Skoðun

Út­sæði á diskinn minn!

Guðmundur Finnbogason skrifar

Margir þekkja sögu af Eskfirðinum sem áttu að hafa í kreppunni, um 1930, étið útsæðið sitt frekar en að setja það niður. Þetta var auðvitað skröksaga sem sögð var til að gera lítið úr þeim. Enda með eindæmum vitlaust að éta útsæðið og stefna þarf með framtíðinni í hættu. Síðan er þetta orðatiltæki sem vísar til þess að fórna einhverju fyrir stundarhagsmuni á kostnað framtíðarinnar. Það myndi auðvitað enginn gera í dag, eða hvað?

Það var þess vegna sérkennileg upplifun að sitja í gömlu kartöflugeymslunum á Selfossi síðastliðinn sunnudag og hlusta á fjármálaráðherra útskýra fyrir fundargestum hvers vegna best væri fyrir okkur öll að borða útsæðið. Staðsetningin fyrir þennan fyrirlestur hjálpaði auðvitað ekki til.

Salurinn var fullur af áhyggjufullu sveitarstjórnarfólki og fólki og enn áhyggjufyllra fólki úr ferðaþjónustu. Það óttast að við séum einmitt í þann mund að setjast til borðs í boði ríkisstjórnarinnar og háma í okkur útsæðið. Hér er auðvitað verð að tala um skattahækkanirnar sem boðaðar eru á ferðaþjónustuna á Suðurlandi í ýmsum myndum.

Ferðaþjónustan greiðir nú þegar um 200 milljarða króna á ári til ríkisins í formi ýmissa skatta. Hún hefur jafnframt ítrekað lýst sig reiðubúna til að styðja við og standa undir þeim kostnaði sem af henni hlýst. Hér er því ekki byrjað á auðu blaði. Þvert á móti er greinin einn stærsti greiðandi skatta og gjalda á Íslandi.

Það skiptir hins vegar miklu máli hvernig breytingar eru gerðar. Úr því að ríkisstjórnin vill meina að þessi ljúffenga útsæðismáltíð hafi nánast verið hugmynd ferðaþjónustunnar sjálfrar er rétt að staldra við og ræða hvernig samráðinu hefur verið háttað. Ráðherrar segja að öllum hafi mátt vera þetta ljóst, enda hafi málið verið rætt lengi. Þess vegna eigi að vera í lagi að leggja nýjar álögur með nokkurra mánaða fyrirvara á grein sem gerir samninga og selur þjónustu sína stundum þrjú ár fram í tímann. Og þess vegna eigi líka að vera í lagi að sækja yfir 10 milljarða króna í einn landshluta (og helming þess í eitt sveitarfélag), með nokkurra mánaða fyrirvara. Sú upphæð samsvarar nærri helmingi tekna ferðaþjónustunnar á þessu ári. Voru ekki örugglega allir búnir að láta sína viðskiptavini vita að lítið væri að marka fyrirvara ríkisins á Íslandi? Þessi aðferð gekk ekki vel þegar kom að gjaldahækkunum á skemmtiferðaskip.

En er þetta kannski bara hið besta mál? Er útsæði ekki hollt og gott?

Setjum þetta í samhengi. Á Suðurlandi eru nærri 650 fyrirtæki í ferðaþjónustu og þeim hefur fjölgað mikið á undanförnum árum, úr 221 árið 2008. Þau greiða yfir 3.400 manns laun og á bak við þann hóp standa mörg þúsund fjölskyldur.

Ferðaþjónustufyrirtæki sem hafa staðið í mikilli uppbyggingu og vöruþróun undanfarin ár með tilheyrandi kostnaði munu ekki öll standa af sér 5–30% fækkun ferðamanna á næsta ári. Jafnvel þótt fækkunin yrði aðeins á Suðurlandi. Hér er verið að tala um fyrirtækin sem hafa geymt útsæðið sitt og ætluðu að setja það niður í sumar til að lifa af næsta vetur. Þannig vaxa þau og tryggja afkomu sína þegar bjátar á. Til dæmis ef vextir hækka á Bandaríkja- eða Evrópumarkaði, eða ef samkeppnislönd á borð við Noreg, Finnland og Svíþjóð auka markaðssetningu sína. Við þurfum að vera undir slíkar áskoranir búin. Í staðinn eiga þessi fyrirtæki að nota sína varasjóði í heimatilbúna krísu vegna þess að stjórnvöld ætla að skattleggja þau út af markaðnum. Ekki nærri öll eiga slíka varsjóði.

En hvað á þá að gera? Hvernig á að skrapa saman þeim krónum sem þarf til að loka fjárlagagatinu?

Ef dvöl ferðamanna á Íslandi lengdist um eina nótt að meðaltali skilaði það 6-10 milljörðum króna í skatttekjur. Það væri góð byrjun. Með því að efla ferðaþjónustuna, styrkja hana og jafnvel kynna Ísland betur næðum við öllum þeim markmiðum sem ríkisstjórnin stefnir að. Áhættan fyrir þúsundir fjölskyldna og fyrirtækja væri líka mun minni. Ferðaþjónustan er atvinnugrein sem hefur vaxið og dafnað, og það algjörlega á eigin verðleikum. Nú er svo komið að Suðurland getur tekið á móti gestum sínum með miklum sóma, enda fyrirtækin sjálf bætt og eflt innviði. Ferðamenn leita lengra út á land eftir því sem fyrirtækin þar styrkjast og eflast, eins og þeir hafa gert á Suðurlandi síðustu ár. Þetta gerist þegar greinin fær að vaxa í friði.

Ég vona því að ríkisstjórnin sjái ljósið og átti sig á því að betra er að setja útsæðið niður en að éta það. Ef rétt er haldið á málum má jafnvel auka uppskeruna, svo að bæði ríkissjóður og almenningur komist klakklaust í gegnum þær áskoranir sem fram undan eru.

Höfundur er oddviti sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps.




Skoðun

Sjá meira


×