Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Sparkaði í ellefu ára dreng í kjöl­far dyraats

Tvítugur maður var kærður fyrir líkamsárás í gærkvöldi en hann brást illa við þegar tveir ungir drengir gerðu dyraat heima hjá honum í Suðurbæ í Hafnarfirði. Maðurinn hafi „tekið í“ annan drengjanna en hann er ellefu ára. 

Einn kærður fyrir líkams­á­rás

Einn var kærður fyrir líkamsárás í Hafnarfirði í hverfi 220. Sex eru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina.

„Er lög­gjafar­valdið sofandi á verðinum?“

Læknir og doktor í lýðheilsuvísindum segist sjá svart á hvítu hver þróun Íslendinga í áfengismálum sé með tilkomu samfélagsmiðla og áhrifavalda. Búið sé að „normalísera neysluna“ og óskiljanlegt sé að dóm um netsölu áfengis sé ekki framfylgt. 

Sex létust í elds­voða í Brussel

Sex manns létust í eldi sem kviknaði í morgun á byggingarsvæði í miðborg Brussel. Slökkvistarf stóð yfir í nokkrar klukkustundir.

Blöskrar áfengis­aug­lýsingar RÚV

Fyrrverandi íþróttafréttamaður sendir opna fyrirspurn til útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins varðandi áfengisauglýsingar og segist ekki geta orða bundist vegna málsins.

Ariana Grande byrjuð aftur með fyrr­verandi

Stórstjarnan Ariana Grande og Ricky Alvarez eru byrjuð aftur saman eftir að hafa stungið saman nefjum í nokkrar vikur. Þau voru áður par á árunum 2015 og 2016 en Alvarez var dansari (e. backup-dancer) Grande.

Einn í gæslu­varð­haldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu

Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag vegna tengsla sinna við hluta innbrota sem séu í rannsókn hjá lögreglu. Yfir sextíu innbrot hafa verið tilkynnt á höfuðborgarsvæðinu frá mánaðarmótum og lögregla segir greinilegan topp vera í innbrotum.

Sjá meira