færðu tekjur af þeim og ef þeir standa sig vel þá ertu þarna kominn með tekjustraum í 12 ár mögulega. Svo gerist það aftur og næsta ár aftur og árið eftir það,“ „Þeir hafa ætlað að byggja upp einhvern svona kúltúr sem ég skil vel. Auðvitað er það þannig á Íslandi að það eru engar brjálaðar tekjur sem kom inn í klúbbana nema bara í gegnum Evrópukeppni. Þannig að þeir hafa ætlað að taka þessa stefnu og hún kannski missti aðeins marks í ár,“ „En vonandi bara læra þeir af reynslunni og framkvæma þetta betur ef þeir ætla að halda áfram með þetta. Ég geri ráð fyrir að þeir ætli áfram að keyra á þetta og vonandi læra þeir af þessu tímabili og gera þetta aðeins betur næst,“ segir Hólmar. Áskorun fyrir Halldór Halldóri Árnasyni er nú ætlað að rétta skútuna af en hann tekur formlega við Val um mánaðarmótin. Ljóst er að stór áskorun blasir fyrir honum að breyta til eftir erfitt tímabil. En hver er helsta áskorunin sem Halldór stendur frammi fyrir? „Ég held að hann þurfi að taka gott frí núna hjá strákunum og svo get ég alveg ímyndað mér að það verði mikil endurnýjun þarna. Þeir þurfa örugglega að fá inn einhverja fimm, sex leikmenn, myndi ég giska á allavega. Það þarf að velja þá vel. Þú ert að fá einhverja karaktera þarna inn sem að smita út frá sér ákveðinni vinnusemi og jákvæðni líka. Það þarf svolítið að láta menn gleyma þessu tímabili sem átti sér stað núna og að það sé bara nýtt verkefni fram undan og það verði tæklað eins og menn sko,“ segir Hólmar. Er ekkert erfitt fyrir þig að kyngja því að, þú veist, slútta þessu á svona tímabili og síðan í ofanálag einhvern veginn á einhverri 6-0 hérna slátrun í lokaleik? „Jú, jú, í fullkomnum heimi hefði maður viljað hafa þetta einhvern veginn öðruvísi sko. Að þetta endi svona, er samt ekkert stórmál fyrir mér. Maður er ekki mjög svona sentimental í þessum hlutum. En ef ég fengi að velja þá hefðum við orðið Íslands- og bikarmeistarar og ég hefði skorað þrennu í báðum úrslitaleikjunum En svona er þetta bara og það breytir engu í stóru myndinni fyrir mig.“ Í spilaranum má sjá viðtalið við Hólmar þar sem hann ræðir Valsmenn. Lengri útgáfa af viðtalinu kemur á Vísi á morgun.
Valur Besta deild karla Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira