Erlent

Sjö flug­vélum lent vegna sprengju­hótana

Samúel Karl Ólason skrifar
Hótanirnar beindust meðal annars að flugvélum SAS.
Hótanirnar beindust meðal annars að flugvélum SAS. AP/Ole Berg-Rusten, NTB Scanpix

Lenda þurfti sjö farþegaflugvélum í Evrópu í dag vegna sprengjuhótana. Þá barst einnig hótun gegn skemmtiferðaskipi en engar sprengjur hafa í kjölfarið fundist. Yfirvöld í nokkrum ríkjum Evrópu ætla að vinna saman að rannsókn málsins.

Hótanirnar sneru að tveimur flugvélum sem verið var að fljúga til Varsjár í Póllandi, tveimur sem var flogið til Sofia í Búlgaríu, tveimur sem verið var að fljúga til Rómar á Ítalíu og einni sem var flogið til Murcia á Spáni. Degi áður hafði hótun borist gagnvart flugvél sem verið var að fljúga til Sofia.

Þá barst hótun gegn ísraelsku skemmtiferðaskipi við Grikkland.

Flugvélarnar eru frá pólska flugfélaginu LOT, SAS, Wizz Air og Ryanair. Sprengusérfræðingar leituðu í öllum flugvélunum og í skemmtiferðaskipinu en engar sprengjur fundust.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á þessum hótunum og embættismenn í umræddum ríkjum hafa ekki bent fingrinum á meintan sökudólg, samkvæmt frétt Reuters.

Í samtali við fréttaveituna segir áhætturáðgjafi að hótanirnar í dag séu einstakar. Umfang þeirra og það að þær virðist ekki hafa beinst að neinu tilteknu skotmarki bendi til þess að markmiðið hafi verið að valda almennum truflunum á flugi í Evrópu.

Annar sérfræðingur slær á svipaða strengi við BBC og segir að sprengjuhótanir séu ekki algengar. Hann segir útlit fyrir að hótanirnar hafi verið metnar trúverðugar, sem bendi til þess að um sé að ræða markvissa aðgerð af hálfu eins aðila, fremur en fjölda tilkynninga úr misvísandi áttum.

Þótt enginn hafi bent á mögulegan sökudólg eru spjótin strax byrjuð að beinast að Rússlandi, sem ráðamenn í Evrópu hafa um margra mánaða skeið sakað um það sem kallast fjölþátta ógnir og árásir í Evrópu. Þar er um að ræða margvísleg skemmdaverk, íkveikjur, sprengjuárásir og jafnvel banatilræði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×