Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 14:32 Michael Carrick fylgdist raunamæddur með tapinu gegn Chelsea um helgina. Getty/Adam Davy Það var rafmagnað andrúmsloft á blaðamannafundi Michael Carrick í dag enda er pressan gríðarlega á kappanum eftir verstu byrjun félagsins í fjóra áratugi.
Carrick er samt enn stjóri Manchester United og mun stýra liðinu í tveimur leikjum í þessari viku. Annar þeirra er í Meistaradeildinni en hinn á móti Meistaradeildarfélagi í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi. Carrick hitti fjölmiðlamenn í dag fyrir leik liðsins á móti Roma í Meistaradeildinni. „Ég veit hvers við erum megnugir sem lið og sem hópur. Við höfum sýnt það á köflum og skorpum, og sýndum það um daginn,“ sagði Michael Carrick og vísar þar til tapleiksins til Chelsea á Brúnni. „Við vorum í virkilega góðri stöðu þegar seinni hálfleikurinn gegn Chelsea hófst. Við vitum hvers við erum megnugir. Við erum nálægt þessu en þurfum að bregðast hratt við,“ sagði Carrick. „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku. Það er frábært tækifæri til að sækja í leiknum og gera þetta að góðu kvöldi,“ sagði Carrick. Carrick var líka spurður út í framtíð sína til lengri tíma: „Það hefur engin áhrif á hvernig við undirbúum okkur eða á leikinn á morgun. Við getum ekki beðið eftir leiknum á morgun. Ég get ekki beðið eftir leiknum. Það er það eina sem ég einbeiti mér að. Það sem gerist eftir það gerist. Í hvaða átt sem það fer,“ sagði Carrick. Hann var spurðr út í andrúmsloftið í klefanum eftir þessa erfiðu byrjun. „Það er gott andrúmsloft í búningsklefanum. Ásýnd hlutanna getur verið skrítin. Það er hægt að láta hlutina líta út á ýmsa vegu og velta fyrir sér alls kyns hlutum. Hollusta leikmannanna við félagið, við mig og hver við annan – ég efast ekki um hana eitt augnablik. Við þurfum að spila betur, við getum tekið betri ákvarðanir, en hollustan er alls ekki vandamálið,“ sagði Carrick. Carrick var líka spurður út í hvað það væri sem vantaði um þessar mundir: „Það er aldrei eitt atriði. Það geta verið smáatriði. Við þurfum að bæta okkur í ákveðnum hlutum,“ sagði Carrick. „Gegn Chelsea gerðum við margt gott. Það var ótrúlegt að ganga af velli eftir þennan fyrri hálfleik án þess að hafa skorað. Við verðum að vinna okkur sjálfir út úr þessari stöðu. Við höfum gert margt gott,“ sagði Carrick. „Margir gætu sinnt starfi mínu þegar við erum að vinna. Málið snýst um að finna lausnir og standa sterkir. Við verðum að halda áfram að berjast. Þetta breytir ekki hugarfari mínu,“ sagði Carrick.
Enski boltinn Manchester United Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Leik lokið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Sjá meira