Stærra eldgos á Reykjanesi líklegra í lok atburðarrásar
Sú kvika sem borist hefur upp í efri jarðlög á Reykjanesi dugar í mesta lagi í lítið eldgos, að mati Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings, sem telur stærri eldgos með hraunflæði líklegri í seinni þáttum atburðarrásarinnar.