Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. nóvember 2026 16:03 Tómas Guðbjartsson og Dendi Sherpa með drengjum sem misstu foreldra sína í jarðskjálftum og búa í munkaklaustri í Nepal. Samtökin INSO útveguðu þeim flísfatnað og ullarsokka, en klaustrið stendur í rúmlega 3.300 metra hæð og er lítið sem ekkert hitað upp. Tómas Guðbjartsson læknir og fjallaleiðsögumaðurinn Dendi Sherpa hafa komið þremur fjölskyldum í Nepal til hjálpar með söfnun í minningu fjallgöngumannsins Johns Snorra Sigurjónssonar. Meðal þeirra sem njóta stuðningsins er drengur sem missti báða foreldra sína í mannskæðum flóðum í ágúst. „
Þarna misstu mörg börn foreldra sína, og neyð og sorg margra fjölskyldna því mikil,“ segir Tóma í samtali við Vísi. Hann segir hvert áfallið á fætur öðru hafa dunið yfir í Nepal, ekki síst fjallahéröðum Himalaya þar sem hundrað þúsund sjerpar búi, flestir í nágrenni við Everest. Hann rifjar upp mannskæða jarðskjálfta í Nepal 2014 og 2015. „Langmestu hamfarirnar urðu þó 26. ágúst sl. þegar risastór bergskriða barst ofan í Trishuli-ánna og olli risaflóðum í Langtan-hérðai Nepal, skammt frá landmærunum til Tíbets. Þar létust 1500 manns, og 5300 er enn saknað, þar af 650 erlendra ferðamanna. Þarna misstu mörg börn foreldra sína, og neyð og sorg margra fjölskyldna því mikil.“ Tómas og Dendi Sherpa á Diwali-hátíðinni í Taksindu. Börn í þorpinu færðu þeim blómakransa sem þau höfðu búið til í þakklætisskyni. Til að svara neyðarkallinu hafi hann og Sherpa Dendi hafið söfnun handa nokkrum af þessum brotnu fjölskyldum. Er söfnunin á vegum samtakanna Iceland Nepal Support Organisation (INSO) sem þeir stofnuðu árið 2023. Tómas segir að á síðastliðnum árum hafi verið hægt að kaupa hlýjan fatnað og skólagögn fyrir rúmlega fimmhundruð börn, mörg þeirra hafi misst foreldra sína í jarðskjálftunum 2014 og 2015. Söfnunin hófst á hátíðarsýningu heimildarmyndarinnar Hinsta ferðin á K2 á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, í september. Myndin fjallar um vetrarleiðangur Johns Snorra á K2, næsthæsta fjall heims. Að sögn Tómasar var John Snorri tíður gestur í Nepal og afar vel liðinn meðal sjerpa. Því hafi verið ákveðið að helga söfnunina minningu hans. „Upphaflega stefndum við á 1.200 dollara til að styrkja tvær fjölskyldur,“ segir Tómas, upphæð sem nemi 150 þúsund íslenskum krónum. Viðbrögðin hafi hins vegar verið það góð að unnt hafi verið að styrkja þrjár fjölskyldur. Tómas segir upphæðina nægja fyrir skólagjöldum, fatnaði og fæði fyrir eitt barn í eitt og hálft ár. Einn styrkþeganna er drengur sem missti báða foreldra sína í flóðunum í ágúst. „Hann býr nú hjá afa sínum og ömmu,“ segir Tómas. Hann segir opinberan stuðning við fólk sem missi ástvini sína takmarkaðan í Nepal og aðstæður margra fjölskyldna afar erfiðar. Söfnunin fer fram á vegum Iceland Nepal Support Organisation, INSO, sem þeir Tómas og Dendi stofnuðu árið 2023. Á undanförnum árum hafa þeir getað keypt hlýjan fatnað og skólagögn fyrir rúmlega fimm hundruð börn. Mörg þeirra hafa misst foreldra sína í náttúruhamförum. Stúlkan á myndinni hefur misst foreldra sína og er ein rúmlega fjögurhundruð barna sem fengu skólabúninga að gjöf. Börn úr tveimur fjölskyldnanna sem nú fengu styrk komu til Katmandu eftir tíu klukkustunda jeppaferð úr fjöllunum. Þar tók Dendi á móti þeim og afhenti styrkina. Þriðja fjölskyldan átti ekki heimangengt og fékk sinn styrk afhentan í Taksindu, heimabæ Dendi. Auk fjárframlaga söfnuðust farsímar sem Tómas segir mikilvæg samskipta- og öryggistæki fyrir fjölskyldur í afskekktu fjalllendi. Þá gaf verslunin Everest hlýjan fjallafatnað frá Mammut sem muni nýtast börnunum og fjölskyldum þeirra í vetur. Dendi hefur um árabil leiðsagt Íslendingum í fjallgöngum í Nepal og margoft komið hingað til lands. Þeir Tómas eru nánir vinir og hafa dvalið hvor á heimili annars. Með íslenskri aðstoð hefur Dendi nú stofnað eigið ferðaþjónustufyrirtæki, Nepal Dream Adventure. Enn er hægt að leggja söfnuninni lið með framlagi á reikning 0137-05-070295, kennitala 110165-3829. Þá geta þeir sem leggja inn þrjú þúsund krónur fengið sendan bækling um háfjallasjúkdóma á íslensku. Allur ágóði af útgáfunni rennur til söfnunarinnar.
John Snorri á K2 Nepal Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“