Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar 30. október 2026 15:15 Það er ákveðinn áfangi að verða fertugur. Sumir fá sér nýtt áhugamál, aðrir fara að hlaupa hálfmaraþon og enn aðrir ákveða að nú sé tími til kominn að hægja aðeins á sér. Nýrnafélagið ætlar ekkert að hægja á sér. Félagið fagnar 40 ára afmæli sínu 30. október, en það var stofnað árið 1986, þá undir nafninu Félag nýrnasjúkra. Síðan hefur margt breyst – bæði í heilbrigðisþjónustu og í lífi fólks með nýrnasjúkdóma. Meðferð hefur þróast, þekking aukist og fleiri möguleikar eru í boði en áður. En eitt hefur lítið breyst: þörfin fyrir stuðning, fræðslu og sterka rödd fyrir nýrnasjúka og aðstandendur þeirra. Nýrnafélagið hefur í gegnum árin barist fyrir bættri þjónustu, auknu aðgengi að skilun og því að fólk fái meðferð eins nálægt heimili sínu og hægt er. Stór áfangi varð til dæmis þegar blóðskilun hófst á Selfossi árið 2014. Það skiptir máli. Fyrir manneskju sem þarf í skilun nokkrum sinnum í viku getur hvert ferðalag verið stór hluti af lífinu. Félagið hefur líka lagt mikla áherslu á fræðslu. Nýrnasjúkdómar eru nefnilega svolítið lúmskir. Þeir geta þróast lengi án þess að fólk finni mikið fyrir þeim. Þess vegna skiptir snemmbær greining máli. Það hljómar kannski ekki sérstaklega spennandi að tala um blóðþrýsting, kreatínín eða albúmín í þvagi. En stundum eru það einmitt svona leiðinlegu hlutirnir sem bjarga heilsunni. Nýrnafélagið hefur því lagt sífellt meiri áherslu á forvarnir, reglulegar blóðþrýstingsmælingar og að fólk í áhættuhópum sé skoðað og fylgt eftir. En félagið er ekki bara barátta við kerfið og tölur á blaði. Það er líka samfélag. Þar hittist fólk sem veit hvernig það er að fara í skilun, bíða eftir nýraígræðslu, fá nýtt nýra eða standa við hlið ástvinar sem gengur í gegnum slíkt ferli. Sá stuðningur verður seint mældur í töflum eða skýrslum, en hann getur skipt gríðarlegu máli. Á 40 árum hafa margir lagt hönd á plóg. Stjórnarmenn, sjálfboðaliðar, heilbrigðisstarfsfólk, nýrnasjúkir, nýraþegar, nýragjafar og aðstandendur hafa öll átt þátt í að móta félagið. Og verkefnin eru ekki búin. Það þarf áfram að efla forvarnir, bæta fræðslu, styðja fólk sem bíður eftir ígræðslu og tryggja góða þjónustu við nýrnasjúka óháð búsetu. Þannig að þó Nýrnafélagið sé orðið fertugt er engin ástæða til að panta ruggustólinn enn. Það er nóg eftir að gera. Höfundur er framkvæmdastjóri Nýrnafélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun