Sakaður um morðtilraun og akstur undir áhrifum fíkniefna Maðurinn sem sakaður er um að hafa ekið inn í þvögu fólks í Liverpool í Englandi í gær, hefur verið formlega handtekinn. Hann er sakaður um morðtilraun og fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Erlent 27. maí 2025 15:55
Fjögur börn í hópi þeirra mest slösuðu Fjögur börn voru í hópi þeirra sem slösuðust þegar bíl var ekið á hóp fólks í Liverpool í kvöld. Málið er ekki rannsakað sem hryðjuverk. Einn hefur verið handtekinn og lögregla telur hann hafa verið einan að verki. Erlent 26. maí 2025 22:07
„Bara sjokk hvað maður var nálægt þessu“ Íslendingur sem var viðstaddur skrúðgöngu til heiðurs knattspyrnuliðinu Liverpool, þar sem bíl var ekið inn í þvögu fólks, segist í áfalli vegna atburðarins. Hún og foreldrar hennar voru steinsnar frá götunni þar sem bílnum var ekið í mannhafið. Erlent 26. maí 2025 19:46
Einn í haldi eftir að ekið var á fólk í Liverpool Karlmaður á sextugsaldri er í haldi lögreglunnar í Liverpool eftir að bíl var ekið á fólk. Þetta mun hafa átt sér stað á skrúðgöngu knattspyrnuliðsins Liverpool sem fer fram þessa stundina. Erlent 26. maí 2025 18:20
Íslenskur doktorsnemi Englandsmeistari: Rannsakar prótín og skorar af línunni í Oxford Sigurbjörn Markússon varð í byrjun maí Englandsmeistari í handbolta með liði Oxford-háskóla. Um helgina vann liðið Ofurbikarinn breska og komst í umspil um sæti í Evrópubikarnum. Næst á dagskrá hjá Sigurbirni er að ljúka við doktorsritgerð í lífefnafræði. Sport 25. maí 2025 07:16
Játar sök vegna smygls á 60 kílóum af kannabisi Jay Emmanuel-Thomas, fyrrum leikmaður Arsenal, hefur játað sök vegna tilraunar til að smygla um 60 kílóum af kannabisi til Englands. Fótbolti 21. maí 2025 15:15
Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Sjónvarpsmaðurinn og fyrrum fótboltamaðurinn Gary Lineker lætum af störfum hjá breska ríkisútvarpinu, BBC, á sunnudag. Hann hættir í skugga ásakana um gyðingahatur. Enski boltinn 19. maí 2025 14:15
Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Fyrrverandi breskur lögregluþjónn á eftirlaunum var handtekinn vegna færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum X þar sem meiningin var að vara við vaxandi gyðingahatri á Englandi. Erlent 10. maí 2025 23:27
Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson og eiginkona hans Kristín Ólafsdóttir fögnuðu fimmtugsafmæli knattspyrnumannsins David Beckham um helgina. Beckham og Björgólfur hafa verið vinir lengi. Lífið 4. maí 2025 23:12
Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Fjórtán börn hafa verið handtekin í tengslum við andlát fjórtán ára drengs sem brann inni í geymsluhúsnæði í bænum Gateshead í Bretlandi á föstudag. Erlent 4. maí 2025 14:38
Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Prófessor í stjórnmálafræði segir sögulegan sigur Umbótaflokksins í sveitarstjórnarkosningum í Englandi vekja upp spurningar hvort flokkurinn gæti steypt Íhaldsflokknum af stalli. Sigurinn sé í takt við „skringilega“ skautun víða um heim. Erlent 4. maí 2025 13:45
Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Fimm menn, þar af fjórir íranskir ríkisborgarar, voru handteknir í Englandi í tengslum við rannsókn á undirbúningi hryðjuverka. Erlent 4. maí 2025 09:56
Munaði sex atkvæðum Umbótaflokkurinn (e. Reform) á Bretlandi, hægripopúlistaflokkurinn sem leiddur er af Nigel Farage, vann sigur í aukakosningum í kjördæmi í norðvesturhluta Englands í gær. Flokkurinn hlaut sex atkvæðum fleiri en Verkamannaflokkurinn í kjördæminu Runcorn and Helsby og náði þar með að hirða þingsæti af Verkamannaflokknum. Erlent 2. maí 2025 06:41
Tugþúsundir fögnuðu titlinum í Newcastle Tugþúsundir fólks gengu um götur Newcastle í gær og fögnuðu deildarbikarnum, sem liðið vann í úrslitaleik gegn Liverpool á dögunum og endaði sjötíu ára bið stuðningsmanna eftir titli. Enski boltinn 30. mars 2025 07:03
Fuglaflensa greinist í sauðfé á Englandi Fuglaflensa hefur greinst í sauðfé í fyrsta sinn í heiminum. Afbrigðið H5N1 greindist í kind í Yorkshire á Englandi, þar sem sjúkdómurinn hafði áður komið upp í fuglum. Erlent 24. mars 2025 12:48
Heathrow aftur starfandi eftir brunann Starfsemi Heathrow-flugvallar er aftur komin í eðlilegt horf eftir að umfangsmikill bruni í rafstöð í Lundúnum olli rafmagnsleysi á flugvellinum. Erlent 22. mars 2025 11:37
Heathrow lokað fram til miðnættis og 1.300 flugferðir felldar niður Heathrow-flugvelli hefur verið lokað í kjölfar þess að eldur kom upp í rafstöð í vesturhluta Lundúna. Völlurinn verður lokaður fram til miðnættis en lokunin er sögð munu hafa áhrif á flugumferð um allan heim. Erlent 21. mars 2025 06:19
Rússneskur skipstjóri ákærður fyrir skipaáreksturinn banvæna Skipstjóri fraktskipsins Solong hefur verið ákærður og farið fyrir dóm í Hull í Englandi. Skipið sigldi á efna- og olíuflutningaskipið Stena Immaculate í Norðursjó fyrr í vikunni með þeim afleiðingum að einn áhafnarmeðlimur Solong lést. Erlent 15. mars 2025 11:54
Fraktskipið flutti gáma fyrir Samskip Multimodal Fraktskipið Solong sem skall á efna- og olíuflutningaskipið Stena Immaculate flutti gáma fyrir Samskip Multimodal. Árekstur skipanna varð úti fyrir Hull á Englandi í morgun og olli miklu tjóni. Erlent 10. mars 2025 23:00
Verkafólk snýr aftur til vinnu hjá Bakkavör Starfsmenn í verksmiðju matvælafyrirtækisins Bakkavarar í Spalding á Englandi eru snúnir aftur til vinnu eftir sex mánaða verkfall. Starfsfólkið féllst að lokum á tilboð sem það hafnaði í október í fyrra. Viðskipti innlent 10. mars 2025 11:13
Mótmælandi staðið á syllu á Big Ben frá því í morgun Lögreglan í Lundúnum hefur girt af svæðið kringum Westminsterhöll eftir að berfættur maður klifraði upp á syllu á Big Ben með Palestínufána. Erlent 8. mars 2025 11:35
Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Lögreglan í Lundúnum hefur ákært 66 ára gamla konu fyrir að hafa banað fimm ára barni með því að setja það í sjóðandi heitt bað. Barnið, sem hét Andrea Bernard, hlaut alvarleg brunasár og lést á sjúkrahúsi rúmum mánuði síðar. Erlent 19. febrúar 2025 15:38
52 ár fyrir Southport-morðin Átján ára karlmaður sem játaði að hafa stungið þrjár ungar stelpur til bana í Southport á Englandi var dæmdur í að minnsta kosti 52 ár í fangelsi. Morðin ollu miklum óeirðum í Bretlandi. Erlent 23. janúar 2025 18:50
Táningur handtekinn vegna ummæla í garð Havertz og eiginkonu hans Sautján ára gamall táningur hefur verið handtekinn vegna þeirra viðbjóðslegu ummæla sem látin voru falla í garð Kai Havertz og eiginkonu hans eftir að leikmaðurinn brenndi af vítaspyrnu í tapi Arsenal gegn Manchester United í ensku bikarkeppninni í fótbolta. Enski boltinn 22. janúar 2025 07:03
Játaði að hafa myrt þrjár ungar stúlkur í Southport Átján ára gamall karlmaður játaði að hann hefði stungið þrjár ungar stúlkur til bana og sært tíu aðra í árás í Southport á Englandi þegar réttarhöld hófust yfir honum í morgun. Hann viðurkenndi einnig að hafa eitrið rísín og bækling frá hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda í fórum sínum. Erlent 20. janúar 2025 12:33
Máluðu gröf Charles Darwin í mótmælaskyni Tvær konur voru handteknar í London eftir að hafa málað á gröf náttúrufræðingsins Charles Darwin. Þær voru á vegum breska loftlagsaðgerðahópsins Just Stop Oil. Hækkun meðalhitastigsins í heiminum árið 2024 náði yfir 1,5°C mörkin. Erlent 13. janúar 2025 16:37
Biðtíminn í umferðinni hvergi lengri en í Lundúnum Hvergi í Evrópu þurfa ökumenn að bíða lengur í umferðinni en í Lundúnum, þar sem meðalbiðtíminn var 101 klukkustund í fyrra samkvæmt greiningarfyrirtækinu Inrix. Erlent 6. janúar 2025 07:26
Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Kona sem hvarf fyrir 52 árum fannst á lífi eftir að lögregla í Englandi birti gamla og óskýra ljósmynd af henni á dögunum. Fékkst þar með botn í eitt elsta opna mannhvarfsmál Bretlands. Erlent 2. janúar 2025 12:40
Ringo tróð upp á tónleikum Paul McCartney Trommarinn Ringo Starr birtist óvænt á sviði á tónleikum Paul McCartney í O2 Arena í Lundúnum í gærkvöldi. Lífið 20. desember 2024 07:18
Kona lést í skotárás í Lundúnum Kona á fimmtugsaldri lést þegar skothríð hófst í norðurhluta Lundúna í gærnótt. Tveir karlmenn á fertugsaldri voru særðir og er annar þeirra þungt haldinn á sjúkrahúsi. Erlent 15. desember 2024 12:30