Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar 30. október 2026 12:01 Öryggisreglur gera lítið gagn um borð í skipi ef björgunarbúnaðurinn er óaðgengilegur, áhöfnin óþjálfuð og enginn veit hver á að bregðast við eða hvernig. Það sem kemur æ skýrar fram í rannsóknum um ofbeldisforvarnir er að reglur, verklag, fræðsla, stefnur og áætlanir duga ekki einar og sér. Þær eru auðvitað nauðsynlegar, en raunverulegt öryggi barna ræðst af því hvernig fullorðið fólk bregst við í daglegu starfi, hvaða hegðun er liðin og hvort barn sem segir frá ofbeldi upplifir að því sé trúað og að brugðist sé við. Það skiptir líka öllu máli að við séum tilbúin að viðurkenna mikilvægi þess að skoða aðstæðurnar sem geta gert börn berskjölduð fyrir ofbeldi. Aukin hætta á ofbeldi skapast meðal annars þegar valdaójafnvægi er óeðlilegt, mörk í samskiptum eru óskýr og lítið er gert úr áhyggjum barna. Börn standa jafnframt verr að vígi þegar þau skortir traust tengsl og aðgengilegan stuðning, vita ekki hvert þau geta leitað eða óttast afleiðingar þess að segja frá. Það er alltaf ákveðið valdaójafnvægi á milli fullorðinna og barna, sem er tilkomið vegna þess að börn eru að mörgu leyti algjörlega upp á okkur komin varðandi líf sitt, þroska, öryggi og vernd. Það er okkar að gæta þess að valdið sem við höfum yfir aðstæðum barna sé nýtt til að vernda þau og styðja og að við séum reiðubúin að svara fyrir hvernig við beitum því. Fyrir skipulagt starf með börnum vekur þetta upp mikilvægar spurningar um hvernig farið er með þetta óhjákvæmilega valdamisræmi, hvaða framkoma er liðin og hvort börn geti leitað til trausts fullorðins sem bregst við. Reglur um öryggi barna þurfa að endurspeglast í öllum daglegum aðstæðum og daglegu umhverfi vegna þess að ofbeldi getur þrifist í menningu þar sem niðurlæging, hótanir, þvingun og harkaleg framkoma eru réttlætt með aga, árangri, menningu eða hefðum. Þar skiptir stuðningur starfsfólks, sanngjarnar og skýrar reglur og góð jafningjatengsl barna öllu máli, og ýta líka undir meiri trú barna á eigin getu til að leita sér hjálpar ef þau þurfa á að halda. Þegar barn leitar svo hjálpar eða segir frá vanlíðan sinni eða ofbeldi geta viðbrögð fullorðinna haft langvarandi áhrif á líðan þess. Að finna að því sé trúað, að frásögn þess sé tekin alvarlega og að það fái viðeigandi vernd og stuðning getur stuðlað að bata og dregið úr sálrænum afleiðingum ofbeldisins. Vantrú, þöggun og óljós eða engin viðbrögð geta hins vegar aukið skaðann stórkostlega. Viðbrögð fullorðinna geta því ráðið úrslitum um það hvort barnið endurheimtir öryggi og traust eða situr eftir með enn meiri skaða. Við þurfum að nota valdið okkar vel. Þetta hefur beina þýðingu fyrir allt skipulagt starf með börnum og ungmennum, hvort sem það fer fram í skólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum, íþróttafélögum eða annars staðar. Þar skiptir öllu máli að öryggi barna sé sýnilegt í daglegri framkvæmd, í öllum samskiptum, í skýrri ábyrgð fullorðinna og viðbrögðum. Það nægir ekki að geta sýnt fram á að til séu stefnur, reglur, verkferlar eða viðbragðsáætlanir, það þarf líka að kanna hvort starfsfólkið þekki ábyrgð sína, hvort börnin viti hvert þau geta leitað, hvort þau treysti því að á þau verði hlustað og hvort frásögn barns eða tilkynning leiði raunverulega til stuðnings og viðeigandi viðbragða. Við myndum ekki senda börn um borð í skip án þess að ganga úr skugga um að öryggi þeirra væri tryggt, og engu okkar dytti í hug að telja skip öruggt einungis vegna þess að það eru til öryggisreglur um borð. Björgunarvestin þurfa að vera aðgengileg, áhöfnin þarf að þekkja hlutverk sitt og öll þurfa að vita hvert þau eiga að leita og hvað þau eiga að gera þegar hætta steðjar að. Það sama á við um vernd og öryggi barna. Stefnur, reglur og viðbragðsáætlanir skipta sannarlega máli, en þær vernda ekki barn nema starfsfólk þekki ábyrgð sína, börnin viti hvert þau geta leitað og frásögn eða tilkynning leiði til raunverulegs stuðnings og viðeigandi viðbragða. Það á líka við þegar barn segir frá ofbeldi. Þá þarf að vera alveg skýrt hver tekur við frásögninni, hver tryggir öryggi barnsins og hvernig stuðningi og eftirfylgni verður háttað. Barnið þarf að fá að vita hvað gerist næst og til hvers það getur leitað á meðan. Skráningu og tilkynningu þarf að fylgja markviss eftirfylgni þar sem hugað er að líðan barnsins, stuðningsþörfum þess og því hvort það sé raunverulega öruggara í daglegu umhverfi sínu. Raunverulegt mat á gæðum og öryggi verður því líka að ná til reynslu barnanna sjálfra. Við þurfum að hlusta á þau og spyrja hvernig þau upplifa samskipti, reglur, aðstöðu og framkomu fullorðinna. Það þarf líka að greina atvik, fylgjast með mynstrum og kanna hvort tilteknir hópar barna standi verr að vígi en aðrir. Þar geta meðal annars kyn, fötlun, kynhneigð, kynvitund, félagsleg staða og aðgengi að traustum fullorðnum skipt öllu máli. Því þegar öllu er á botninn hvolft ræðst öryggi barna ekki af því sem stofnanir segjast gera heldur því sem börn upplifa þegar á reynir, hvort einhver taki eftir, hlusti og bregðist við og hvort viðbrögðin leiði til þess að barnið verði raunverulega öruggara í kjölfarið. Höfundur er sérfræðingur í ofbeldisforvörnum og réttindum barna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun