Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Freyja Þórisdóttir skrifar 1. nóvember 2026 09:42 Páll Magnússon fær til sín góða gesti sem endranær á Sprengisandi í dag. Vísir/Viktor Freyr Páll Magnússon tekur á móti góðum gestum í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þátturinn hefst að vanda klukkan 10 og stendur til 12 en hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan eða í sjónvarpi á Sýn. Meðal þeirra sem mæta í settið eru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi sósíalista.
Páll ræðir við þau um umdeildar hagræðingaraðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg en stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í vikunni. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga samþykktu harðorða ályktun nú í vikunni – þar sem segir að Suðurland sé ekki hraðbanki ríkissjóðs; um helming af nýjum skatttekjum ríkisins eigi að sækja í Suðurkjördæmi þrátt fyrir að þar búi aðeins rúmlega níu prósent landsmanna. Anton Kári Halldórsson, formaður samtakanna, og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, takast á um þetta á Sprengisandi. Íbúar í Dalabyggð hafa miklar áhyggjur af löggæslumálum í sinni sveit – og telja að stefnt geti í enn verra ástand með þeirri sameiningu lögreglustjóraembætta sem stendur fyrir dyrum. Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri, og Skjöldur Orri Skjaldarson, lögreglumaður, gera grein fyrir þessu. Í lok þáttar fær Páll þær svo Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir í heimsókn en þær halda úti hlaðvarpinu Komið gott! Þær eru þekktar fyrir að láta vaða á súðum um alla skapaða hluti – og það ætla þau þrjú einmitt að gera um stöðu stjórnmálaflokka og stjórnmálaforingja á eftir.
Sprengisandur Reykjavík Borgarstjórn Dalabyggð Hlaðvörp Tengdar fréttir Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda. 27. október 2026 14:41 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn Sjá meira
Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda. 27. október 2026 14:41