Skoðun

Borgarnesréttlætið – saga úr um­ferðinni

Guðmundur H Guðjónsson skrifar

Málavextir eru þeir að ég var að aka norður Vesturlandsveg, í samfloti við bróður sem ók á undan mér og vorum við komnir á mót við Álfhólsskóg norðan Akrafjalls þegar bróðir minn ók fram úr svartri bifreið, sem var á um 75 til 85 km/klst og ég fylgdi á eftir.

Þessi framúrakstur var með öllu venjulegur og ekkert kom upp á sem hættulegt gat talist. Eftir að ég var kominn inn á minn vegarhelming mætti ég fyrsta bílnum sem kom á móti en svo veit ég ekki fyrr en bíllinn þar á eftir kveikir á bláum viðvörunarljósum en þar var þá lögreglan á ferðinni.

Bróðir minn sem á undan fór varð einnig var við ljós lögreglubílsins og taldi að verið væri að stöðva sig fyrir að hafa ekið of hratt þegar hann fór fram úr hægfara bílnum. Stöðvaði hann því við Akranesafleggjarann og ég fyrir aftan hann og síðan kom lögreglubíllinn og stöðvaði fyrir aftan okkur.

Í lögreglubílnum var lögreglumaður og lögreglukona og var maðurinn ökumaður lögreglubifreiðarinnar en lögreglukonan sat í farþegasæti og hafði sig ekki í frammi. Í ljós kom að lögreglumaðurinn vildi ekkert við bróður minn tala en bar upp á mig að ég hefði framið umferðarlagabrot með því að aka óvarlega og skapa hættu við framúrakstur.

Mótmælti ég því og benti á vitni sem bæði var farþegi í mínum bíl og bróðir minn sem ók á undan og fylgdist með framúrakstri mínum í baksýnisspeglinum og sá ekkert athugavert á ferðinni. Þá sagði ég við lögreglumanninn að hann hefði ekki getað séð þetta með óyggjandi hætti enda bíll á milli okkar og hans. Fjarlægðin var of mikil fyrir hann til að sjá hversu langt bil var á milli mín og bílsins sem ég var að mæta.

Lögreglumaðurinn gerði ekkert með mín andmæli og hafði engan áhuga á þessum vitnum og kvaðst skrifa um málið lögregluskýrslu og var allur hinn valdsmannlegasti í allri framgöngu og bar sig eins og hann hefði gómað stórhættulegan ökumann.

Nokkru síðar fékk ég sektarboð frá Lögreglustjóranum á Vesturlandi og jafnframt rukkun upp á 20.000 kr. í minn heimabanka og tilkynningu um einn svartan punkt í ökuferilskrá. Jafnframt kom fram að ef ég greiddi innan 4 vikna fengi ég 20% lækkun á sektina.

Þótt sektin væri ekki há fannst mér súrt að kyngja þessu þar sem ég var sannfærður um að ég hefði ekki á nokkurn hátt framið refsivert umferðarlagabrot með þessum framúrakstri. Þá tók ég eftir því að í sektarboðinu var ég sagður hafa verið á bíl bróður míns en ekki mínum eigin sem mér fannst bera vitni um óvönduð og hroðvirknisleg vinnubrögð. Fór ég því fram á að fá senda lögregluskýrsluna til að sjá hvernig hægt hefði verið að búa til umferðarlagabrot úr þessu máli. Kom hún að lokum eftir nokkrar ítrekanir og einnig var myndband sent á lögreglustöð svo ég gæti séð upptöku af atvikinu sem lögreglubifreiðin tók upp. Í skýrslunni segir lögreglumaðurinn:


“Ég var við almenn löggæslustörf á Vesturlandsvegi á lögreglubifreiðinni XXX ásamt XXX. Þar sem við ókum Vesturlandsveginn við Álfhólsskóg til suðausturs sáum við hvar bifreiðinni XXX var ekið á móti lögreglubifreiðinni á öfugum vegahelmingi, með þeim afleiðingum að skýrsluritari þurfti að snögghemla til að varna árekstri.

Gaf ég ökumanni því merki að stöðva aksturinn með bláum forgangsakstursljósum  lögreglubifreiðarinnar, sem hann gerði…..“

XXXXX__Lögm. no____H1477 og 2467


Skýrslan var kolröng. Ég ók aldrei beint á móti lögreglubílnum svo hann var ekki að forða árekstri við mig. Þá sýndi myndbandið glögglega að ávallt var bíll á milli mín og lögreglubílsins meðan á framúrakstrinum stóð og lögreglumaðurinn gat því ekki þurft að nauðhemla til að forðast árekstur við mig.

Ég vildi illa una þessu og reyndi því að hringja í lögreglumanninn sem sér um sektarboðun hjá Lögreglustjóranum á Vesturlandi sem hafði sent mér lögregluskýrsluna og myndbandið.

Þar sem viðkomandi svaraði mér ekki í síma sendi ég honum eftirfarandi bréf:

„Sæll XXXX, en það var hann sem sendi mér myndbandið og skýrsluna.

Hef verið að reyna að ná í þig í síma nú í dag út af skýrslunni sem þú sendir mér og á að lýsa framúrakstri mínum á Vesturlandsvegi við Álfhólsskóg þann 28.05.2026, kl. 13:05.

Erindið er að segja þér frá því að skýrslan er alröng í frásögn sinni um það sem í raun gerðist.

Þegar ég ók fram úr svartri bifreið á eftir bróður mínum (XXXX) kom á móti mér sendibifreið sem enn var í langri fjarlægð og mættumst við án nokkurra truflana, en þegar ég er kominn vel inn á minn vegarhelming þá sé ég lögreglubíl kveikja á bláum ljósum og þá enn í minnst 100-150 metra fjarlægð frá mér. Þessa atburðarás sýnir myndbandið mjög vel og þeir sem sáu það með mér eru því sammála.

Að halda því fram að lögreglubifreiðin hafi þurft að nauðhemla vegna mín eru alger ósannindi, enda bifreið á milli mín og lögreglunnar.

Að sætta sig við ákæru að ósekju er fyrir mig, sem frjálsan borgara í þessu landi og með óflekkaðan ökuferil í 69 ár, alveg óþolandi og ærumeiðandi.

Nú vil ég biðja þig, XXXX að benda mér á hvert ég get farið með þetta mál í einhvers konar úrskurðarnefnd til að fara yfir skýrslu lögreglunnar til að fá hið rétta fram.“

Það er skemmst frá því að segja að viðkomandi svaraði ekki bréfinu.

Þess vegna fékk ég góðan lögmann til að kíkja með mér á myndbandið, sem var geymt á lögreglstöðinni, því það er leyndarmál og ég má ekki fá afrit af því.

Lögmaðurinn sá strax að skýrsla lögreglumannsins var tómt rugl. Þar er því lýst að lögreglubíllinn hafi mætt mér beint, en bíllinn sem var á milli okkar er ekki nefndur:

“XXXX var ekið á móti lögreglubifreiðinni á öfugum vegahelmingi, með þeim afleiðingum að skýrsluritari þurfti að snögghemla til að varna árekstri.”

Lögmaðurinn sendi Lögreglustjóranum í Borgarnesi eftirfarandi bréf:

„Lögreglustjórinn á Vesturlandi

Sent á XXXX

Vísað er til þessa máls

Ég mætti á lögreglustöðina í XXXX fyrir skömmu og fékk að sjá myndband úr lögreglubifreiðinni sem var á vettvangi í umrætt sinn þann 28.05.2026. Óskað er eftir því að lögreglustjórinn á Vesturlandi felli niður sektarboð í málinu. Bent er á eftirfarandi því til stuðnings að ekki sé rétt að sekta Guðmund Guðjónsson.

Í frumskýrslu er bifreið Guðmundar Guðjónssonar ranglega skráð XXXX en það er bifreið bróður Guðmundar en þeir voru í samfloti og keyrði Guðmundur á bifreiðinni XXXX. Eigandi XXXX hefur ekki fengið sektarboð, enda ekki brotið gegn 23. gr. umferðarlaga.

Í frumskýrslu segir: bifreiðinni XXXX var ekið á móti lögreglubifreiðinni á öfugum vegarhelmingi, með þeim afleiðingum að skýrsluritari þurfti að snögghemla til að varna árekstri (þá væntanlega við bifreiðina XXXX). Eftir að hafa skoðað myndbandið sést að annar bíll er á milli lögreglubifreiðarinnar og bifreiðarinnar XXXX og hann hægir á sér en lögreglubifreiðin snögghemlar ekki. Bifreiðin XXXX er því ranglega sögð hafa ekið á móti lögreglubifreiðinni.

Guðmundur Guðjónsson ökumaður XXXX fylgdi bifreiðinni XXXX í framúrakstri og gekk úr skugga um að það væri án hættu og telur því að hann hafi ekki brotið gegn 23. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og óskar því eftir að málið verði fellt niður.

Ef ekki er fallist á niðurfellingu er óskað rökstuðnings áður en málið fer lengra, vinsamlega sendið það til mín í tölvupósti en ég hef sent embætti lögreglustjórans umboð Guðmundar til mín.

Áskilinn er réttur til að leggja þessi tölvupóstsamskipti fram í sakamáli fari málið lengra.“

Embættið svaraði bréfi lögmannsins eftirfarandi:

Eftir yfirferð á málinu, þ.m.t. myndbandinu sem þú vísar í, er niðurstaðan sú að sektarboð standi þar sem við teljum að ökumaður XXX… hafi valdið hættu fyrir umferð með framúrakstri sínum.

Eftir þetta svar ræddi ég við lögmanninn um hvað gera skyldi. Hans álit var að helmingslíkur væru á því hvort ég mundi vinna málið, dómarinn gæti alveg eins fallist á að framúraksturinn hafi skapað hættu og þar með dæmt mig sekan þrátt fyrir rangar upplýsingar í skýrslu lögreglumannsins.

Ég fékk því annan lögmann til að skoða myndbandið og álit hans var, að sök mín væri engin og skýrsla lögreglumannsins væri bara gerð til að koma á mig sök. Hitt væri svo annað mál hvort einhver dómari myndi dæma lögreglunni í hag eða mér, væri spurning. Hann bætti svo við að reynslan væri nú sú að flestir dómarar tækju málstað lögreglunnar fram yfir einstaklinga og því væri það stór spurning hversu skynsamlegt það væri fyrir mig að fara út í málarekstur fyrir aðeins 20.000 krónur og einn svartan punkt í ökuferilinn.

Ég varð hugsi yfir þessari skoðun lögmannsins en hef þó heyrt oftar en einu sinni eitthvað álíka um þessa hluti.

Hef ég því fallist á rök lögmannsins og borgað sektina en með mikið óbragð í munni.

En það, að lögregla á vettvangi skuli hafa sjálfdæmi um að ákveða hvort þessi eða hinn sýni einhverja hættu í umferðinni er alveg makalaust.

Það er vandalaust að sekta fyrir of hraðan akstur, hraðinn kemur fram á mælitækjum og að leggja vitlaust eða illa er líka mælanleg eining og margt fleira. En að einhverjum sé gefið það vald að geta sagt: mér finnst að þú hafir gert þetta eða hitt án þess að hægt sé að sannreyna það á nokkurn hátt hvort sé satt eða rétt, á ekki að vera hægt í lýðræðisríki.

Og síðan megi svo þessi sami aðili ákveða peningasekt á viðkomandi fórnarlamb sitt, er auðvita galið.

Í Senatinu í Róm á fyrstu öld f.Kr. var deilt um hver ætti að vakta varðmanninn svo hann geri allt satt og rétt. (Quis custodem custodiet, ut ille veraciter recteque agat?) en það var ekki ljóst hjá þeim á þeim tíma.

Í Borgarnesi er það alveg ljóst að það er lögreglustjórinn sem á að vakta sinn varðmann svo hann geri allt satt og rétt. Hann á að brýna fyrir sínum varðmanni að hann megi ekki fara út á vegina með það í huga að finna sér fórnarlamb til að skella á það sektir, koma svo heim til húsbónda síns og sýna honum hversu marga hann gómaði og hversu miklu hann náði að safna í sjóðinn.

Því vil ég segja við lögregluna í Borgarnesi:

Munið að lesa hvað stendur á “skjaldarmerki” lögreglunnar.

Guðmundur H Guðjónsson




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×