Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Íbúar í hverfi 108 í Reykjavík eru uggandi yfir flutningi kaffistofu Samhjálpar í hverfið. Þeir segjast óttast að börn verði fyrir aðkasti eða vitni að ofbeldi eða vímuefnaneyslu sem þau gætu tekið inn á sig. Þeir óttast einnig að innbrotum muni fjölga samhliða flutningi kaffistofunnar. Þeir, ásamt fleirum, standa fyrir opnum íbúafundi um flutninginn í kvöld. Innlent 4.2.2026 15:30
Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Leikskólastjórar á öllum borgarreknum leikskólunum lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu skólanna og gagnrýna borgaryfirvöld. Þeir krefjast aðgerða og lýsa yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku svokallaðar Reykjavíkurleiðar. Þolinmæðin sé á þrotum og skólastjórnendur treysti sér að óbreyttu ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er innan skólanna. Innlent 4.2.2026 15:27
Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Rektor Háskólans á Bifröst segist hafa fengið ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Stjórn skólans ætlar að skipa óháðan utanaðkomandi aðila til þess að leiða sáttaferli innan skólans. Innlent 4.2.2026 13:58
Hlúum að hjarta skólans Þegar við hittum nýtt fólk er stundum spurt: Hvað gerir þú?Þegar ég er spurð að þessu svara ég sannleikanum samkvæmt: Ég er skólasafnskennari. Skoðun 30. janúar 2026 15:00
Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Grindavíkurbær auglýsir forskráningu í leik- og grunnskóla fyrir haustið 2026. Ætlunin er að kanna eftirspurn. Innlent 29. janúar 2026 19:47
Samtalið er hafið – farsældarráðin eru lykillinn Undanfarið hafa málefni barna og ungmenna verið mikið til umræðu í samfélaginu. Áhyggjur af líðan, frammistöðu í skóla, ofbeldi og félagslegri einangrun hafa kallað fram háværar raddir um að eitthvað þurfi að breytast. Skoðun 29. janúar 2026 18:32
Ógnarstjórn talmafíunnar Íslenska talmeinaþjónustan fyrir börn hefur verið í viðvarandi krísu í meira en áratug. Biðlistar lengjast, ábyrgð er óljós og lausnir dragast. Þetta er staða sem ég þekki af eigin reynslu sem móðir, ekki úr skýrslum heldur úr daglegu lífi með barni mínu, sem beið tæp þrjú ár eftir talmeinaþjónustu, þar sem biðin var raunveruleg, afleiðingarnar sýnilegar og óvissan stöðugur fylgifiskur. Skoðun 29. janúar 2026 16:30
Guðjón endurkjörinn og Simon líka Guðjón Hreinn Hauksson var endurkjörinn formaður Félags framhaldsskólakennara (FF) til næstu fjögurra ára. Mótframbjóðandi hans, Simon Cramer Larsen, var endurkjörinn til stjórnar. Kosið var í fjögur embætti stjórnar á sama tíma og kosið var um formann. Innlent 29. janúar 2026 12:32
Læra börn stafi og hljóð í Byrjendalæsi? Í umræðu um kennsluaðferðina Byrjendalæsi kemur hvað eftir annað fram sá misskilningur að börnum sé ekki kennd lestrartæknin, þ.e. að þekkja stafi og hljóð þeirra og æfa fimi í lestri, með nægilega markvissum hætti. Skoðun 29. janúar 2026 09:32
Vísar ásökunum um óeðlileg afskipti í kosningabaráttu á bug Guðjón Hreinn Hauksson, sitjandi formaður Félags framhaldsskólakennara (FF) og frambjóðandi til formanns, vísar ásökunum mótframbjóðanda síns um óeðlileg afskipti varaformanns af kosningu á bug. Tveir eru í framboði til formanns, Guðjón og Simon Cramer Larsen, stjórnarmaður í FF. Kosning hófst þann 26. janúar og lýkur í dag. Guðjón Hreinn hefur gegnt formennsku frá árinu 2019. Innlent 29. janúar 2026 08:32
Fyrir hverja eru leikskólar Leikskólinn er fyrsta skólastigið þar sem okkar minnstu og mikilvægustu samborgarar taka sín fyrstu skref í að verða hluti af samfélaginu. Þar er félagsfærni, málþroski og öryggi þeirra byggt upp undir vökulu auga starfsfólks sem hefur atvinnu af því að stuðla að öryggi og vellíðan barna í námi og leik. Leikskólar eru líka grundvallarforsenda þess að foreldrar ungra barna geti tekið þátt í atvinnulífinu. Skoðun 29. janúar 2026 08:17
Karlarnir leiða að ósk kvennanna Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali leiðir lista Okkar borgar – Þvert á flokka í sveitarstjórnarkosningum í vor. Baldur Borgþórsson mun skipa annað sæti listans. Tilkynnt var um framboðið í október í fyrra. Hlynur Áskelsson, kennari í Fjölbrautaskólanum í Ármúla, tekur þriðja sæti á listanum. Sigfús og Baldur voru til viðtals um væntanlegt framboð í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 28. janúar 2026 10:35
Fimm rangfærslur um Byrjendalæsi Mánudaginn 12. janúar 2026 birtist í Morgunblaðinu „fréttaskýring“ þar sem fjallað er um kennsluaðferðina Byrjendalæsi, undir heitinu „Vikið frá vísindum læsisfræðinnar“. Í fréttaskýringunni lætur höfundur hennar vaða á súðum um ýmislegt sem ekki stenst nánari skoðun enda er hlaðvarp bandarískrar blaðakonu eina heimildin sem vitnað er til. Hvergi er vitnað í fræðafólk eða rannsakendur á sviði læsismenntunar. Skoðun 28. janúar 2026 08:16
Eru mannréttindi martröð? Í nýlegri skoðunargrein á Vísi fjallar Gunnar Salvarsson, fyrrverandi skólastjóri, um skóla án aðgreiningar undir fyrirsögninni „martraðakenndur draumur“. Slík gífuryrði ein og sér sýna glöggt að með óvarlegum og illa ígrunduðum ummælum sínum í Kastljósi og víðar hefur Inga Sæland – barna- og menntamálaráðherra þessa lands – greinilega gefið opið skotleyfi á stefnuna sem kennd er við skóla án aðgreiningar. Skoðun 27. janúar 2026 16:32
Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Nemendur í Réttarholtsskóla tóku sig saman og skipulögðu handboltamót í skólanum. Þeir fengu þaulreyndan handboltamann til að sjá um dómgæslu á mótinu og eru bjartsýnir fyrir hönd íslenska landsliðsins á Evrópumótinu Innlent 26. janúar 2026 23:17
Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Húsið að Hagamel 55 sem um áratuga skeið hefur hýst starfsemi leikskólans Vesturborgar hefur kvatt götuna. Undanfarna daga hafa vinnuvélar unnið við að rífa húsið sem er 101 árs gamalt en tökumaður Sýnar leit þar við. Innlent 26. janúar 2026 17:11
Skóli án aðgreiningar: aðferð til að tryggja mannréttindi Umræða um skóla án aðgreiningar hefur á undanförnum misserum einkennst af vaxandi efasemdum og jafnvel uppgjöf. Bent er á raunverulegar áskoranir í skólakerfinu: álag á kennara, skort á stuðningi, flóknar og fjölbreyttar þarfir nemenda og kerfi sem nær ekki að mæta þeim með fullnægjandi hætti. Þessar áhyggjur eru skiljanlegar og þær ber að taka alvarlega. Skoðun 26. janúar 2026 17:01
Hvenær er það besta nógu gott? Undanfarnar vikur hafa verið annasamar hjá okkur sem lifum og hrærumst í menntamálum. Nýr ráherra málaflokksins kom inn með miklum látum. Skoðun 26. janúar 2026 14:00
Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir segist ekki merkja það innan Samfylkingarinnar að konum sé ekki treyst fyrir ábyrgðastöðum eða að það halli á konur. Hún segist ekki taka undir greiningu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur á því af hverju hún hlaut ekki næga kosningu til oddvita. Steinunn segist brenna fyrir leikskóla- og velferðarmálum. Innlent 26. janúar 2026 09:37
Kerfið hafi brugðist Mennta- og barnamálaráðherra vill sérstaklega líta til þeirra sem hætta í framhaldsskóla, meðal annars vegna erfiðleika með lesskilning. Hún vill koma saman öllum hagsmunaaðilum menntakerfisins saman á fund. Hún og formaður Kennarasambandsins horfa til finnsku leiðarinnar. Innlent 25. janúar 2026 13:44
Stóru málin: Börn í leikskólum, ekki á biðlistum Lausn á biðlistum eftir leikskóla á að vera forgangsmál í Reykjavík. Það er augljóslega lykilatriði fyrir velferð barna og fjölskyldna en einnig fyrir jafnrétti og efnahag. Skoðun 25. janúar 2026 12:01
Formannsslagur FF – breytingar, samfella og spurningin um forgangsröðun Formanns- og stjórnarkjör í Félagi framhaldsskólakennara fer fram dagana 26.–29. janúar. Í aðdraganda kosninganna hefur umræða um stöðu framhaldsskólakennara, kjaramál og innra starf félagsins fengið aukið kastljós. Skoðun 24. janúar 2026 17:03
Játaði meira og meira eftir því sem á leið Framburður manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn barni sem hann mun hafa framið meðan hann starfaði á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík þótti að mati lögreglu samræmast frásögn barnsins af meintum brotum hans. Maðurinn játaði í skýrslutökum hjá lögreglu að hafa brotið tvívegis á barninu. Innlent 23. janúar 2026 09:56
Kristinn Svavarsson er látinn Kristinn Svavarsson, kennari og saxófónleikarinn sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Mezzoforte, er látinn 78 ára að aldri. Tónlist 22. janúar 2026 22:04