„Ég er ekki Mohamed Salah“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2026 11:00 Bradley Barcola fagnar marki með Alexander Isak en þessir tveir rándýru framherjar Liverpool eru farnir að finna taktinn. EPA/ADAM VAUGHAN Bradley Barcola, kantmaður Liverpool, hefur sagt frá ástæðunni fyrir því að hann yfirgaf Paris Saint-Germain og hvers vegna hann valdi Liverpool.
Í samtali við Sky Sports viðurkenndi franski kantmaðurinn að hann hefði enn ekki náð þeim hæðum sem hann stefnir að, þrátt fyrir bætta frammistöðu að undanförnu. „Ég tel mig ekki hafa náð mínu besta enn. Þið hafið ekki séð bestu útgáfuna af mér og við erum líka að vinna með liðsfélögum mínum svo þeir geti nýtt styrkleika mína betur,“ sagði Bradley Barcola. Bradley Barcola: "First of all, I wasn't the one who decided the transfer fee." "So that's not been my problem. And regarding Mo Salah, he's a legend here. A huge one. He's done big things here and for that I have an enormous respect for him. But it's not pressure for me at all. "I'm not Mohamed Salah, so I'm going to try to contribute whatever I can to the club and make my own mark on its history. I don't feel any pressure about that." (Sky Sports)— DaveOCKOP (@DaveOCKOP) November 3, 2026 „Ég held að þegar við náum virkilega að þróa skilninginn okkar á milli muni hlutirnir batna mikið. Mér finnst vera stöðugar framfarir, þar sem leikmennirnir eru farnir að skilja leikstíl minn betur, og ég held að hlutirnir gangi mjög vel,“ sagði Barcola. Um upphæð kaupverðsins og pressuna sem fylgir því að leysa Salah af hólmi, en hann yfirgaf Liverpool síðasta sumar, tók Barcola skýrt fram að hann finni ekki fyrir neinni skyldu til að fylla skarð Egyptans. „Í fyrsta lagi ákvað ég ekki verðmæti félagaskiptanna minna, svo þetta mál er ekki vandamál fyrir mig,“ sagði Barcola. Samanburðurinn við Salah kallaði fram ákveðið svar. „Mohamed Salah er goðsögn hér, raunar mjög stór goðsögn. Hann hefur gefið þessu félagi mikið og ég ber gríðarlega virðingu fyrir honum, en ég finn ekki fyrir neinni pressu vegna þess,“ sagði Barcola. Bradley Barcola on the pressure that comes with his transfer fee and comparisons with Mohamed Salah: “I wasn’t the one who decided the transfer fee, so that’s not been a problem for me. “Mohamed Salah, he’s a legend here. A huge one. He’s done big things here and for that I have an enormous respect for him. But it’s not pressure for me at all. I’m not Mohamed Salah. “I’m going to try to contribute whatever I can to the club and make my own mark in the club’s history.” 🔴🇫🇷 [@SkySportsPL] #LFC— AS (@Anfield_Sector) November 3, 2026 „Ég er ekki Mohamed Salah og ég mun reyna að gefa allt sem ég get til að hjálpa félaginu og setja mitt eigið mark á sögu þess. Ég finn ekki fyrir neinni pressu varðandi þetta mál,“ sagði Barcola. Hvers vegna þá að yfirgefa PSG eftir alla þá velgengni? Fyrir Barcola var tímasetningin einfaldlega rétt. „Fyrir mig var þetta rétti tíminn til að yfirgefa Paris Saint-Germain. Ég átti yndisleg ár þar og vann gríðarlegan fjölda titla, en tíminn til að fara var kominn,“ sagði Barcola. Kveðjustundin var samt sár. „Þetta var mjög erfitt, því andrúmsloftið þar var eins og í fjölskyldu. Við byggðum upp eitthvað mjög sérstakt saman og það var erfitt að kveðja liðsfélaga mína, en á endanum er það eðli fótboltans,“ sagði Barcola. „Þegar félag af stærðargráðu Liverpool hefur samband við þig er það frábært. Ég var ekki í neinum vafa og vissi að ég yrði að koma hingað. Ég er ánægður að vera með liðinu og ég vona líka að Paris Saint-Germain gangi vel,“ sagði Barcola. Leikur Fenerbahce og Liverpool verður í beinni á Sýn Sport 2 í kvöld og hefst útsendingin klukkan 17.35.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira