Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar 3. nóvember 2026 11:03 Er það til marks um almenna velsæld og lífsgæði að íslenska Z-kynslóðin sé hljóðlát og arki ekki gargandi um stræti og torg með steytta hnefa? Víða annars staðar í heiminum birtist þessi dægrin reiði unga fólksins í fjöldamótmælum gegn valdhöfum. Hér lætur þessi kynslóð lítið á sér kræla. Því fer fjarri að ég sé að hvetja ungt fólk til borgaralegrar óhlýðni, en velti fyrir mér hvers vegna sambærilegar mótmælahreyfingar sjást ekki á íslenskum sjóndeildarhring. Z-kynslóðin, yfirleitt talin fólk fætt á árunum 1997 til 2012, hefur að stórum hluta alist upp við öryggi og gott atlæti á Íslandi. Mörg þessara ungmenna hafa verið vafin inn í bómull frá því þau komu í heiminn, með farsíma í hendinni frá unga aldri og nýjar stafrænar lausnir við hvert þroskaskref. Á barnsaldri var settur bíll undir rassinn á þeim og skottast með þau í tónlistartíma, tómstundir og íþróttir og dekrað við þau frá morgni til kvölds. Með öðrum orðum: Z-kynslóðin hefur vanist háu þjónustustigi. Er þögn unga fólksins einfaldlega merki um að það hafi það almennt gott? Eða býr það einfaldlega við meira öryggi og sterkara bakland? Ungt fólk í Þýskalandi hefur líka alist upp í efnuðu velferðarsamfélagi. Samt fór það út á götur í fjölmörgum borgum um síðustu helgi og krafðist betri menntunar, mótmælti háum framfærslukostnaði og gerði kröfu um sanngjarnari skiptingar byrðanna. Andstaða við herskyldu var einnig meðal baráttumálanna. Í Frakklandi hófust mótmælin meðal framhaldsskólanema vegna kennaraskorts, yfirfullra skólastofa og lélegs húsnæðis. Foreldrar, kennarar og verkalýðsfélög bættust í hópinn. Í Albaníu hafa mótmæli stúdenta vegna námskostnaðar, aðstæðna í háskólum og atvinnuhorfa tengst víðari óánægju með spillingu og stjórnarhætti. Í Serbíu varð hrun þakskyggnis við járnbrautarstöðina í Novi Sad í nóvember 2024 kveikjan að langvinnum mótmælum undir forystu stúdenta. Sextán manns létust. Krafan um ábyrgð vegna slyssins varð að víðtækri baráttu gegn spillingu. Í Búlgaríu átti ungt fólk stóran þátt í mótmælum sem leiddu til afsagnar ríkisstjórnarinnar í desember í fyrra. Utan Evrópu hafa afleiðingarnar sums staðar orðið enn meiri. Stúdentamótmæli í Bangladess gegn kvótakerfi við ráðningar í opinber störf þróuðust árið 2024 yfir í uppreisn sem batt enda á stjórn Sheikh Hasina. Í Nepal varð bann við samfélagsmiðlum haustið 2025 kveikjan að mótmælum gegn spillingu og frændhygli sem hröktu forsætisráðherrann frá völdum. Þótt tilefnin séu af ólíkum toga eru efnahagslegt óöryggi, lítil áhrif ungs fólks á ákvarðanir valdhafa og ekki síst spilling rauði þráðurinn í mörgum þessara mótmæla. Skipulagið getur verið veiki hlekkurinn. Mótmælahreyfingarnar eru gjarnan án skýrrar forystu og það kann að torvelda leiðina frá mótmælum til varanlegra breytinga. Þótt Z-kynslóðin á Íslandi hafi hægt um sig skynja ég það ekki sem lognið á undan storminum. Hluta skýringarinnar gæti verið að finna í stuðningi fjölskyldunnar. Blessunarlega er sú hugsun rík í samfélaginu að við reynum að létta börnunum lífið. Við gerum það sem við getum og erum flest fegin að geta hjálpað. Það er gott að gefa, sérstaklega að gefa af sér. Þannig tekur fjölskyldan við hluta af álaginu sem annars myndi lenda óskipt á unga fólkinu. Húsnæðisvandinn verður að spurningunni: Hvað geta mamma og pabbi gert? Ein fjölskylda finnur peninga fyrir útborgun. Önnur býður áframhaldandi dvöl í gamla barnaherberginu. Sú þriðja hefur ekkert svigrúm til að hjálpa. Þannig reynir hver fjölskylda að leysa samfélagslegan vanda eftir því sem efni og aðstæður leyfa. Það er því vel hugsanlegt að bæði velsæld og erfiðleikar skýri kyrrðina hér. Sumir hafa litla ástæðu til óánægju. Aðrir njóta stuðnings sem léttir þeim lífið. Enn aðrir eru uppteknir við að láta enda ná saman. Þögn Z-kynslóðarinnar þarf því hvorki að merkja almenna sátt né skort á áhuga á samfélaginu. Hluti skýringarinnar kann að vera sá að við eldhúsborð íslenskra fjölskyldna sé enn verið að leysa málin sem annars staðar hafa verið borin á torg. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar