Vísa máli Fauci til dómstóla Þingnefnd í öldungadeild Bandaríkjaþings hefur vísað máli Anthony Fauci sóttvarnarlæknis til dómstóla, þar sem hann er sakaður um að sýna þinginu vanvirðingu eftir að hann neitaði að svara spurningum í yfirheyrslu þar sem viðbrögð hans við Covid-19 heimsfaraldrinum voru til umfjöllunar. Erlent 6.8.2026 15:22
Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Mikið er rætt um mögulegt hjónaband Gigi Hadid og Bradley Cooper eftir að þau sáust með hringa á baugfingri vinstri handar á dögunum í París. Cooper bað Hadid í desember í fyrra. Parið hefur verið saman í þrjú ár og eiga hvort um sig eitt barn úr fyrra sambandi. Lífið 6.8.2026 15:00
Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta Donald Trump segir ekkert til í fréttum af tómum hillum í vopnabúrum Bandaríkjanna vegna stríðsins gegn Íran. Í sama mund segir hann að verið sé að elta uppi heimildarmenn fjölmiðla sem hafa sagt frá hinum meinta skorti. Þeim verði refsað fyrir að leka yfirlýsingum sem Trump setur til jafns við landráð. Erlent 6.8.2026 14:57
Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar. Erlent 5. ágúst 2026 10:30
Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Stjörnubloggarinn Perez Hilton var fluttur á sjúkrahús í Miami eftir að hafa skaðað sjálfan sig í beinni á TikTok. Áhyggjufullir fylgjendur Perez hringdu í lögregluna sem mætti á vettvang og náði á endanum til bloggarans. Lífið 5. ágúst 2026 10:18
Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Bútur úr SpaceX-eldflaug sem er á stærð við fimm hæða hús og vegur í það minnsta fjögur tonn rakst á tunglið á sjöunda tímanum. Áreksturinn er ekki talinn hættulegur lífi á jörðinni og var hann ekki sýnilegur frá jörðu með berum augum. Búturinn er úr Falcon 9-eldflaug sem var skotið á loft frá Flórída með tvö tunglendingaför út í geim í janúar í fyrra. Erlent 5. ágúst 2026 07:43
Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Lögregluyfirvöld í Kaliforníu í Bandaríkjunum eru nú með mann í haldi sem var handtekinn á einum af golfvöllum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta með ólöglega hlaðna byssu í sínum fórum. Erlent 5. ágúst 2026 07:27
Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Forsvarsmenn heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna hafa varið milljónum dala í eftirlit á samfélagsmiðlum til að vakta hvað verið er að segja um Innflytjenda- og tollaeftirlit Bandaríkjanna, eða ICE, og aðrar stofnanir sem koma að innflytjendamálum vestanhafs. Erlent 4. ágúst 2026 23:21
Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, gekk í dag skrefinu nær því að fá starfið að fullu. Tilnefning hans til embættisins var samþykkt úr dómsmálanefnd öldungadeildarinnar en atkvæðagreiðslan fór 12-10 og fylgdi alfarið flokkslínum. Tilnefningin hefur um nokkuð skeið verið strand í nefndinni vegna andstöðu tveggja þingmanna Repúblikanaflokksins. Erlent 4. ágúst 2026 17:10
UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Bardagasambandið UFC tapaði þrjátíu milljónum Bandaríkjadala á Freedom 250-bardagakvöldinu í Hvíta húsinu þann 14. júní síðastliðinn. Sport 4. ágúst 2026 15:16
Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Bandaríska söng- og leikkonan Ariana Grande ætlar að draga sig úr sviðsljósinu eftir að yfirstandandi tónleikaferðalagi hennar lýkur þann 1. september. Hún hefur sagt aðdáendum sínum frá því að hléið hafi verið skipulagt lengi og sé með engu móti ákveðið í flýti. Grande hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin misseri en meðal annars hefur fólk sett út á það hversu grönn hún sé. Lífið 4. ágúst 2026 13:27
Opnar sig um þunglyndi og depurð Rithöfundurinn George R. R. Martin hefur opnað sig um erfiða glíma við þunglyndi og sorg. Hann hafi misst vini sína, það sé erfitt að eldast og það versta mögulega handan við hornið. Lífið 4. ágúst 2026 13:09
Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik. Erlent 4. ágúst 2026 13:02
„Hún féll saman eins og regnhlíf“ Donald Trump er ósáttur við að Jeanine Pirro, starfandi ríkissaksóknari Washington DC, hafi „guggnað“ og fellt niður ákærur gegn manni sem sakaður var um skemmdarverk á lauginni við Lincoln-minnismerkið í Washington DC. Forsetinn segir að sjónvarpskonan fyrrverandi og núverandi saksóknari hafi „fallið saman eins og regnhlíf“. Erlent 4. ágúst 2026 11:15
Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Nýjasta kvikmyndin um Köngulóarmanninn sló um helgina sögulegt met sem stórmyndin Avengers: Endgame átti. Köngulóarmaðurinn rakaði inn 360 milljónum dala í Bandaríkjunum sem er stærsta opnunarhelgi sögunnar þar í landi. Á heimsvísu halaði myndin inn rúmum 930 milljónum dala og stefnir í að verða með best sóttu kvikmyndum sögunnar. Bíó og sjónvarp 4. ágúst 2026 09:59
Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Rúmlega sextíu þúsund manns hafa yfirgefið heimili sín í Washington-ríki á vesturströnd Bandaríkjanna vegna gróðurelda á svæðinu. Hundruð bygginga hafa eyðilagst og víða er rafmagnslaust. Erlent 4. ágúst 2026 06:55
Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Umfangsmikill sníkjudýrafaraldur sem braust út í Bandaríkjunum í júlímánuði, þar sem helsta einkennið er harkalegur niðurgangur, hefur dregið tvo til dauða. Yfirvöld hafa tengt faraldurinn við salat sem var innflutt og selt af Taylor Farms en keðjur á borð við Taco Bell keyptu salat frá birgjanum. Erlent 3. ágúst 2026 21:30
eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Netverslunarrisinn eBay hefur samþykkt að greiða hjónum í Massachusetts tæplega fimmtíu milljónir Bandaríkjadala, um sex milljarða íslenskra króna, í bætur eftir að fyrrverandi starfsmenn fyrirtækisins beittu þau skipulagðri áreitni og sendu þeim nafnlausar sendingar, meðal annars lifandi kakkalakka og köngulær, sorgarkrans og blóðuga svínagrímu. Viðskipti erlent 3. ágúst 2026 15:01
Viðræður við Íran hefjist á morgun Donald Trump Bandaríkjaforseti segir viðræður við Íran um að binda enda á stríðið í Persaflóa munu hefjast á morgun, mánudag. Þær munu líklega fara fram í gegnum milliliði. Erlent 2. ágúst 2026 22:48
Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Bandaríkjaforseti segist ætla að fyrirskipa bandarískum hersveitum að bíða með frekari árásir á Íran og fullyrðir að bandamenn í Mið-Austurlöndum hafi náð saman um útlínur að samkomulagi sem muni binda enda á stríðið sem hefur staðið yfir í fimm mánuði. Erlent 2. ágúst 2026 08:36
Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Hlé á árásum Bandaríkjamanna og Írana í Mið-Austurlöndum varði stutt. Árásirnar hófust aftur eftir óvæntar árásir Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu og skip á Hormússundi. Árásir þessar voru gerðar af harðlínumönnum í Íran sem vilja ekki viðræður við Bandaríkjamenn og eru raknar til deilna innan stjórnvalda í Teheran. Erlent 1. ágúst 2026 16:01
AGS og gengismálin: Enn er verk að vinna Þótt besta leiðin til að takast á við slíkt ójafnvægi sé að laga undirliggjandi veikleika í innlendri efnahagsstefnu þýðir það ekki að mat á of- eða vanmati gjaldmiðla hafi ekki mikilvægt upplýsingagildi. Það verður ekki nægilega undirstrikað að renminbi er gjaldmiðill sem kínversk stjórnvöld stýra með mjög virkum hætti. Umræðan 31. júlí 2026 11:26
Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa Donald Trump Bandaríkjaforseti segir samkomulag í höfn um afvopnun Hamas á Gasa og brottför Ísraelshers af svæðinu. Málið er þó langt í frá eins einfalt og það virðist, ef marka má yfirlýsingar Hamas og Ísrael. Erlent 31. júlí 2026 06:36
„Hún drap börnin“ Kona sem sökuð er um að hafa myrt þrjú börn sín brast í grát í dómsal í Bandaríkjunum í gær, þegar hún og aðrir í dómsalnum hlustuðu á símtal fyrrverandi eiginmanns hennar til Neyðarlínunnar. Lindsay Clancy er sökuð um að hafa kyrkt fimm ára dóttur sína, þriggja ára son og átta mánaða son og er hún lömuð eftir að hafa reynt að svipta sig lífi í kjölfarið. Erlent 30. júlí 2026 15:29