Skoðun

Á ykkar vakt!

Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Nýafstaðnar kosningar í Ísrael sýna að það er ekki neinna stefnubreytinga að vænta þótt önnur ríkisstjórn taki við. Níu af hverjum tíu atkvæðum voru greidd flokkum sem styðja síonismann, hernámið, aðskilnaðarstefnuna, þjóðernishreinsanir á Vesturbakkanum og þjóðarmorðið á Gaza.

Kosningarnar sýna að þjóðarmorðið er „lýðræðislegt“ val, þ.e. mikill meirihluti kjósenda styður áframhaldandi kúgun og morð sem hafa það markmið að eyða lífsskilyrðum sjö milljón Palestínumanna sem eru undir hæl síonistaríkisins.

RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS VEIT - ALÞINGISMENN VITA

Ísraelsher fremur þjóðarmorð í Palestínu. Því getur enginn mótmælt, við vitum þetta öll, allur heimurinn horfir á. Ríkisstjórn Íslands horfir á, ríkisstjórn Íslands veit að ríki sem Ísland viðheldur stjórnmálasambandi við fremur þjóðarmorð. Alþingismenn vita að Ísrael fremur þjóðarmorð. Íslendingar vita að Ísland stundar viðskipti og viðheldur stjórnmálasambandi við þjóð sem fremur þjóðarmorð.

ALDREI AFTUR?

Þjóðarmorð er ekki lagatæknilegt fyrirbrigði. Þjóðarmorð er glæpur og fyrir glæpi á að refsa. Ekkert ríki refsar Ísrael sem fremur þjóðarmorð.

Hundrað fimmtíu og fjögur ríki hafa undiritað Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð frá 1948. Ísland er eitt þeirra. Ríki Evrópu hafa tekið sáttmálann í sín lög, einnig Ísland.

Hugtakið þjóðarmorð (e. Genocide) heitir hópmorð í íslenskum lögum og varð til í eftirleik heimstyrjaldarinnar sem lauk 1945. „Lög um refsingar fyrir hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði“ tóku gildi hér á landi 2018. Skilgreining laganna á hópmorði er sú sama og er í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð frá 1948.

Sáttmálinn um þjóðarmorð var fyrsti mannréttindasáttmálinn sem Allsherjarþingi SÞ samþykkti og var yfirlýsing alþjóða samfélagsins um að voðaverk heimsstyrjaldarinnar myndu „aldrei aftur“ líðast.

SKYLDUR ÞJÓÐA

Samkvæmt þjóðarétti og Sáttmála SÞ bera öll ríki ríka lagalega skyldu til aðfyrirbyggja og refsa fyrir þjóðarmorð. Þessi skylda hvílir á ríkjum óháð því hvort þau hafi staðfest sáttmálann sjálfan, þar sem bannið við þjóðarmorði og skyldan til að hindra það telst til æðri reglna þjóðaréttar (jus cogens) sem skuldbindur öll ríki heims (erga omnes).

Þessi skylda krefst þess að ríki, ein sér eða í samstarfi við önnur ríki, beiti öllum tiltækum og lögmætum ráðum sem þau hafa yfir að ráða svo sem diplómatískum þrýstingi, efnahagslegum þvingunum og einangrun á sviði menningar, vísindasamstarfs og íþrótta gegn hinu brotlega ríki.

ÞAÐ ER ÞJÓÐARMORÐ OG ÞJÓÐARMORÐ SKAL ÞAÐ HEITA

Eftir tveggja ára rannsóknir birti óháð nefnd Sameinuðu þjóðanna skýrslu í september 2025 þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að aðgerðir Ísraels á Gaza uppfylltu skilyrði þjóðarmorðs.

Alþjóðasamtök þjóðarmorðsfræðimanna (International Association of Genocide Scholars) hafa ályktað að stefna og hernaðaraðgerðir Ísraels á svæðinu uppfylli skilyrði þjóðarmorðs samkvæmt sáttmála SÞ.

Amnesty International gaf út skýrslu í desember 2024 þar sem samtökin komust að þeirri niðurstöðu að Ísrael hefði framið þjóðarmorð gegn Palestínumönnum á Gaza.

Meðal samtaka sem hafa lýst stríði Ísraels gegn Palestínu sem þjóðarmorði eru: Lemkin-stofnunin til varnar þjóðarmorði (heitir í höfuðið á manninum sem mótaði hugtakið genocide), Genocide Watch, Human Rights Watch, B´T Selem og Læknar án landamæra.

Á YKKAR VAKT!

Alþjóðadómstóllinn í Haag (ICJ) hefur úrskurðað hernám Ísraels í Palestínu ólöglegt og að þeim beri að yfirgefa svæðin og greiða skaðabætur. Dómstóllinn hefur einnig lýst því að mögulega eigi þjóðarmorð sér stað með aðgerðum Ísraela og að þeim beri að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir aðgerðir sem falla undir þjóðarmorðssáttmálann, tryggja að herinn fremji ekki slík brot, refsa þeim sem hvetja opinberlega til þjóðarmorðs og hleypa neyðaraðstoð óhindrað inn á svæðið. Ísraelar hafa hunsað fyrirskipanir dómstólsins og hert aðgerðir.

Nú liggur fyrir að dómstóllinn mun ekki birta dómsorð sitt fyrr en árið 2030.

Hver verður staðan þá - hversu langt mun Ísrael ná í þjóðarmorðinu meðan íslensk stjórnvöld gera ekkert annað en bíða eftir þessum úrskurði?

Munu stríðsglæpamaðurinn Netanyahu eða barnamorðinginn Eisenkot fá skotleyfi frá ríkisstjórn Íslands og Alþingi og halda áfram morðum í Gaza, á Vesturbakkanum, í Líbanon og Sýrlandi?

Þetta er að gerast á vakt stjórnmálamannanna sem sitja á Alþingi - enginn er undanskilinn og skömmin er allra!

Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael!

Höfundur er formaður Félagsins Ísland - Palestína




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×