Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Maður lést eftir að tígrisdýr réðst á hann í dýragarðinum Yorkshire Wildlife Park á Englandi, að sögn lögreglu í Suður-Jórvíkurskíri. Hann er sagður hafa farið inn á afgirt svæði þar sem tígrisdýrið dvaldi. 10.10.2026 19:42
Níu létust eftir skotárás Átta voru skotnir til bana í gærkvöldi í borginni Erie í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn svipti sig lífi í kjölfar skotárásarinnar. 10.10.2026 18:50
Á annað hundrað sektaðir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði yfir hundrað ökumenn fyrir að leggja ólöglega við Laugardalshöll og víða um Laugardal í Reykjavík í dag. 10.10.2026 18:21
Þrír réðust á einn Þrír voru handteknir og vistaðir í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um að ráðast á einn. Sá var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar en ekki er vitað um alvarleika meiðsla. Tveir hinna handteknu eru undir átján ára aldri. 10.10.2026 17:34
Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Tónlistarkonan Ice Spice og leikkonan Millie Bobby Brown nutu sín á Íslandi ef marka má Instagram-færslur stjarnanna. Saman slökuðu þær á í sjóböðunum í Hvammsvík. 5.10.2026 22:20
Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. 5.10.2026 21:30
Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út. 5.10.2026 19:46
Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Jarðskjálfti 4,7 að stærð reið yfir í Bárðarbunguöskju klukkan 17:28 síðdegis í dag. Skjálftar af þessari stærð verða reglulega í Bárðarbunguöskjunni en engin merki eru um gosóróa. 5.10.2026 18:22
Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Formaður VR segir viðbragðsleysi hafa einkennt aðkomu Samtaka atvinnulífsins (SA) að forsendubresti kjarasamninga og að raunveruleg hætta sé á að þeim verði sagt upp í kjölfar fundar stjórnar VR og trúnaðarráðs þess. 5.10.2026 18:13
Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Karlmaður á sextugsaldri, sem handtekinn var í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 9. október. Hann er nú sá eini sem er í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti en alls voru sautján handteknir vegna málsins. 5.10.2026 17:12