Lóð gróðrarstöðvar til Víkings
Borgarráð samþykkti í dag að afhenda íþróttafélaginu Víkingi tíu þúsund fermetra lóð í Fossvogsdalnum sem Gróðrastöðin Mörk leigði. Eigandi gróðrastöðvarinnar segir sorglegt að gróður og ræktun víki fyrir steypu en er fegin að það verði að minnsta kosti hægt að reka hluta stöðvarinnar á svæðinu til ársins 2050.