Innlent

Játaði að hafa makað saur á hurðar­húna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Maðurinn játaði að hluta en neitaði fyrir þátttöku í öðrum hluta ákæru.
Maðurinn játaði að hluta en neitaði fyrir þátttöku í öðrum hluta ákæru. Vísir

Maðurinn sem er meðákærður í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur í umfangsmiklu umsáturseinelti játaði að hafa farið á heimili brotaþola og makað saur á hurðarhúna. Hann neitar hins vegar að hann hafi tekið þátt í meintu umsáturseinelti.

Aðalmeðferð í málinu hófst í gærmorgun og fór allur fyrsti dagurinn í skýrslutöku yfir Írisi Helgu. Hún er ákærð í 68 ákæruliðum og eru brotaþolar þrír karlmenn, börn tveggja þeirra, ein sambýliskona og fjölskylda hennar.

Manninum sem er meðákærður er gefið að sök að hafa farið tvisvar sinnum á heimili brotaþola og sambýliskonu hans og makað saur á hurðarhún heimilisins og á hurðarhún á bíl þeirra. Atvikin áttu sér stað í janúar 2024 með fjögurra daga millibili.

Honum var einnig gefið að sök að hafa á tveggja mánaða tímabili tekið þátt í umsáturseineltinu en hann neitar því. Aðspurður neitar hann því að hafa elt brotaþola, fylgst með þeim, setið um þau og sett sig í samband.

Hann og Íris hafi verið góðir vinir þar sem þau störfuðu saman og hann hafi verið heima hjá henni eitt sinn þegar síminn hennar fór að hringja stanslaust.

„Þá segir hún að það sé einhver gæi að stalka hana,“ sagði hann. 

Þau hafi rætt málið og sakaði Íris einn mannanna og sambýliskonu hans um að sitja fyrir sér og áreita. Íris sagði meðákærða manninum frá málinu og lýsti því hvernig brotaþoli á að hafa búið til gerviaðganga á samfélagsmiðlum til að senda henni skilaboð, áreitt dóttur Írisar og setið fyrir henni.

Ætti að kaupa fangabúning og sápu

Eftir að Íris og meðákærði hafi byrjað að ræða málin höfðu þau að hans sögn byrjað að grínast um að hrekkja brotaþola til baka vegna meints áreitis sem hann átti að hafa beitt. 

„Ég sagði henni að kaupa rakettutertu og skjóta á bílinn þeirra því hún sagði að hann hefði verið búinn að skemma bílinn hennar, borið efni á framljósin og skemmt þau, losað boltana á dekkinu, banana í púströrið og eitthvað,“ sagði maðurinn.

Einnig hafi hann í gríni lagt til að senda brotaþola fangabúning og sápu þar sem hann taldi að brotaþoli væri á leið í fangelsi vegna meints áreitis. Grínið hefði síðan breyst í alvöru mál eftir að Íris greindi manninum frá því að brotaþoli hefði áreitt dóttur hennar.

Þá fór hann að húsi brotaþola og framkvæmdi verknaðinn. Hann segist samt sem áður ekki muna eftir neinu sem átti sér stað umrædd kvöld og að hafa tekið upp myndskeið sem hann sendi á Írisi. Myndskeiðið fannst í símanum hans.

„Ef þetta var í símanum mínum og stendur í símanum mínum að ég sendi þetta er ég ekkert að þræta fyrir það.“

Aðspurður hvort hann vildi horfa á myndskeiðið sagðist hann helst ekki vilja það. Það væri einungis niðurlæging. Vert er að taka fram að nokkrir gestir úr röðum almennings eru í salnum auk blaðamanna.

Trúði að hún hafi verið áreitt

Maðurinn tekur skýrt fram að hann hafi allan tímann talið að brotaþoli hafi verið að áreita Írisi Helgu og fjölskyldu hennar. Hún hafi greint honum frá málinu í smáatriðum og hafi hann trúað henni.

Það hafi ekki verið fyrr en hann var handtekinn og fór í skýrslutöku hjá lögreglu sem lögreglan hafi að lokinni skýrslutöku upplýst hann um að Íris hafi verið að ljúga að honum. 

Einnig kom fram í máli hans að Íris hafi verið mjög tölvuheft. Á vinnustað þeirra hafi hann oftar en ekki aðstoðað Írisi við alls konar tæknimál, þar á meðal kennt henni að loka á símanúmer.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×