Uppgjörið: Grindavík - Valur 109-82 | Grindvíkingar í úrslit eftir sannfærandi sigur Það var alvöru oddaleiksstemming í troðfullri HS Orku höll í kvöld. Eftir algjört orkuleysi og lítinn ákafa í síðasta leik komu Grindvíkingar trítilóðir til leiks í kvöld, í það minnsta eftir fyrsta leikhluta og unnu að lokum mjög sannfærandi sigur. Körfubolti 6.5.2026 19:32
Þór/KA - Stjarnan 2-2 | Sterk endurkoma hjá norðankonum Þór/KA og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í þriðju umferð Bestu deildar kvenna á VÍS-vellinum fyrir norðan í dag. Gestirnir leiddu með tveimur mörkum í hálfleik en norðankonur komu til baka og náðu inn jöfnunarmarki í lokin. Íslenski boltinn 6.5.2026 16:17
Valur – ÍBV 2-3 | Nýliðarnir á toppnum með fullt hús stiga Nýliðar ÍBV gerðu frábæra ferð á N1-völlinn á Hlíðarenda er liðið lagði Val að velli, 3-2, í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 6.5.2026 15:46
Uppgjörið: ÍBV 23-25 Valur | Valskonur einum sigri frá Íslandsmeistaratitli Handbolti 5.5.2026 17:17
„Nú er það bara kassinn út á fimmtudaginn“ „Mér fannst augnablikið vera með okkur þegar við vorum komnir í seinni framlenginguna,“ sagði Róbert Aron Hostert eftir súrt tap Vals gegn FH í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 4. maí 2026 22:45
Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Helgi Jónas Guðfinnsson, goðsögn í sögu Grindavíkur í körfubolta og faðir núverandi leikmanns félagsins Arnórs Tristans, gagnrýnir skipulag liðsins í færslu á samfélagsmiðlum eftir tap Grindavíkur gegn Val í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildarinnar. Körfubolti 4. maí 2026 22:25
„Leið eins og við værum búnir að vinna þennan leik svona fimm sinnum“ Daníel Freyr Andrésson reyndist hetja FH-inga þegar hann varði víti á lokasekúndunum í tvíframlengdum leik FH og Vals í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 4. maí 2026 22:19
Uppgjörið: FH - Valur 37-36 | FH knúði fram oddaleik í maraþonleik FH og Valur munu mætast í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir dramatískan sigur FH-inga í tvíframlengdum fjórða leik, 37-36. Handbolti 4. maí 2026 21:52
Umfjöllun: Valur 85-79 Grindavík | Einvígið fer í oddaleik Valur tryggði sér í kvöld oddaleik um sæti í í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta með sex stiga sigri gegn Grindavík í fjórða leik liðanna. Með bakið upp við vegg stigu Valsmenn upp og sigldu heim sigri. Körfubolti 4. maí 2026 21:43
„Það er ekkert grín að mæta í Kaplakrika“ Línumaðurinn Jón Bjarni Ólafsson segir FH-inga staðráðna í að knýja fram oddaleik í einvíginu gegn Valsmönnum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Hann hefur trú á að heimavöllurinn vegi þungt í fjórða leik FH og Vals í kvöld. Handbolti 4. maí 2026 15:16
Thea fer í rúmenskt félag með íslenska tengingu Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir heldur út í atvinnumennsku í sumar, að afloknu úrslitaeinvíginu með Val gegn ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 4. maí 2026 10:31
Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, segir að búið sé að gera úlfalda úr mýflugu með fréttum af látunum í leikmannagöngunum á Hlíðarenda eftir tap liðsins gegn KR í Bestu deildinni á laugardaginn. Íslenski boltinn 4. maí 2026 08:21
Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda KR vann 4-1 sigur á Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í fótbolta í gær og treysti þannig stöðu liðsins á toppi deildarinnar, þar sem liðið er með fullt hús stiga. KA vann þá 1-0 sigur á Þór í Akureyrarslag. Íslenski boltinn 3. maí 2026 13:08
Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Ósætti var milli leikmanna KR og Hermanns Hreiðarssonar, þjálfara Vals, eftir leik liðanna að Hlíðarenda í gær. Hermann er sakaður um að hafa kýlt Ástbjörn Þórðarson, leikmann KR, í þindina. Íslenski boltinn 3. maí 2026 11:52
Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð KR vann sannfærandi 4-1 sigur á Val í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Liðið er áfram með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. Íslenski boltinn 2. maí 2026 22:30
„Eins og stúdentsprófin í MR“ „Ég er auðvitað bara mjög ánægður. Þetta var mjög öflug frammistaða. Það er fátt betra í fótboltalífinu manns en að vinna Val á Hlíðarenda,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 4-1 sigur hans manna á Val í Bestu deild karla í kvöld. Íslenski boltinn 2. maí 2026 22:06
„Það fer í taugarnar á mér“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var súr með 4-1 tap sinna manna fyrir KR á Hlíðarenda í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 2. maí 2026 21:48
Valur - ÍBV 39-33 | Fyrsta högg Valskvenna í markaleik Valur vann ÍBV í fyrsta leik úrslitaeinvígis um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta á Hlíðarenda í dag. Eyjakonur voru yfir í hálfleik en heimakonur voru sterkari eftir því sem leið á og unnu sex marka sigur, 39-33. Handbolti 2. maí 2026 16:30
„Hefði haldið að það væri stefna HSÍ að vernda unga leikmenn“ Magnús Stefánsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV í handbolta, gerir athugasemdir við starfshætti HSÍ í aðdraganda úrslitaeinvígis ÍBV og Vals um Íslandsmeistaratitilinn. Stjórn sambandsins bregðist skyldum sínum gagnvart barnungum iðkendum. Handbolti 2. maí 2026 13:05
„Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, segir sína menn hafa svarað gagnrýni í upphafi móts vel á vellinum. Hann býst við krefjandi verkefni þegar Valur fær topplið KR í heimsókn í Reykjavíkurslag í kvöld. Íslenski boltinn 2. maí 2026 12:32
„Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Óskar Hrafn Þorvaldsson býst við hörkuleik er lið hans KR sækir Val heim í Bestu deild karla í kvöld. Hann skilur gremju KR-inga sem hafa farið fúlir heim af Hlíðarenda undanfarin ár og hyggst hlaupa yfir Valsmenn í kvöld. Íslenski boltinn 2. maí 2026 10:17
Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Tímabilinu er að öllum líkindum lokið hjá Magnúsi Óla Magnússyni, leikmanni Vals að sögn þjálfara liðsins. Magnús hlaut heilahristing eftir þungt höfuðhögg í úrslitaeinvígi Olís deildarinnar gegn FH í gær og var fram á nótt á sjúkrahúsi. Handbolti 1. maí 2026 12:57
Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Aron Sigurðarson, fyrirliði og lykilmaður í liði KR, er gíraður fyrir Reykjavíkurslag gegn Val á Hlíðarenda í Bestu deildinni annað kvöld. Aron hefur, líkt og KR liðið í heild sinni, farið frábærlega af stað á tímabilinu. Íslenski boltinn 1. maí 2026 11:32
Sjáðu mörkin: Fyrsti sigur nýliðanna, endurkoma Þróttara og Stjarnan skein skært Mikið fjör var í leikjum gærkvöldsins í Bestu deild kvenna og dramatík. Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur unnu sinn fyrsta leik, Þóttarar höfðu betur gegn FH í endurkomusigri og kvöldið áður hafði Stjarnan betur gegn Val. Mörkin úr þessum leikjum má sjá hér. Íslenski boltinn 1. maí 2026 11:00
Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals á von á fjörugum leik þegar hans menn taka á móti KR í Reykjavíkurslag annað kvöld. KR verði í toppbaráttu eins og Valur. Íslenski boltinn 1. maí 2026 10:02