KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Alvarlegt atvik sem kom upp í gær, þar sem sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn, er á afar viðkvæmu stigi. Það er einnig í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Í tölvupósti frá félaginu segir að nú sé mikilvægt að sýna samhug og hlúa hvert að öðru. Innlent 18.9.2026 18:34
Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn hjá Gróttu fyrir stefnumótunarfund Sundsambands Íslands í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Forseti ÍSÍ lítur málið alvarlegum augum og hlúði að sundþjálfaranum sem slasaðist á vettvangi. Innlent 18.9.2026 14:54
Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Hálfsársuppgjör Seltjarnesbæjar fyrir árið 2026 sýnir svo ekki verður um villst að fjárhagsstaða bæjarins er alvarleg. Skoðun 10.9.2026 15:32
Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda Húsráðandi á Seltjarnarnesi lenti illa í dósaþjófi sem ráfaði um garð sinn. Eftir að hafa tilkynnt konuna, sem vígbúin var dósum og öðru slíku, til lögreglu hélt húsráðandi út í garðinn og reyndi að ræða við konuna. Hún brást þá hin versta við og hótaði að bíta hann. Innlent 5. ágúst 2026 17:45
Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Umfangsmiklar götulokanir verða í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi á meðan almyrkvi á sólu sést yfir vesturhluta landsins í ágúst. Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Einn helsti stjörnuáhugamaður landsins ætlar sjálfur að fylgjast með sólmyrkvanum heima hjá sér í Reykjavík. Innlent 28. júlí 2026 19:57
Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Hjónin Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, og Birna Ósk Hansdóttir, verkefna- og viðburðastjóri, hafa sett 222 fermetra einbýlishús sitt á Seltjarnarnesi á sölu. Ásett verð hússins er 214,9 milljónir króna. Lífið 25. júlí 2026 19:20
Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Tímabilskort hækka um rúm þrjú prósent í nýrri gjaldskrá Strætó. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt. Neytendur 14. júlí 2026 08:19
Velja Viljandi villt Bæjaryfirvöld í Seltjarnarnesbæ hafa ákveðið að slást í hóp annarra sveitarfélaga á landinu og taka þátt í verkefninu Viljandi vilt. Verkefnið snýst um að leyfa gróðri að vaxa óáreittur. Innlent 5. júlí 2026 07:41
Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest stækkun friðlandsins við Gróttu á Seltjarnarnesi. Hið friðlýsta svæði er alls um 1,5 km² að stærð. Með endurskoðaðri friðlýsingu nái verndin nú einnig til Seltjarnar, sem er eitt mikilvægasta fæðu- og hvíldarsvæði fugla á svæðinu. Unnið var að friðlýsingunni í sex ár. Innlent 1. júlí 2026 21:35
Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Úlfar Lúðvíksson fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum er meðal þeirra sem sóttu um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 29. júní 2026 09:39
„Fórnarlambið látið borga brúsann“ Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur á Seltjarnarnesi lenti í klóm svikahrappa sem höfðu tæpa hálfa milljón króna af kreditkortinu hans. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir áratuga viðskipti við Íslandsbanka. Innlent 9. júní 2026 11:14
Lokatölur á Seltjarnarnesi: Sjálfstæðismenn halda velli Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta sínum og Samfylking, Viðreisn og óháðir tapa manni á Seltjarnarnesi. Miðflokkurinn fær einn fulltrúa. Innlent 17. maí 2026 01:11
Oddvitaáskorunin: Gleymdi að bera kaupin undir eiginkonuna Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 14. maí 2026 13:30
Gjöld fyrir frístund rokið upp Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent. Innlent 13. maí 2026 10:04
Framsýni er besta vörnin fyrir Seltjarnarnes Loftslagsbreytingar eru nú þegar farnar að hafa áhrif á Seltjarnarnes. Nú þarf sveitarstjórn sem þorir að horfast í augu við stöðuna, grípa til forvarna og verja íbúa, eignir og innviði með markvissum aðgerðum. Skoðun 11. maí 2026 08:22
Þingmaður á verðlaunapalli með skólastrákum: „Auðvitað er þetta fyndið“ Þingmaður Samfylkingarinnar gerði sér lítið fyrir og hljóp fyrstur í mark í karlaflokki í 3,5 kílómetra hlaupi í Neshlaupinu í gær. Hann rataði þannig á verðlaunapall, en með honum þar stóðu tveir ungir piltar, annar tæplega tíu ára og hinn þriggja. Ekki er þó allt sem sýnist, að sögn þingmannsins. Lífið 10. maí 2026 19:47
Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Tinna Magnúsdóttir yfirframleiðandi á Rúv og Karvel Pálmason sérfræðingur hjá Marel hafa sett glæsilega hæð sína á Seltjarnarnesi á sölu. Útsýnið er ekki af verri endanum. Lífið 4. maí 2026 11:01
Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Átak Reiðhjólabænda, Gul hjól, hófst í gær og stendur út mánuðinn. Átakið snýr að vitundarvakningu bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi í umferðinni. Hjólum er stillt upp þar sem óhöpp eða slys hafa átt sér stað. Innlent 2. maí 2026 11:30
Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Ökumaður var handtekinn í Kópavogi eða Breiðholti í gær eftir stutta eftirför lögreglunnar. Í dagbók kemur fram að við handtöku hafi komið í ljós að hann hafi verið ölvaður og því eigi hann von á kæru vegna fjölmargra umferðarlagabrota. Innlent 2. maí 2026 07:20
Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Seltjarnarnesbær skilaði tapi af A-hluta níunda árið í röð. Miðað við íbúafjölda er rekstrarhalli sveitarfélagsins þrefalt meiri en rekstrarhalli Reykjavíkurborgar, að sögn minnihlutans í bæjarstjórn Seltjarnarness. Innlent 29. apríl 2026 22:14
Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Einn maður var fluttur á bráðamóttöku í dag eftir hnífstungu í heimahúsi í Árbæ í Reykjavík. Annar maður var vistaður í fangageymslu og var sá í annarlegu ástandi að sögn lögreglu sem lítur á málið sem alvarlega líkamsárás. Innlent 28. apríl 2026 18:20
Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Eftir að Seltjarnarnesbær sagði upp dagdvalarsamningi við Vigdísarholt, sem sér um dagdvalar- og hjúkrunarrýmisþjónustu á Seltjörn, bíða forsvarsmenn eftir svörum frá bænum um hver taki við í lok árs. Mikil samlegð sé á milli dagdvalarinnar og hjúkrunarheimilisins svo staða þess síðarnefnda verður metin. Bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar ítrekar að ekkert rof verði á þjónustunni. Innlent 24. apríl 2026 10:34
Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu „Ég er enn að fá hingað fullt af fólki sem ætlar að fá sér ís,“ segir Teitur Árni Sigurðarson, nítján ára athafnamaður sem var að opna bílasölu á Seltjarnarnesinu þar sem ísbúðin Huppa var áður. Viðskipti innlent 22. apríl 2026 14:10
Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Lögregluþjónar voru kallaðir til verslunar á Seltjarnarnesi í dag þar sem einhver hafði greitt eða reynt að greiða fyrir vörur með fölsuðum peningaseðli. Í dagbók lögreglunnar segir að málið sé í rannsókn en ekki fylgja frekari upplýsingar eins og það hvort viðkomandi hafi tekist að greiða með seðlinum eða ekki eða hvort einhver hafi verið handtekinn. Innlent 20. apríl 2026 17:38