Heimsmeistarar fá hring Bandaríkin hafa heldur betur sett svip sinn á heimsmeistaramótið í fótbolta. Nú hefur Fifa tilkynnt að þeir sem vinna úrslitaleikinn á sunnudaginn fá glæsilegan hring líkt og tíðkast í bandarískum íþróttum. Fótbolti 17. júlí 2026 10:00
Flugóður forseti FIFA Margt hefur verið rætt og ritað um Gianni Infantino, forseta FIFA, í kringum HM karla í fótbolta sem fram fer vestanhafs. Umhverfisverndarsinnar setja út á gríðarlegt kolefnisspor hans á mótinu. Fótbolti 17. júlí 2026 08:02
Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótboltadómarinn Slavko Vincic var gráti nær af hamingju og stolti þegar hann fékk að vita að hann yrði fyrsti Slóveninn til þess að dæma úrslitaleik á HM. Hann býr yfir mikilli reynslu og dæmdi meðal annars síðasta tapleik Argentínu á HM. Fótbolti 17. júlí 2026 07:34
Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Svipurinn á Lionel Messi eftir samskipti hans við Jude Bellingham náðist á mynd og hefur verið á flugi á netmiðlum. Það leit út fyrir að Bellingham hefði kveikt upp í Messi sem var frábær á lokakaflanum þegar Argentína kom til baka og skoraði tvö mörk á lokamínútunum í sigri á Englandi í undanúrslitaleik HM. Fótbolti 17. júlí 2026 07:02
„Fjögur ár eru langur tími“ Fyrirliði enska landsliðsins er óviss um hvort hann eigi eftir að spila á fleiri heimsmeistaramótum. Fótbolti 17. júlí 2026 06:32
„Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Undanúrslitaleikurinn á þriðjudagskvöldið á milli Frakklands og Spánar var martröð fyrir franska varnarmanninn Lucas Digne. Fótbolti 16. júlí 2026 23:17
Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Hver hefði trúað því að uppstoppaður þvottabjörn væri einn af eftirsóttustu mununum eftir heimsmeistaramótið í fótbolta? Fótbolti 16. júlí 2026 22:31
Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Argentínski fótboltmaðurinn Valentin Barco fékk ekki að koma inn á völlinn í undanúrslitaleik Argentínu og Englands en þrátt fyrir engar spilamínútur tókst honum samt að pirra Englendinga og koma sér í fréttirnar. Fótbolti 16. júlí 2026 20:00
Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Bandaríkjaforseti mun vera meðal áhorfenda á úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta á milli Spánar og Argentínu en þetta staðfesti Hvíta húsið í kvöld. Fótbolti 16. júlí 2026 17:56
Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Falklandseyjar eru argentínskar, að sögn leikmanna argentínska landsliðsins, en ekki að mati bresku ríkisstjórnarinnar. Fótbolti 16. júlí 2026 17:31
Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Craig Gordon, markvörður Hearts í Skotlandi og elsti leikmaður HM í sumar, hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna. Fótbolti 16. júlí 2026 17:03
Saliba frá í nokkra mánuði Franski varnarmaðurinn William Saliba verður frá keppni næstu 4-5 mánuðina vegna bakmeiðsla. Enski boltinn 16. júlí 2026 15:45
Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, stefnir á að halda áfram að þjálfa liðið fram yfir Evrópumótið 2028. Hann hefur sætt gagnrýni fyrir skiptingarnar sínar þegar England reyndi að halda forystunni á móti Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fótbolti 16. júlí 2026 15:16
Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ „Það var bara erfitt að horfa á þetta,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands og sparkspekingur, um endalok Englands á HM. Hann tekur undir gagnrýni á kollega sinn Tomas Tuchel en segir þjálfara þurfa að taka ákvarðanir fljótt og það geti leitt til mistaka. Fótbolti 16. júlí 2026 13:03
Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af því að enn fleiri muni ánetjast veðmálum vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta og þróa með sér spilafíkn. Veðmálastarfsemi hafi verið venjubundin af stanslausri auglýsingaherferð og umræðu þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar. Innlent 16. júlí 2026 12:36
Argentíska landsliðið má búast við sekt Argentína vann England í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Argentíska liðið má þó búast við sekt þar sem leikmenn liðsins veifuðu fána með pólitískum skilaboðum eftir leik. Fótbolti 16. júlí 2026 12:30
„Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Cristian Romero, varnarmaður argentínska landsliðsins og Tottenham á Englandi, skaut föstum skotum á sjónvarpsmanninn og fyrrverandi fótboltamanninn Gary Neville eftir sigur Argentínu á Englandi í undanúrslitum á HM í gærkvöld. Fótbolti 16. júlí 2026 12:01
Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Yfirburðir Argentínumanna voru algjörir á þeim tæplega 40 mínútum sem enn voru eftir af leiknum, eftir að England komst í 1-0 í undanúrslitum á HM í fótbolta í gær. Fótbolti 16. júlí 2026 11:32
Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Það voru bara fimm mínútur eftir af venjulegum leiktíma og England enn 1-0 yfir þegar flúraði miðjumaðurinn Enzo Fernández sýndi í gærkvöld eina af ástæðum þess að hann er dýrasti Argentínumaður í sögu fótboltans. Fótbolti 16. júlí 2026 10:01
Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Micah Richards fékk þær harmafréttir að faðir hans væri látinn skömmu áður en bein útsending BBC frá leik Englands og Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta hófst. Fótbolti 16. júlí 2026 09:34
Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Jude Bellingham lét skapið hlaupa með sig í gönur í gærkvöld, eftir 2-1 tap Englands gegn Argentínu í undanúrslitum HM í fótbolta. Fótbolti 16. júlí 2026 07:35
Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Þriðjudagskvöldið var frábært fyrir spænska undrabarnið Lamine Yamal en nú er komið í ljós að óprúttnir aðilar ætluðu að nýta sér fjarveru hans á heimsmeistaramótinu hinum megin við Atlantshafið. Fótbolti 15. júlí 2026 23:15
De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Luis de la Fuente, þjálfari Spánar, sagði að lið sitt „teldi sig vera ósigrandi“ eftir að hafa komist í úrslitaleik heimsmeistaramótsins með 2-0 sigri á Frakklandi. Fótbolti 15. júlí 2026 22:46
„Mig dreymdi þetta“ Lautaro Martínez var hetja Argentínumanna í kvöld en hann kom inn á völlinn sem varamaður og skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á Englandi í undanúrslitaleik HM þegar hann skoraði með skalla eftir frábæra fyrirgjöf Lionel Messi. Fótbolti 15. júlí 2026 22:15
Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Argentínska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir 2-1 endurkomusigur á Englandi í leik sem var ekki bara fótboltaleikur. Fótbolti 15. júlí 2026 21:51
„Miður mín fyrir hönd allra“ Harry Kane, fyrirliði Englands, sá sætið í úrslitaleiknum í hillingum þegar sex mínútur voru eftir og England 1-0 yfir. Argentínumenn skoruðu tvö mörk í lokin og sáu til þess að sextíu ára bið Englendinga eftir úrslitaleiknum lengist enn. Fótbolti 15. júlí 2026 21:35
Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Heimsmeistarar Argentínu eru komnir í úrslitaleikinn á öðru heimsmeistaramótinu í röð eftir 2-1 endurkomusigur á Englendingum í undanúrslitaleik HM í fótbolta í Atlanta í kvöld. Fótbolti 15. júlí 2026 21:03
„Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Frönsku stjörnurnar fengu harða útreið í heimalandinu þegar franskir fjölmiðlar gerðu upp tapið í undanúrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu. Fótbolti 15. júlí 2026 19:15
FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, er ekki hætt að reyna að græða peninga á heimsmeistaramótinu í fótbolta og nú geta áhugasamir greitt fyrir að mæta á blaðamannafundinn fyrir úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Fótbolti 15. júlí 2026 18:52
Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, gaf lítið fyrir gagnrýni á spilamennsku liðsins á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu fyrir undanúrslitaleikinn gegn Englandi í kvöld. Enski boltinn 15. júlí 2026 16:47