Dómsmál

Dómsmál

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Fréttamynd

Hlýtur ríf­lega sjö­tíu svipu­högg fyrir að koma fram án höfuðslæðu

Þekkt söngkona í Íran hefur verið fundin sek um birtingu „ruddalegs og ósæmilegs efnis“ og mun hún hljóta sjötíu og fjögur svipuhögg sem refsingu. Efnið var beint streymi frá tónleikum hennar í desember 2024 þar sem hún kom fram án þess að klæðast hijab og í ermalausum kjól. Henni verður einnig gert að yfirgefa heimaland sitt í tvö ár.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum

Tilraunir með svokallaðan kosningahermi benda til þess að með núverandi kosningakerfi náist ekki fullur jöfnuður milli þingflokka í um öðrum hverjum kosningum. Þorkell Helgason stærðfræðingur segir kjördæmissætin oft hafa verið of mörg og jöfnunarsætin of fá.

Innlent
Fréttamynd

Gómaður með gríðar­legt magn af barna­klámi

Tuttugu og fimm ára karlmaður hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi eftir að hafa verið gómaður með um hundrað ljósmyndir og myndbönd af barnaníðsefni í síma sínum. Maðurinn játaði sök en ekki náðist að birta honum dóminn. Hann býr í dag í Danmörku.

Innlent
Fréttamynd

Nauðgaði sofandi sam­býlis­konu sinni og tók myndir

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október vegna gruns um áralangt gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann er meðal annars grunaður um að hafa nauðgað konunni ítrekað á meðan hún svaf en myndir af slíku athæfi fundust í síma hans við rannsókn málsins.

Innlent
Fréttamynd

Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæsta­rétti

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni manns á þrítugsaldri, sem var dæmdur í 3,5 ára fangelsi í Landsrétti fyrir að nauðga þrettán ára stúlku. Hann var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun í héraði, þar sem ekki var talið að hann hefði beitt stúlkuna nauðung. Alla jafna fá þeir sem sýknaðir eru í héraði en sakfelldir í Landsrétti áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar en rétturinn taldi ljóst að hann myndi ekki snúa dómi Landsréttar í tilfelli mannsins og hafnaði því beiðni hans.

Innlent
Fréttamynd

Lárus Welding á enda­stöð hjá MDE

Mál Lárusar Welding á hendur íslenska ríkinu verður ekki tekið fyrir í yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE). Dómstóllinn hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn Lárusi í Stím-málinu svokallaða.

Innlent
Fréttamynd

Skattadrottning þurfti að borga á­lag eftir allt saman

Ríkið hafði betur gegn hjónunum Ingu Dóru Sigurðardóttur og Berki Arnviðarsyni í Landsrétti. Málið varðar 2,5 prósenta skattaálag sem hjónunum var gert að greiða þegar þau fluttu heimilisfestu fyrirtækis síns frá Danmörku til Íslands afturvirkt. Þau fá 23 milljóna króna álagið ekki endurgreitt.

Innlent
Fréttamynd

Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni

Dómsmálaráðuneytið leggur til í nýju frumvarpi að ekki verði lengur hægt að ljúka vændiskaupabrotum með lögreglustjórasekt heldur leiði þau til útgáfu ákæru og dómsmáls. Einnig er lagt til að hámarksrefsing fyrir að kaupa vændi af barni verði hækkuð úr tveggja ára fangelsi í fjögur ár. 

Innlent
Fréttamynd

Ís­lands­ferð með meintri hjá­konu dró dilk á eftir sér

Tveir erlendir ríkisborgarar, karl og kona, hafa verið dæmdir í fimm og þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti. Við skýrslutökur breyttist framburður þeirra beggja iðulega en maðurinn sagði konuna hjákonu sína á meðan konan sagði þau ætla að gifta sig.

Innlent
Fréttamynd

Stein­hissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“

Verjendur skipverjanna í Dettifossmálinu leggja til tveggja til þriggja ára fangelsi yfir skjólstæðingum sínum fyrir hlutdeild í fíkniefnainnflutningi. Saksóknari vill meina að um samverknað sé að ræða og fer fram á sjö ára fangelsi yfir báðum skipverjum. Til vara krefjast verjendurnir vægustu mögulegu refsingar fyrir meint brot. 

Innlent
Fréttamynd

Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum

Verjendur Sævars Arnars Hilmarssonar og Kastriot Pepaj krefjast sýknu af ákæru um fíkniefnaflutning enda sé ósannað að þeir séu hinir svokölluðu „Cloud“ og „Milan“. Ákæruvaldið fer fram á átta og hálfs árs fangelsi yfir þeim. Verjandi Sævars notaðist við stóra bjórflösku sem leikmun í málflutningi sínum.

Innlent
Fréttamynd

Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu

Saksóknari krefst þess að Sævar Örn Hilmarsson og Kastriot Pepaj hljóti átta og hálfs árs fangelsisdóm, meðal annars fyrir skipulagningu fíkniefnainnflutnings í Dettifossmálinu. Tveimur ungum skipverjum verði gert að sæta að lágmarki sjö ára fangelsi.

Innlent
Fréttamynd

Viðar Örn gaf Sæ­vari Louis Vuitton-tösku

Vinir Sævars Arnar Hilmarssonar, sakbornings í Dettifossmálinu, báru skýrslu fyrir dómi í dag til þess að svara fyrir ýmsan varning sem lögreglan lagði hald á, meðal annars Rólex-úr, Louis Vuitton-tösku og Kawasaki-mótorhjól. Meðal vitna var þjóðþekktur knattspyrnumaður.

Innlent
Fréttamynd

Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf

Saksóknari í Súlunesmálinu svokallaða krefst þess að refsing Margrétar Höllu Hansdóttur Löf verði þyngd í sautján ára fangelsi. Málsmeðferð fyrir Landsrétti lauk í liðinni viku og er dóms beðið í málinu.

Innlent