Skoðun

Draum­sýn mennta­mála

Álfhildur Leifsdóttir og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifa

Það er auðvelt að sameinast um draumsýn á framúrskarandi menntakerfi. Við viljum öll að börnin okkar nái árangri, að kennarar séu vel menntaðir, að íslensk tunga þrífist og að hvert barn fái stuðning við hæfi í sínu námi. Mun erfiðara virðist hins vegar að tryggja að ákvarðanir stjórnvalda um fjármögnun menntunar samræmist þessum markmiðum.

Í drögum að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 sem nær til áranna 2027–2030, eru sett fram metnaðarfull markmið um aukin gæði kennslu, öflugra læsisstarf, fjölbreytt námsgögn, styrkingu skólasafna og bættan stuðning við nemendur. Allt er þetta tímabært og nauðsynlegt en um leið kunnuglegt þrástef. Þegar umrædd áætlun er skoðuð í samhengi við fjárhagslegar ákvarðanir stjórnvalda vakna áleitnar spurningar.

Hvernig á að efla fagmennsku kennara samhliða niðurskurði til háskólanna sem óhjákvæmilega þrengir að möguleikum þeirra til að sinna kennaramenntun, rannsóknum og starfsþróun? Hvernig á að styrkja framhaldsskólastigið og draga úr brotthvarfi án þess að tryggja viðeigandi rekstrarforsendur eða aðstöðu til náms? Og hvernig á að efla læsi barna, fjölga bókum og styrkja skólasöfn ef á sama tíma er dregið úr þeim fjárhagslega stuðningi sem íslenskir höfundar njóta fyrir notkun verka sinna á bókasöfnum? Hvernig á að gera kröfur til fagmennsku kennara þegar námsgögn skortir? Hvar er samræmingin í stefnumótun stjórnvalda?

Efling án efnda

Ein meginstoð þriðju aðgerðaáætlunarinnar ber yfirskriftina „Kennarar í fremstu röð, aukin gæði kennslu“. Þar er meðal annars gert ráð fyrir endurskoðun hæfniramma kennara, aukinni starfsþróun, bættum gæðum kennaranáms og markvissari leiðsögn nýliða. Orðræða sem er kunnugleg en hefur hingað til tekist illa að framkvæma.

Rannsóknir á kennarastarfinu hafa ítrekað sýnt að gæði kennslu ráðast ekki eingöngu af þekkingu einstakra kennara heldur einnig af þeim faglega stuðningi, samstarfi og starfsþróunartækifærum sem þeim standa til boða. Rannsóknir sýna til að mynda fram á mikilvægi samfelldrar starfsþróunar sem tengist daglegri kennslu, felur í sér virka þátttöku, samstarf, endurgjöf og eftirfylgni. En allt þetta krefst tíma, svigrúms og fjármagns.

Í aðgerðaáætlunina vantar skýrari brú milli markmiða og framkvæmdar. Háskólarnir gegna lykilhlutverki í kennaramenntun, rannsóknum og þróun skólastarfs, en hvernig eiga þeir að standa undir auknum kröfum ef fjármögnun skortir? Það er ekki gerlegt að kalla eftir betri kennaramenntun án þess að tryggja að háskólarnir hafi raunhæfar forsendur til að þróa hana.

Sama á við um starfsþróun kennara. Hún verður ekki að efld með því einu að setja fram hæfniramma eða fjölga námskeiðum. Ekki heldur með miðstýrðum skyndilausnum. Kennarar þurfa tíma til að læra, prófa nýjar aðferðir, vinna saman og meta áhrif þeirra á nám nemenda. Skólastjórnendur þurfa jafnframt svigrúm til að leiða þá vinnu eigi starfsþróun að vera gerleg.

Er þriðja aðgerðaáætlun menntastefnu raunhæf eða draumsýnin ein?

Höfundar eru grunnskólakennari og menntunarfræðingur. 

Álfhildur Leifsdóttir grunnskólakennari

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir menntunarfræðingur




Skoðun

Sjá meira


×