Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar 30. október 2026 09:16 Nýlega fór Lyfjaeftirlit Íslands að ræða peptíð sérstaklega á fræðslufyrirlestrum þess vítt og breitt, enda hefur framboð og eftirspurn eftir peptíðum vaxið gríðarlega á einungis nokkrum misserum. Einnig er aðgengi að þessum efnum almennt auðvelt.Samfélagsmiðlar hafa gegnt stærsta hlutverkinu í markaðssetningu peptíða, og af henni að dæma mætti almennt ætla að verið sé að efnavæða heilsu fólks. Reynt er að telja fólki trú um að það sé ekki að “maxa” ákveðna þætti í lífi sínu eins og útlit, svefn og langlífi, nema það setji utanaðkomandi (og oft óþekkt) efni í líkama sinn.Flest fólk er ekki endilega áhrifagjarnt á slíka sölumennsku þó algóryþminn á samfélagsmiðlum sé oft slægur. Á sama tíma hefur verið sýnt fram á að (mikil) notkun samfélagsmiðla getur haft neikvæð áhrif á eigin líkamsímynd, og fer fólk þá stundum að leita annarra lausna en finnast í hreinni náttúru og fjölbreyttri fæðu. Þá verða auglýstar skyndilausnir oft ofan á, og freistnivandi skapast.Það versta er að markaðssetningunni er ekki síst beint að ungu fólki og börnum og óformlegar rannsóknir okkar benda til þess að mjög stór hluti barna frá 13-14 ára aldri, sérstaklega drengja, hefur séð efni á samfélagsmiðlum sem talar vel um áhrif ólöglegra peptíða. Sum peptíð eru bönnuð í íþróttum Ekki nærri öll notkun peptíða flokkast sem lyfjamisnotkun í íþróttalegum skilningi, jafnvel þó efnin séu hvergi samþykkt og framleidd án gæðaeftirlits, en mörg þeirra eru þó bönnuð. Meðal peptíða og skyldra efna sem eru bönnuð í íþróttum má nefna: BPC-157: Markaðssett sem efni sem geti flýtt fyrir endurheimt (gróanda vöðva, sina og liðbanda). TB-500: Markaðssett til að stuðla að endurheimt og viðgerð vefja. CJC-1295 og ipamorelin: Efni sem hafa áhrif á losun vaxtarhormóns. AOD-9604: Brot úr vaxtarhormóni sem hefur meðal annars verið markaðssett til fitubrennslu. MOTS-c: Tilraunapeptíð sem tengist rannsóknum á efnaskiptum og orkustjórnun frumna. Þessi efni falla undir mismunandi flokka bannlista World Anti-Doping Agency (WADA) og eru bönnuð bæði innan og utan keppni í íþróttum.Óvissa um virkni og öryggi Á vísindaráðstefnu bandarísku lyfjaeftirlitsstofnunarinnar (USADA) nú nýlega var sérstaklega fjallað um ört vaxandi markað fyrir peptíð og önnur tilraunaefni. Þar kom meðal annars fram og annars staðar að vinsældir margra þessara efna væru að miklu leyti drifnar áfram af samfélagsmiðlum og markaðssetningu, fremur en traustum vísindalegum rannsóknum. Þrátt fyrir fullyrðingar um aukinn vöðvavöxt, hraðari endurheimt og bættan árangur skortir enn fullnægjandi rannsóknir á virkni og langtímaöryggi margra þessara efna. Peptíð geta innihaldið önnur efni en auglýst er Annað vandamál er óvissa um raunverulegt innihald þeirra peptíða (og annarra efna) sem seldar eru á netinu. Í rannsóknum sem kynntar voru á ráðstefnunni kom fram að vörur sem markaðssettar voru undir heitinu TB-500 innihéldu í nokkrum tilvikum önnur peptíð en auglýst var, meðal annars thymosin beta-4, sem er einnig bannað í íþróttum innan og utan keppni. Þetta undirstrikar áhættuna sem fylgir kaupum á ólöglegum eða ósamþykktum peptíðum, enda geta neytendur ekki gengið að því vísu að innihald þeirra sé í samræmi við merkingar. Ábyrgð íþróttafólks Samkvæmt lyfjareglum í íþróttum ber íþróttafólk sjálft ábyrgð á þeim efnum sem finnast í líkama þess. Það á einnig við þótt efni sé keypt löglega, ráðlagt af öðrum eða markaðssett sem heilsueflandi vara. Mikilvægt er að hafa í huga að þótt tiltekið peptíð sé ekki sérstaklega nafngreint á bannlista WADA getur það samt verið bannað, meðal annars ef um er að ræða ósamþykkt lyf eða efni sem fellur undir annan flokk bannlistans. Bannlista WADA má finna á heimasíðu Lyfjaeftirlits Íslands, lyfjaeftirlit.is, sem og á eftirfarandi slóð: wada-ama.org/en/prohibited-list Höfundur er framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands / Anti-Doping Iceland Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar